Fréttablaðið - 13.12.2002, Side 2
2 13. desember 2002 FÖSTUDAGUR
ERLENT
Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður íhugar að
fara í framboð fyrir Frjálslynda flokkinn. Elín Hirst,
nýráðinn fréttastjóri sjónvarps, segir að frétta-
mennska og pólitík fari ekki saman,
„Ég myndi segja að pólitík og frétta-
mennska fari ekki saman. Fréttamenn geta
hins vegar haft skoðanir. En þeir mega ekki
rugla þeim saman við fréttastarfið.“
SPURNING DAGSINS
Fara fréttamennska
og pólitík ekki saman? Örn Arnarson:
Evrópumeistari í fjórða sinn
SUND Örn Arnarson varð Evrópu-
meistari í 200 metra baksundi í 25
metra laug á Evrópumeistaramót-
inu í Riesa í Þýsklandi í gær. Örn
synti á tímanum 1.54,00 mínútum,
sem er rétt rúmri sekúndu frá Ís-
lands- og Norðurlandameti hans.
Þetta er í fjórða sinn sem Örn
verður Evrópumeistari í greininni á
síðustu fimm árum. Fyrstu verð-
launin vann hann í Sheffield á
Englandi árið 1998, ári seinna vann
hann í Lissabon í Portúgal og í Val-
encia á Spáni fyrir tveimur árum.
Örn gat ekki tekið þátt í mótinu í
fyrra vegna meiðsla á öxl.
Örn keppir í 50 metra baksundi
og 100 metra skriðsundi í dag og í
100 metra baksundi á morgun. Örn
vann einnig gull í síðasttöldu grein-
inni fyrir tveimur árum. ■
Gjaldþrot Nasco
er 577 milljónir
Gjaldþrot rækjuveldisins Nasco er um 577 milljónir króna. Skiptum á
að ljúka í janúar, tveimur árum eftir að Nasco var lýst gjaldþrota. Skipt-
um í dótturfyrirtækinu Nasco Bolungarvík er einnig ólokið.
GJALDÞROT Stefnt er að því skiptum í
þrotabúi Nasco ehf. í Reykjavík
ljúki í janúar. Gjaldþrotið verður
um 577 milljónir króna.
Samþykktar forgangskröfur upp
á 22,4 miljónir króna hafa þegar
verið greiddar.
Reiknað er með að
um það bil 20 millj-
ónir til viðbótar
verði greiddar upp í
almennar kröfur.
Lýstar kröfur í
þrotabúið námu alls
um 780 milljónum
króna en samþykkt-
ar kröfur 629 millj-
ónum.
Að sögn annars
tveggja skipta-
stjóra í þrotabúinu
hefur málið verið
mjög umfangsmik-
ið. Það tengist fjölda annarra fyrir-
tækja hérlendis og erlendis sem
voru alla vega stödd, flest mjög illa.
„Orsakirnar eru að ýmsu leyti
skýrðar með því að það varð mikið
verðfall á rækju og aflabrestur líka.
Rækjuviðskipti hafa verið mjög
sveiflukennd í gegnum árin. Þarna
kom mikil niðursveifla. Skuldsetn-
ingin var það mikil að fyrirtækið
gat ekki mætt þessu,“ segir skipta-
stjórinn.
Stærstu kröfuhafar í þrotabúið
eru Byggðastofnun með 145 millj-
ónir króna, Eimskip með 75 milljón-
ir og Búnaðarbankinn með 64 millj-
ónir. Þessir aðilar mega búast við að
fá rúm 3% af kröfum sínum greidd.
Þess má geta að 103 milljóna
kröfu frá Íslandsbanka-FBA var
hafnað þar sem um var að ræða
skuld dótturfyrirtækisins Nasco
Bolungarvíkur ehf.
Nasco var með umfangsmikinn
rekstur á sviði umboðssölu með
fullunna rækju. Fyrirtækið hasl-
aði sér einnig völl í ýmissi hliðar-
starfsemi, bæði útgerð og vinnslu.
Það átti meðal annars hlut í togur-
um sem gerðir voru út frá Rúss-
landi og Lettlandi á rækju við Ný-
fundnaland.
Þá átti Nasco allt hlutafé í
Nasco Bolungarvík, sem stofnað
var 1998. Það var rækjuvinnsla
sem tekin var til gjaldþrotaskipta
fyrir tveimur árum eins og móður-
fyrirtækið í Reykjavík. Áðurnefnd
krafa Byggðastofnunar á Nasco
ehf. er einmitt vegna ábyrgðar
sem fyrirtækið gekkst í fyrir dótt-
urfyrirtækið á Vestfjörðum.
Skiptum í því búi er einnig ólokið.
Einnig má nefna að dótturfyrir-
tækin Nasco UK í Bretlandi og
Nasco Canada hafa verið úrskurð-
uð gjaldþrota.
gar@frettabladid.is
INNBROT Lögreglunni í Reykjavík
bárust sex tilkynningar um inn-
brot í gær. Maður var handtekinn
í gærmorgun eftir að hann braust
inn í heilsuvöruverslun í Vestur-
bænum. Vaktmaður sá til þjófsins
og kallaði til lögreglu. Þegar hún
kom á staðinn hafði þjófurinn sóp-
að saman vítamínum og öðrum
heilsuvarningi. Hann var fluttur í
fangageymslur. Að sögn lögregl-
unnar var maðurinn vel búinn
tækjum. Hann hafði notað borvél
til að losa útidyrahurð verslunar-
innar.
Brotist var inn í bíl í miðborg-
inni og þaðan stolið hljómtækjum.
Innbrotstilraun var gerð í fyrir-
tæki í Ármúla. Þjófarnir höfðu
brotið rúðu en einhver styggð
kom í þá og flúðu þeir af vett-
vangi.
