Fréttablaðið - 13.01.2020, Síða 4
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250 HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR.
AFMÆLISTILBOÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
STJÓRNSÝSLA Bæjarráð Fljótsdals
héraðs hefur fyrir sitt leyti sam
þykkt samkomulag við ríkið um
skiptingu leigutekna þessara aðila
sem landeiganda á vatnasvæði Geit
dalsárvirkjunar.
Í þeirri útgáfu samkomulagsins
sem bæjarráðið samþykkti eru
sagðar hafa verið gerðar minni
háttar breytingar sem ræddar hafi
verið á fundinum.
Þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar um
hafnar Björn Ingimarsson, bæjar
stjóri Fljótsdalshéraðs, að afhenda
afrit af hinum samþykkta samningi
að svo stöddu.
„Eins og fram kemur í afgreiðslu
bæjarráðs þá er þetta afgreitt með
ákveðnum breytingum sem þarf að
bera undir hinn aðila samningsins,
fjármálaráðuneytið, áður en hægt
verður að ganga frá samningnum.
Þegar endanlegur samningur liggur
fyrir verður hægt að afhenda hann,“
segir bæjarstjórinn.
Elva Björk Sverrisdóttir, upplýs
ingafulltrúi fjármálaráðuneytisins,
segir ekki búið að ganga frá sam
komulaginu.
„Um leið og það liggur fyrir er
hægt að af henda þér það,“ segir í
svari Elvu til blaðamanns.
Geitdalsárvirkjun er verkefni
samnefnds einkahlutafélags sem
er í eigu Arctic Hydro. Áætlað er að
afl virkjunarinnar verði allt að 9,9
megavött.
„Megininnrennslið í Geitdalsá er
úr Leirudalsá, sem rennur í gegnum
nokkur vötn á leið sinni úr vestri.
Eitt þessara vatna mun fara undir
fyrirhugað miðlunarlón,“ segir í
skýrslu verkfræðistofunnar Mann
vits um framkvæmdina sem enn er
í umhverfismati.
Meðal þess sem tilheyrir fram
kvæmdinni er þriggja ferkílómetra
miðlunarlón 702 metra hæð yfir
sjávarmáli í Leirudal.
Lengd stíf lu er áætluð um einn
kílómetri og hæð hennar átján
metrar.
Hjörleifur Guttormsson, fyrrver
andi alþingismaður Alþýðubanda
lagsins og fyrrverandi iðnaðarráð
herra, er einn þeirra sem andmælt
hefur Geitdalsárvirkjun.
„Hér er um að ræða náttúrufars
lega afar verðmætt svæði sem er
ósnortið víðerni án teljandi mann
virkjagerðar en nýtt til sauðfjár
beitar um aldir,“ segir í umsögn
Hjörleifs.
„Ég vil ekki trúa því að bæjar
stjórn Fljótsdalshéraðs og sér
fróðir sem vinna í hennar þágu
fari að greiða götu virkjana á þessu
svæði, þegar um er að ræða aðra og
langtum mikilvægari kosti til fram
tíðarnota,“ segir einnig í athuga
semdum iðnaðarráðherrans fyrr
verandi.
gar@frettabladid.is
Semja um landleigutekjur af
virkjun Geitdalsár í Skriðdal
Fjármálaráðuneytið og Fljótsdalshérað ganga frá samkomulagi um skiptingu leigutekna frá Arctic
Hydro vegna fyrirhugaðrar virkjunar Geitdalsár. Bæjarráð hefur samþykkt samkomulagið en það fæst
enn ekki afhent. Fyrrverandi iðnaðarráðherra er meðal þeirra sem andmælt hafa virkjunaráformunum.
REYKJAVÍK Ekkert útboð og engar
verðfyrirspurnir voru gerðar af
hálfu Reykjavíkurborgar í tengslum
við framkvæmdir við innsiglingar
vitann við Sæbraut sem vígður var
í fyrra. Alls kostuðu framkvæmd
irnar 43,6 milljónir króna en
s a m k væmt i n n k aupa r eg lu m
borgarinnar þurfa allar verklegar
framkvæmdir sem kosta meira en
30 milljónir króna að fara í útboð.
