Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 1
FORLAGIÐ SNÝRVÖRN Í SÓKN Blátannarsendir sem bjargar flugferðinni. 4 Golfklúbburinn í Holtagörðum blandar saman veitingum og golfhermum. Slíkt sambland fer vaxandi. 6 VIÐSKIPTA Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlags- ins, segir að bjartara sé nú yfir bókaútgáfu á ný vegna endurgreiðslna frá hinu opinbera. 4 HLUTI AFNÝRRITÍSKUBYLGJU MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 Frumkvöðlar vilja tugi milljóna Áætlanir Þorpsins vistfélags ehf., sem út- hlutað var lóðum undir 130 íbúðir fyrir ungt fólk, gera ráð fyrir að hlutdeild eigenda félags- ins í væntum hagnaði af verkefninu muni nema tugum milljóna. Í fjárfestakynningu sem Við- skiptaMogginn hefur undir höndum gera áætl- anir ráð fyrir að „frumkvöðlar“ verkefnisins, þ.e. hluthafar Þorpsins vistfélags ehf., muni fá að minnsta kosti 60 milljónir króna af því sem skilgreint er sem umframhagnaður af verkefn- inu. Það er hagnaður sem koma mun til þegar félagið hefur greitt vexti af víkjandi láni sem verður burðarás í fjármögnun verkefnisins. Hlutdeild fjárfesta í umframhagnaði verður samkvæmt sömu áætlunum 70% en frum- kvöðlanna 30%. Hins vegar gera áætlanirnar ráð fyrir að ef árleg ávöxtun verkefnisins verði umfram 40% þá muni skiptingin milli fjárfesta og frumkvöðla nema 50%. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að áætlanir Þorpsins hafi að undanförnu tekið miklum breytingum, m.a. með tilliti til þess að búta verkefnið niður í þrjá verkhluta í stað þess að ljúka uppbyggingunni í einum fasa. Aðstandendur verkefnisins vildu ekki stað- festa við ViðskiptaMoggann þegar eftir því var leitað hvort hlutdeild frumkvöðlanna hefði aukist eða minnkað við hinar breyttu for- sendur. Þorpið vistfélag ehf. er í jafnskiptri eigu Áslaugar Guðrúnardóttur og einkahluta- félagsins 2S, fjárfesting og ráðgjöf en það fé- lag er í 100% eigu Sigurðar Smára Gylfasonar. Áslaug er eiginkona Runólfs Ágústssonar sem er titlaður verkefnastjóri uppbyggingarinnar. Hann og Sigurður Smári hafa áður komið að fjárfestingarverkefnum í sameiningu. Fleiri aðilar hafa aðkomu að verkefninu. Þar má nefna Harald Flosa Tryggvason lögmann. Hann er sagður lögmaður verkefnisins í fjár- festakynningunni. Haraldur Flosi er stjórnar- formaður Félagsbústaða hf. sem samkvæmt samkomulagi við Reykjavíkurborg eiga kaup- rétt að 5% þeirra íbúða sem reistar verða und- ir merkjum Þorpsins vistfélags. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Forsvarsmenn Þorpsins vistfélags sem fengið hafa lóðir úthlutaðar hjá Reykjavíkurborg gera ráð fyrir að hagnast um tugi milljóna fyrir framtakið. Teikning/Þorpið vistfélag ehf. Fyrsti hluti verkefnisins felst í byggingu 45 íbúða. Í heildina verða íbúðirnar 130 talsins. EUR/ISK 4.6.‘19 3.12.‘19 145 140 135 130 125 139,4 134,6 Úrvalsvísitalan 2.200 2.100 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 4.6.‘19 3.12.‘19 2.130,11 2.090,98 Eitt af því sem veldur breytingum í flutningum á sjávarafurðum er bætt kælitækni, sem gerir sjóflutninga samkeppnishæfari á markaðnum. Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eim- skips, segist í samtali við Viðskipta- Moggann búast við að geta flutt ferskan fisk til Bandaríkjanna innan þriggja ára. Það muni þýða mögu- leika á að flytja meira magn á hærra verði fyrir afurðirnar. Það hækki útflutningstekjur frá Íslandi með miklu lægri flutningskostnaði en með flugi, og á umhverfisvænni hátt. Segir Vilhelm að fyrst yrði lík- lega um flutning á laxi að ræða þar sem hann þoli fleiri daga í geymslu. „Við erum með mjög flottar siglingaleiðir á fimmtudagskvöldum frá Reykjavík fyrir ferskan fisk beint til Rotterdam í Hollandi. Við komum þangað á sunnudags- kvöldum og svo er vörum dreift þaðan til Frakklands og Þýskalands aðfaranótt mánudags. Fiskurinn fer síðan frá dreifingarmiðstöðvum í Frakklandi og Þýskalandi á mánu- dagsmorgni, þannig að fiskur sem veiddur er á þriðjudegi, miðvikudegi og á fimmtudagsmorgni vikuna áður er kominn í búðir á meginlandi Evr- ópu á þriðjudegi í vikunni á eftir.“ Bætt kælitækni hefur einnig áhrif á innflutning á ferskvöru til Íslands. Vilhelm segir að mjög vinsælt sé að flytja ferska ávexti og grænmeti frá Árósum eftir hádegi á föstudegi, sem er svo komið í verslanir hingað á þriðjudegi, og frá Rotterdam á fimmtudögum sem er komið í versl- anir upp úr hádegi á mánudögum. Flytja ferskan fisk til Bandaríkjanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vilhelm segir að neytendur geri kröfur um ferskleika og gæði. Forstjóri Eimskips segir að bætt kælitækni feli í sér ný tækifæri fyrir fyrirtækið í flutningi á fiski. 8 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.