Brotist var inn í fyrirtæki í
Fenjunum og stálu þjófarnir
nokkur hundruð krónum. Brotist
var inn í geymsluskúr í miðborg-
inni og þaðan stolið veiðistöngum
og ýmsum útilegubúnaði. Einnig
var brotist inn í geymslu í Breið-
holti í gær og þaðan stolið tölvu.
Að sögn lögreglunnar virðist
innbrotsfaraldur geisa nú í
Reykjavík og er tilkynnt um fimm
Slys í Skógarhlíðar-
brekku:
Lítið meidd-
ur eftir veltu
SLYS Maður um þrítugt var fluttur á
slysadeild Landspítala í Fossvogi
eftir bílveltu í Skógarhlíðabrekku, á
Þrengslavegi, um átta leytið í gær-
morgun.
Maðurinn, sem var einn í bílnum,
hugðist aka fram úr annarri bifreið
en ók út af með þeim afleiðingum að
bíll hans valt. Maðurinn var fluttur
á Heilsugæsluna í Þorlákshöfn til
rannsóknar en þaðan á slysadeild
Landspítalans.
Maðurinn er ekki alvarlega slas-
aður en tognaði þó. Bíllinn er óöku-
fær. Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var engin hálka á veginum
þegar slysið varð. ■
KARL SIGURBJÖRNSSON
Messar í beinni útsendingu að ári.
Aðfangadagskvöld:
Biskupinn
ekki í beinni
MESSA Herra Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, mun ekki flytja jóla-
messu sína í beinni útsendingu í
Ríkissjónvarpinu eins og ráðgert
hafði verið. Hafði dagskrárstjórn
Sjónvarpsins lagt mikla áherslu á að
biskupinn messaði í beinni útsend-
ingu á aðfangadagskvöld en vegna
ófyrirséðra tæknilegra ástæðna
getur ekki orðið af því í ár. Hins
vegar er stefnt að því að biskupinn
messi á aðfangadagskvöld í beinni
útsendingu á næsta ári. Er undir-
búningur þess þegar hafin. ■
Vaxtalækkun Seðlabanka:
Stýrivextir
í 5,8%
PENINGASTJÓRN Seðlabankinn lækk-
aði vexti um 0,5% í gær.
Ástæðan er að nýjar hagtölur
benda til þess að verðbólga verði
undir viðmiðunarmörkum bank-
ans.
Seðlabankinn telur stýrivexti
komna nálægt því sem telja mætti
jafnvægisvexti til lengri tíma.
Horfur um hagvöxt hafa lítið
breyst hér á landi.
Seðlabankar nágrannalandanna
hafa verið að lækka vexti í ljósi
minnkandi hagvaxtar. Miðað við að
núverandi vextir séu nálægt jafn-
vægi gætu stóriðjuframkvæmdir
kallað á hækkun síðar, verði ekki
aðrar breytingar á hagkerfinu. ■
Viðskiptin við útlönd:
Loksins
stefnir í plús
UTANRÍKISVERSLUN Ef fer fram sem
horfir verður afgangur af við-
skiptum við útlönd á þessu ári.
Það hefur ekki gerst síðan árið
1995. Fjármálaráðuneytið gerir
ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður
verði jákvæður um 23 milljarða.
Þegar viðskiptin við útlönd eru
gerð upp þarf að taka tillit til
þáttatekna. Það eru þær tekjur
sem Íslendingar hafa erlendis og
útlendingar hér, jafnt launa- sem
vaxtatekjur. Gert er ráð fyrir að
þar halli á Íslendinga. Samt ekki
meira en svo að nú stefnir í af-
gang af viðskiptum við útlönd. ■
VILJA BJARGA PRESTIGE Hollenska
björgunarfyrirtækið Smit Salvage
segist geta lyft olíuskipinu Prestige
af hafsbotni fyrir 50 milljón evrur.
Skipið sökk 19. nóvember úti af
Spáni með meira en 60 þúsund tonn
af olíu innanborðs. Björgunarfyrir-
tækið náði rússneska kafbátnum
Kursk upp af hafsbotni fyrir 65
milljón evrur fyrir rúmu ári.
SÍMAVARGUR HANDTEKINN Nítján
ára Norðmaður var handtekinn í
gær fyrir að hafa verið með upp-
lognar hryðjuverkahótanir. Hann
hafði hringt í að minnsta kosti tíu
lögreglustöðvar og þóst vera yfir-
maður leyniþjónustu lögreglunnar í
Bergen. Ekki komst upp að þetta
var gabb eitt fyrr en sprengjuleit-
armenn og sérsveitir lögreglunnar
voru komin af stað.
ÖRN ARNARSON
Virðist vera að ná sínu fyrra formi eftir að
hafa átt við meiðsli að stríða á öxl.
REYKJAVÍK
Lögreglan segir innbrotafaraldur geisa um þessar mundir.
EINN TOGARA NASCO
„Orsakirnar eru að ýmsu leyti skýrðar með því að það varð mikið verðfall á rækju og afla-
brestur líka,“ segir skiptastjóri í búi rækjuveldisins Nasco, sem nú verður endanlega gert
upp. Gjaldþrotið nemur 577 milljónum.
Stærstu kröfu-
hafar í þrota-
bú Nasco eru
Byggðastofn-
un með 145
milljónir
króna, Eim-
skip með 75
milljónir og
Búnaðarbank-
inn með 64
milljónir.
Innbrotsfaraldur í Reykjavík:
Sex innbrot á sólarhring
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
M
E
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Seðlabankinn telur stýrivexti komna
nálægt því sem telja megi jafnvægisvexti.