Í svari borgarinnar við fyrirspurn
Fréttablaðsins segir að samningur
inn við Suðurverk hafi upphaflega
hljóðað upp á 27,6 milljónir króna
sem sé undir útboðsmörkum. Síðan
hafi verið samið við sama verktaka
fyrirtæki um greiðslur upp á átta
milljónir króna vegna umfangs og
aðrar átta milljónir til að setja vit
ann á staura.
Verðmiðinn á vitanum hefur
vakið athygli, átti hann að kosta 75
milljónir króna en fór meira en 100
milljónir fram úr kostnaðaráætlun.
Bjarni Brynjólfsson, upplýsinga
fulltrúi Reykjavíkurborgar, segir
að ekki hafi verið kannað verð hjá
öðrum verktökum en Suðurverki
þegar kom að fráganginum.
„Suðurverk var valið vegna þess
að góð reynsla er af fyrirtækinu í
svipuðum verkum og þeir leystu
verkið vel af hendi. Þeir unnu t.d.
við frágang í kringum Sólfarið eftir
Jón Gunnar Árnason sem vekur
mikla lukku og er einn fjölmennasti
ferðamannastaður borgarinnar,“
segir Bjarni.
„Vitinn er nú þegar orðinn mjög
vinsæll áfangastaður íbúa og ferða
manna við Sæbrautina og mörgum
frábærum myndum póstað af
honum á samfélagsmiðlum sem fara
um allan heim.“ -boþa
Ekkert útboð og engar verðfyrirspurnir vegna innsiglingarvita
Innsiglingarvitinn við Sæbraut var vígður á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Staðsetning helstu mannvirkja fyrirhugaðrar virkjunar í Geitdalsá samkvæmt frumhönnun Mannvits.
Geitdalsá
Þrýstipípa og vegur
Vegur
Leirudalslón
Vatnasvið inntakslóns
Vatnasvið
Miðár
Vatnasvið
Leirudalslóns
Inntakslón
Leirudalsstí Veituskurður
og garður
Botnrás og inntak
Inntaksstía Inntak í Miðá
Stöðvarhús
Hér er um að ræða
náttúrufarslega afar
verðmætt svæði sem er
ósnortið víðerni án teljandi
mannvirkjagerðar.
Hjörleifur
Guttormsson,
fyrrverandi
iðnaðarráðherra
S TJ Ó R N S ÝS L A Halla Bergþóra
Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norð
urlandi eystra, Páll Winkel, fang
elsismálastjóri og Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjóri höfuð
borgarsvæðisins, eru meðal þeirra
sem sækja um Ríkislögreglustjóra
embættið. Umsóknarfrestur til að
sækja um stöðuna rann út fyrir
helgi en ekki hefur verið gefið upp
hversu margir sóttu um starfið.
Embætti ríkislögreglustjóra var
auglýst laust til umsóknar fyrir jól
eftir starfslokasamning dómsmála
ráðherra við Harald Johannessen,
en hann hafði gegnt embættinu í
22 ár. Kjartan Þorkelsson, lögreglu
stjóri á Suðurlandi, sem var skipað
ur í embættið til bráðabirgða, hefur
greint frá því að hann hafi ekki hug
á að sækjast eftir embættinu.
Halla Bergþóra hefur starfað í
málaflokkum tengdum réttarkerf
inu mestan hluta starfsævinnar.
Hún leysti Ólaf Þór Hauksson af í
embætti sýslumanns á Akranesi
uns hún var skipuð lögreglustjóri á
Norðurlandi eystra um mitt ár 2014.
Páll Winkel varð fangelsismála
stjóri árið 2007. Áður hafði hann
gegnt stöðu aðstoðarríkislögreglu
stjóra. Hann hefur starfað í lög
gæslu og refsivörslukerfinu frá
útskrift úr laga deild um aldamótin.
Sigríður Björk hefur verið lög
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
frá árinu 2014. Áður var hún lög
reglustjóri á Suðurnesjum og
aðstoðarríkislögreglustjóri. – ds
Halla Bergþóra,
Páll og Sigríður
vilja í embættið
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
1 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð