Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 4
VINNUFÖTIN Bindi geta sent mjög skýr skilaboð, og með réttu lit- unum og mynstrinu má ýmist skína eins og neyðarblys á morgunfundinum eða hverfa inn í bak- grunninn og renna saman við veggfóðrið. Drekabindið frá Hermés fellur í fyrri flokkinn, enda í kröftugum rauðum lit, en líka skreytt vold- ugum dreka sem virðist reiðubúinn að gleypa skýrslur og ársreikninga. Drekinn er áberandi í haust- og vetrarlínu Hermés í ár, og vill franska tískuhúsið bregða á leik með því að umbreyta gamla góða Hermés-fáknum í furðuskepnu úr heimi ævintýranna. Birtist drekinn jafnt í hnöppum, skartgripum, í mynstrinu á slæðum og stutt- buxum, og svo vitaskuld á bindum. Má fá drekabindið í nokkrum lit- um, s.s. svart með svörtum dreka og blátt með grænum dreka, en rauða bindið ætti að vera efst á óskalista þeirra sem vilja láta á sér bera á vinnu- staðnum. Bindið kostar 195 dali í vef- verslun Hermés. ai@mbl.is Valdsmanns- legasta valda- bindið Gráa útgáfan er fyrir þá sem vilja láta minna á sér bera. VINNUFERÐALAGIÐ Það er meira en lítið spælandi að hafa lagt út fyrir agalega vönduðum og dýrum þráðlausum heyrnartólum og geta svo ekki notað þau til að hlusta á afþreyingarefni flug- félaganna á leiðinni milli landa. Er þá fátt annað í boði en ýmist að pakka aukaheyrnartólum með snúru eða nota óþægilegu og ódýru heyrnartólin sem flugfélagið skaffar. AirFly Pro leysir vandann með litlum blátannarsendi sem er einfaldlega stungið í heyrnartólainnstunguna í flugvélarsætinu. Þessi sendir beinir svo hljóðinu þráð- laust í fínu heyrnartólin sem eigandinn er vanur að nota. Tækið má líka nota til að streyma tónlist úr snjallsíma yfir í hljómtæki af gömlu gerðinni eða til að tengjast þráðlaust við afþreyingarvæddu hlaupabrettin í líkams- ræktinni. Hleðslan á að duga í 16 tíma og hægt er að tengja tvö pör af heyrnartólum samtímis. ai@mbl.is Til að hlusta þráðlaust í flugi Græjunni er stungið í gatið fyrir heyrnar- tólasnúruna. 4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019FRÉTTIR Ekki ætti að koma á óvart að Egill Örn er önnum kafinn í miðju jóla- bókaflóðinu. Forlagið gefur út um 200 bækur á þessu ári og spennan er mikil á þessu aðaluppskeru- tímabili fyrirtækisins. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Á síðustu misserum hefur rekst- ur bókaútgáfu verið nokkuð snúinn sökum þess að sala á bókum hefur dregist töluvert saman, en horfir reyndar til töluvert betri vegar og jólavertíðin fer kröftuglega af stað. Ný lög menntamálaráðherra um endurgreiðslu á hluta kostnaðar við útgáfuna munu gjörbreyta rekstrarumhverfinu til hins betra og við sjáum það reyndar nú þegar að útgáfa hefur aukist verulega milli ára og er mun bjartara yfir þeim sem starfa við bókaútgáfu. Ég lít svo á að nú geti maður loks hafið á nýjan leik sókn eftir nokkuð stífan varnarleik undanfarin ár. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Ég sótti síðast bókamessuna í Frankfurt þangað sem um 300 þús- und manns koma í hvert sinn og allir útgefendur reyna að sækja reglulega. Ég hef komið 18 sinnum á bókamessuna í Frankfurt, en hef satt að segja ekkert náð að skoða af borginni sjálfri þar sem maður mætir snemma á viðburðinn og fer ekki fyrr en undir kvöld. Hugsarðu vel um líkamann? Ég tók þá ákvörðun fyrir all- mörgum árum að byrja að ganga til og frá vinnu sem reyndist miklu minna mál en ég hafði ímyndað mér. Það er mun auðveldara að ferðast fótgangandi í borginni en Ég byrjaði sem smástrákur að að- stoða í Iðunni og sömuleiðis var ég kominn fljótlega eftir stúdentspróf á lager Máls og menningar. Ef ég yrði að finna mér nýjan starfa held ég að það yrði samt alltaf í þessu fagi og hefur mig reyndar lengi dreymt um að starfa í bókabúð, en mér líður yfirleitt vel með mikið magn ólíkra bóka í kringum mig. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég hef í nokkur ár gælt við að afla mér meiri menntunar, en sök- um mikilla anna í starfi hef ég ekki séð mér kleift að láta verða af því. Það sem ég hef helst horft til er MBA-nám, annaðhvort hér á landi eða erlendis, og vonandi að mér takist að láta verða af því fyrr en síðar. Mér finnst stundum súrt að hafa ekki klárað „alvöru“ gráðu úr háskóla. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Ég hef satt að segja alla tíð átt erfitt með að staðsetja mig á hin- um svokallaða pólitíska ási, en hef þó hallast meira til vinstri en hægri. En yrði ég einráður held ég að ég myndi láta það verða mitt fyrsta verk að afnema ýmis boð og bönn sem enn eru við lýði í hinu og þessu í samfélaginu. Það er kannski partur af því hversu smátt samfélagið er að okkur hefur geng- ið illa að ná fram breytingum. Allt er við það sama nema okkur sé beinlínis skipað að breyta því. Við slíkar kringumstæður getur stöðn- un orðið algerlega óumflýjanleg. En það má vel létta aðeins á boðum og bönnum og leyfa a.m.k. ögn meira frjálsræði í samfélaginu. SVIPMYND Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins Ný lög um endurgreiðslu gjörbreyta rekstrarumhverfinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég lít svo á að nú geti maður loks hafið á nýjan leik sókn eftir nokkuð stífan varnarleik undanfarin ár,“ segir Egill um rekstrarskilyrðin. NÁM: Menntaskólinn í Reykjavík; Endurmenntun HÍ: Rekstrar- og viðskiptanám. STÖRF: Mál og menning 1994-2000; Genealogia Islandorum 2000; JPV/Forlagið frá 2001. ÁHUGAMÁL: Bækur og bókaútgáfa, fréttir og stjórnmál og íþróttir, en ég held mikið með KR og Manchester United. FJÖLSKYLDUHAGIR: Makinn heitir Þórhildur Garðarsdóttir og börnin Kristján Dagur og Guðrún Klara. HIN HLIÐIN margir kunna að halda og veðurfar skiptir nánast engu máli. Því til viðbótar spila ég fótbolta á gervi- grasinu í Laugardal þrisvar í viku með þeim virðulega félagsskap Lunch Utd auk þess sem ég spila einu sinni í viku innanhússbolta. Ég myndi því segja að ég hreyfi mig í það heila töluvert, en hvatn- ingin er ekki síst að ég finn vel hversu gott það gerir manni að komast út og hreyfa sig, og það er ekki síður andlega hliðin sem nýtur góðs af hreyfingunni. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Þar sem ég er af þriðju kynslóð bókaútgefenda hef ég satt að segja engu öðru starfi kynnst sem heitið getur en því sem viðkemur faginu. Hi-Viz húfa með Bluetooth og ljósi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.