Fréttablaðið - 22.01.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Durum
Durum ... Hákarlinn er kominn!
DÓMSMÁL „Ákvörðunin gengur eins
langt og harkalega og mögulegt er
og skerðir réttindi starfsmanns að
öllu leyti án nokkurrar málefna-
legrar ástæðu,“ segir í stefnu í máli
sem Landssamband eldri borgara
rekur vegna grunnskólakennara
sem sagt var upp því hún varð sjö-
tíu ára.
Málið snýst um konu sem sagt var
upp í Breiðholtsskóla í fyrravor.
„Ástæða starfslokanna var ein-
ungis sú að stefnandi væri orðin 70
ára gömul,“ segir í stefnunni. Upp-
sögnin byggi á lögum sem eigi við
um ríkisstarfsmenn. Það sé konan
ekki og því byggi uppsögnin ekki á
fullnægjandi lagagrundvelli.
Segir í stefnunni að aldur sé ekki
málefnalegt sjónarmið er komi að
störfum. „Aldur segir enda ekkert til
um það hversu hæfur viðkomandi
einstaklingur er til þess að sinna
tilteknu starfi. Það er því ómál-
efnalegt að ákveða að 70 ára fólk
geti ekki sinnt starfi af þeirri einu
ástæðu að það er orðið 70 ára.“
Jafnvel þótt heimilt væri að
skerða starfsréttindi, sem njóti
verndar stjórnarskrár sem eign,
þurfi að gæta meðalhófs. „Ákvörð-
unin gengur eins langt og harkalega
og mögulegt er og skerðir réttindi
starfsmanns að öllu leyti án nokk-
urrar málefnalegrar ástæðu,“ segir
í stefnunni. – gar / sjá síðu 6
Sjötug rekin og stefnir
Kona sem sagt var upp kennarastarfi í Breiðholtsskóla vegna aldurs í fyrra
stefnir borginni. Rekið sem prófmál af hálfu Landssambands eldri borgara.
Ástæða starfslok-
anna var einungis
sú að stefnandi væri orðin
70 ára gömul.
Úr stefnu fyrrverandi
kennara við Breiðholtsskóla
VIÐSKIPTI Íslenska fyrirtækið Ker-
ecis vinnur verðmæti fyrir um hálfa
milljón króna úr hverjum þorski, að
sögn Guðmundar Fertrams Sigur-
jónssonar forstjóra. Afurð Kerecis
er affrumað þorskroð sem er selt til
meðhöndlunar á þrálátum sárum.
Fyrirtækið vex hratt í Banda-
ríkjunum og Guðmundur segir við
Markaðinn að öflugt sölu- og mark-
aðsstarf sé lykillinn að árangri.
„Við erum ekki lengur tækni-
þróunarfyrirtæki heldur sölu- og
markaðsdrif ið f y rirtæk i með
öfluga vöruþróun. Kerecis er með
hundruð viðskiptavina og er orðið
þekkt á markaði. Ástæðan er öflugt
markaðsstarf, en ég held að margir
íslenskir frumkvöðlar klikki stund-
um á því.“ – þfh / sjá Markaðinn
Hálf milljón úr
hverjum þorski
STJÓRNSÝSLA Skýrsla Innri endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar um
Sorpu kemur út í dag. Hún verður
opinberuð að loknum stjórnarfundi
Sorpu. Upphaflega átti hún að koma
út 5. desember í fyrra en var frestað.
Tilefnið var 1,4 milljarða frávik frá
áætlun vegna framkvæmda í Álfs-
nesi. Birkir Jón Jónsson, stjórnarfor-
maður Sorpu, og Líf Magneudóttir
varaformaður hafa ekki svarað
ítrekuðum viðtalsbeiðnum. – boþa
Sorpuskýrsla
opinberuð í dag
Birkir Jón
Jónsson.
Kosningabíl Ef lingar var ekið um götur borgarinnar í gær og tók hann við atkvæðum félagsmanna sem starfa hjá borginni um verkfallsboðun. Fyrsta stopp var í leikskólanum Nóaborg
við Stangarholt. Það þótti mörgum viðeigandi því formaður félagsins er fyrrverandi starfsmaður á leikskólanum. Kosningunni lýkur á hádegi á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK