Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 9

Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 9
sig skipi í fyrra, og samkeppnin minnkaði ekki við það. Þá eru nokkrir aðrir á markaðnum. Mykines siglir vikulega á milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Norræna siglir til og frá Seyðis- firði, og svo eru minni aðilar eins og Thorship, sem þjónustar álverið í Straumsvík. Þá sér Cargow um þjónustu við álverið á Reyðarfirði. Cargow er hollenskt félag, en að hluta í eigu Íslendinga.“ Salan á skipunum þremur í Noregi, sem rætt var um hér á undan, er að sögn Vilhelms hluti af vegferðinni sem Eimskip hefur verið á síð- ustu misseri. Hún snýst um að einfalda rekst- urinn og þétta raðirnar, eins og Vilhelm orðar það. „Stefna okkar er núna að gera meira af því sem gengur vel heldur en hinu sem gengur verr. Við höfum verið með sex skip í Noregi, fjögur í svokallaðri línuþjónustu, sem líkja má við áætlunarferðir strætisvagna, og svo tvö í svokallaðri Spot-þjónustu, sem líkja má við leigubílaþjónustu. Afkoman af þeirri síðar- nefndu hefur verið algjörlega óviðunandi og þess vegna ætlum við að draga úr henni. Við erum mjög ánægð með þessa sölu. Skip- in voru orðin gömul og það blasti við að við þyrftum að fara með þau í klössun upp á um fjórar miljónir evra á næsta ári. Það bíður í staðinn nýrra eigenda.“ 1.750 starfsmenn um allan heim Eimskip er stórt félag með starfsemi um all- an heim. Sérðu áframhaldandi tækifæri til hag- ræðingar og straumlínulögunar í rekstrinum? „Við erum í dag með 1.750 starfsmenn í 18 löndum, en í byrjun árs voru löndin 20. Við höf- um fækkað um 60 manns í samstæðunni á þessu ári. Þá hefur skrifstofum okkar fækkað um níu, úr 65 í 56. Síðustu 4-5 ár hefur fyrir- tækið einblínt á ytri vöxt, og þá sérstaklega verið í uppkaupum á fyrirtækjum í flutnings- miðlun, í Rotterdam, Árósum og á fleiri stöð- um. Við höfum í ár hinsvegar verið að sameina skrifstofur, spara og ná meiri slagkrafti. Sem dæmi þá er tollskjalagerð hér á landi nú á ein- um stað en var á tveimur stöðum í byrjun árs- ins. Þá erum við nú bara með eina öfluga akstursstýringardeild hér í Sundahöfn, en þær voru þrjár í byrjun ársins. Hvert og eitt svona verkefni vegur kannski ekki mikið eitt og sér, en þegar þú leggur þau saman þá fer þetta að skipta máli. Annað sem við erum byrjuð að gera er að nota róbótatækni í tölvum, sem taka þá við verkefnum starfsmanna. Þetta er tölvu- búnaður sem les viðskipta- og flutningsfyrir- mæli sem koma frá viðskiptavinum í gegnum ákveðnar gáttir. Það er margs konar sjálf- virknivæðing úti við sjóndeildarhringinn,“ segir Vilhelm og nefnir sem dæmi sjálfsiglandi/ mannlaus skip og sjálfvirka lyftara sem ættu að líta dagsins ljós á næstu árum og áratugum. Vilhelm segir að mikill samhljómur sé í stjórn félagsins um núverandi stefnu í rekstr- inum. „Yucaipa, sem var stærsti eigandi félags- ins áður en Samherji kom til sögunnar, var með vaxtarfókus, en afkoman fylgdi engan veg- inn með. Það er ekki lífvænlegt módel.“ Samherjamálið ekki haft áhrif Samherjamálið, sem snýst um meintar mútur Samherja í Namibíu, hefur verið mikið í um- ræðunni. Hefur það haft áhrif á rekstur Eim- skips, hafandi það í huga að Samherji heldur í dag á 27% hlut í félaginu? „Við höfum ekki fundið nein bein áhrif á reksturinn, sem betur fer. Ég hef spurst fyrir hjá starfsfólki okkar erlendis og það er lítið hringt og spurt. Á Íslandi erum við með um 900 starfsmenn, og þeir hafa fylgst með fram- vindu málsins eins og aðrir. Hér heima gera menn sér hins vegar grein fyrir að við erum sjálfstætt félag, skráð á hlutabréfamarkað. Það er enginn einn hluthafi sem stýrir félaginu. Vissulega eru tveir fulltrúar í stjórn kosnir af Samherja, en stjórnarmenn eru fulltrúar allra hluthafa og til dæmis eiga íslenskir lífeyris- sjóðir meira en 50% í félaginu.“ Spurður um nýlega gagnrýni Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, á stjórn Eimskips af sama tilefni, segir Vilhelm að sú gagnrýni sé að einhverju leyti ómálefnaleg. „Eins og fyrr sagði er samhljómur í stjórn um áherslur fé- lagsins, að einfalda og auka sjóðstreymi og gera betur fyrir alla hluthafa. Mér finnst hann ekki vera að gera sínum sjóðfélögum greiða með því að tala niður félagið. Auk þess eru líf- eyrissjóðirnir ekki ein heild, þó þeir eigi sam- eiginlega meira en helming félagsins. Þeir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Sumir lífeyr- issjóðir eru til dæmis mjög sáttir við að vera með einn leiðandi hluthafa í félagi sem þeir fjárfesta í. Ég hef a.m.k. átt mjög gott sam- starf við stjórnina frá því ég byrjaði og hef ekki yfir neinu að kvarta.“ Ekki verður hjá því komist að minnast á gengið á bréfum félagsins í Kauphöll sem hefur sjaldan verið lægra, eða 175 krónur á hvern hlut. „Almennt hefur íslenski markaðurinn ekki verið neitt sérstaklega áhugaverður og Eimskip hefur ekki farið varhluta af því. En hluti af skýringunni er þessi ytri vöxtur sem farið var í, og ég ræddi hér á undan. Það var kynnt upp- haflega sem ákveðin áhættudreifing, sem eru ágæt rök, en allar væntingar um að arðsemin myndi fylgja, þær stóðust ekki ítrekað. Verk- efni okkar sem stýrum félaginu núna er að snúa þessu við. Vonandi náum við að vinna traust markaðarins, og það endurspeglist þá í hlutabréfaverðinu. Í grunninn þurfum við að skila betri afkomu, styrkja miðlægar einingar, fara betur með fjármuni félagsins og auka veltufé frá rekstri. Við höfum fengið fín við- brögð frá fjárfestum og greiningaraðilum við þessu.“ Eitt af því sem sagt var frá í tengslum við níu mánaða uppgjörið var að lækka ætti eig- infjárhlutfallið niður í 40% úr 45%. „Við teljum að þegar því verður náð þá muni það endur- spegla mjög sterkt félag. Til að ná þessu verð- um við að auka aðeins útgreiðslu arðs eða því- umlíkt til okkar hluthafa, en við ætlum ekki að vera með neinar öfgar í því. Við gefum okkur tvö ár í þetta verkefni.“ Fall WOW air hafði áhrif Fyrr á þessu ári varð íslenskt hagkerfi fyrir því áfalli að annað af stóru flugfélögunum, WOW air, varð gjaldþrota. Hafði það áhrif á Eimskip? „Já, það gerði það að verkum t.d. að við fengum aukna flutninga. Við stukkum til á þessum tímapunkti og bjuggum til lausnir í flugi, til dæmis í samstarfi við Bluebird.“ Eitt af því sem veldur breytingum í flutning- um á sjávarafurðum frá landinu er að sögn Vil- helms bætt kælitækni, sem gerir sjóflutninga samkeppnishæfari. „Ég tel að það sé frekar stutt í að við förum að sigla með ferskan fisk vestur um haf, sem ekki er hægt í dag. Við er- um með mjög flottar siglingaleiðir á fimmtu- dagskvöldum frá Reykjavík fyrir ferskan fisk beint til Rotterdam í Hollandi. Við komum þangað á sunnudagskvöldum og svo er vörum dreift þaðan til Frakklands og Þýskalands að- faranótt mánudags. Fiskurinn fer síðan frá dreifingarmiðstöðvum í Frakklandi og Þýska- landi á mánudagsmorgni, þannig að fiskur sem veiddur er á þriðjudegi, miðvikudegi og á fimmtudagsmorgni vikuna áður, er kominn í búðir á meginlandi Evrópu á þriðjudegi í vik- unni á eftir.“ Vilhelm býst við að geta farið að flytja fersk- an fisk til Bandaríkjanna innan þriggja ára. Það muni þýða möguleika á að flytja meira magn á hærra verði fyrir afurðirnar, sem hækki útflutningstekjur frá Íslandi með miklu lægri flutningskostnaði en með flugi sem og á umhverfisvænni hátt. „Líklega myndum við byrja á að flytja lax, því hann þolir fleiri daga í geymslu.“ Betri kælitækni hefur einnig áhrif á innflutn- ing á ferskvöru til Íslands. Vilhelm segir að mjög vinsælt sé að flytja ferska ávexti og grænmeti frá Árósum eftir hádegi á föstudegi, sem er svo komið í verslanir hingað á þriðju- degi og frá Rotterdam á fimmtudögum sem er komið í verslanir upp úr hádegi á mánudögum. „Þetta var ekki svona fyrir nokkrum árum. Þetta er krafa okkar sem neytenda, að fá meiri gæði og ferskleika.“ 200 bílar í flotanum En Eimskip er ekki bara skipafélag. Það flytur líka vörur á bílum, og er með 150 bíla í rekstri á Íslandi og 50 í Færeyjum. Bílarnir safna saman vörum um allt land, þar á meðal ferskum fiski, sem er svo skipað um borð í flutningaskip á leið á erlenda markaði. „Þetta hefur vaxið frekar en hitt, einkum vegna þess að útgerðir hafa verið að auka landvinnslu á kostnað sjófrystingar.“ Að lokum ræðum við um þá kólnun sem er í gangi í hagkerfinu þetta haustið. Segir Vilhelm að innflutningur hafi minnkað um 10-11% milli ára, en þar vegi hinsvegar tengiflutningarnir yfir Atlantshafið á móti samdrættinum. „Bless- unarlega gengur vel á öðrum sviðum. Útflutn- ingur frá Íslandi er t.d. álíka mikill og í fyrra og útflutningur frá Færeyjum er betri en í fyrra. Þá hafa landflutningarnir átt mjög fínt ár, bæði tekju- og kostnaðarlega séð. Persónu- lega finnst mér að við verðum að passa okkur á að tala okkur ekki niður í kreppu. Pendúllinn í umræðunni á það til að sveiflast ansi hressi- lega. Efnahagsstærðir, og staða fyrirtækja og heimila, gefa ekki tilefni til þess að hafa áhyggjur,“ segir Vilhelm og upplýsir að lokum að fyrirtækið geri ráð fyrir lítilsháttar aukn- ingu í innflutningi er líður á næsta ár. Það er því engan bilbug að finna á nýja for- stjóranum, og ljóst að siglingin fram undan ætti að geta orðið bæði spennandi og áhuga- verð. ” Sumir lífeyrissjóðir eru til dæmis mjög sáttir við að vera með einn leiðandi hluthafa í félagi sem þeir fjárfesta í. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 9VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.