Fréttablaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 36
Svefn, eða öllu heldur skortur á honum, er dr. Erlu Björnsdóttur mikið hjartans mál þannig að hún nýtir sérfræðiþekk-ingu sína og öll tækifæri í hugsjónabaráttu sinni fyrir bættri svefnmenningu. „Þetta er bara samfélagslegt mein sem við þurfum að bregðast við og hugmyndin er að reyna að opna augu bæði almennings og fyr- irtækja, segir Erla um ráðstefnuna Svefn í Hörpu í haust. Erla sem er sálfræðingur með doktorspróf í líf- og læknavísind- um er ekki síst spennt fyrir því að hitta Matthew Walker, einn þekkt- asta svefnsérfræðing heims, á ráð- stefnunni. „Hann er bara poppstjarna í þessum heimi þannig að það er ótrúlega mikill heiður að fá hann til landsins,“ segir Erla um Har- vard-prófessorinn sem hefur slegið í gegn með bókinni Why We Sleep. Raunveruleg svefnþörf „Þessi bók hefur aldeilis farið sigurför um heiminn, verið á met- sölulistum úti um allt og opnað augu almennings fyrir mikil- vægi svefnsins sem mér hefur oft fundist vera hin gleymda grunn- stoð heilsunnar,“ segir Erla sem er nýbyrjuð að kenna valnámskeið við Háskólann í Reykjavík þar sem bók Walkers er lögð til grund- vallar. „Why We Sleep er mjög vís- indaleg á köf lum en hann nær vel til almennings með henni þótt það sé líka gaman að lesa hana sem vís- indamaður.“ Erla segir þó mestu máli skipta að Walker hafi tekist að koma mikilvægum skilaboðum áleiðis. „Þetta er auðvitað gríðarlega mikil- vægt og svo er hann bara algerlega frábær ræðumaður og ég held að þessi ráðstefna sé alveg einstakt tækifæri og klárlega það stærsta sem hefur verið gert í þessum málum fyrir almenning á Íslandi.“ Svefn eða dauði Erla segir Walker einfaldlega tala tæpitungulaust um hversu alvarleg áhrif það hefur að vera vansvefta. „Því miður sefur mjög stór hluti fólks allt of lítið í dag og við Íslend- ingar erum alveg sér á báti í þessu en samkvæmt nýjustu tölum segist um þriðjungur sofa sex tíma eða minna sem er bara orðinn hættu- lega lítill svefn sem eykur líkur á alls konar sjúkdómum, skerðir lífs- líkur og f leira. Mér finnst þetta svolítið sorg- legt vegna þess að þótt svefninn hafi sjaldan verið jafn mikið í umræðunni og maður finni að fólk er almennt meðvitaðra um að þetta skipti máli þá hafa þessar tölur aldrei verið eins svakalegar. Þarna er eitthvert misræmi í gangi sem við þurfum að vinna með og gera fólki grein fyrir því að af leiðingarnar birtast á svo mörgum sviðum í daglegu líf i. Þetta snýst ekki aðeins um að þú munir fá hjartaáfall eftir tuttugu ár, heldur líka bara hvernig þú ert að standa þig í vinnunni, hversu streitan er mikil, hvernig þér líður, hvernig þú tæklar vandamál og allt þetta dagsdaglega.“ Óþreytandi í svefnbaráttunni „Mér f innst mikilvægt að ef la fræðslu, koma þessu inn í námskrá og fræða almenning vegna þess að af leiðingarnar eru svo alvarlegar,“ segir Erla um þessa mikilvægustu og öf lugustu forvörn gegn and- legum og líkamlegum sjúkdómum. Erla bendir einnig á að fyrir- tæki ættu að sjá sér beinan hag í því að stuðla að bættum svefni starfsfólks þar sem lélegur svefn er ávísun á minni framleiðni, f leiri veikindadaga, aukna slysahættu og meira álag á heilbrigðisþjónustuna. „Þetta er rosalega dýrt vandamál innan fyrirtækja og eitt þeirra sem borgar sig hvað mest að vinna með vegna þess að inngripin skila svo miklum árangri.“ Vakandi að feigðarósi Erla segir áhugavert að samkvæmt Gallup-könnun segist önnur hver manneskja sofa of lítið en f lestir svari síðan neitandi þegar þeir eru spurðir hvort þeir séu að gera eitt- hvað til að viðhalda góðum nætur- svefni. „Það er erfitt að breyta venjum en þegar maður finnur fyrir af leið- ingum svefnleysis þá er maður nú oft til í að leggja eitthvað á sig til að Fljótum illa sofin að feigðarósi Erla Björnsdóttir þreytist ekki á að minna á samfélagsmeinið sem svefnleysi er. Hún og Harvard-prófessorinn Matthew Walker ætla að freista þess að hrista doðann af fólki á ráðstefnu í Hörpu í haust. Prófessor Matthew Walker hefur slegið í gegn með bókinni Why We Sleep. NORDICPHOTOS/GETTY Erla fjallar sérstaklega um konur og svefn á ráðstefnunni í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Bókin sem vakti Bill Gates Microsoft-einvaldurinn Bill Gates hefur orðið fyrir álíka hugljómun og Arianna Huffing- ton og þakkar það alfarið Michael Walker og bókinni Why We Sleep. Gates hefur mælt eindregið með bókinni á öllum sínum miðlum og bloggi þar sem hann rekur hvernig hann lagði meðal annars grunninn að veldi sínu með löngum vinnu- dögum og vökum sem teygðu sig yfir allt að tvo sólarhringa. Eftir að hafa lesið bókina geri hann sér grein fyrir því hversu mikinn toll svefn- litlar næturnar tóku af honum og að svefn- leysi sé beinlínis ógn við andlega velferð og geti hreinlega stytt lífið. Gates segist þó alls ekki kokgleypa allar kenningar og hug- myndir Walkers en það breyti engu um að hann telji Why We Sleep mikilvæga og heillandi bók sem hann telur til einnar af þeim fimm bókum sem hann mælir eindregið með að fólk lesi á árinu. Svefnbyltingin Arianna Huffington, ritstjóri og einn stofnenda The Huff- ington Post, er í fremstu víglínu þeirra ríku, frægu og áhrifaríku sem beita sér í baráttunni fyrir bættum svefni. Eftir að hún áttaði sig á alvarleika hnignandi svefnmenningar á eigin líkama og huga skrifaði hún metsölu- bókina The Sleep Revolution. Í Svefnbyltingunni dregur Arianna skýrt fram að þegar fólk lítur á svefn sem tímasóun stefni það líkamlegri og and- legri heilsu í voða um leið og það grefur undan sjálfu sér í starfi og einkalífi. Hún segir ekkert minna en svefnbyltingu duga til þess að fólk geti náð stjórn á lífi sínu á ný. Þá beinir hún spjótum sínum að svefntöflubransanum og hvernig snjalltækjafíknin truflar svefn okkar. bæta svefninn. Sérstaklega þegar maður fer að finna hvað maður fær í staðinn.“ Erla bendir í þessu sambandi á að boðskapur Walkers hafi fengið jákvæðan hljómgrunn í viðskipta- lífinu og það muni um það þegar áhrifafólk, eins og nú síðast Bill Gates, stofnandi Microsoft, leggi sín lóð á vogarskálarnar. „Það hjálpar umræðunni mikið þegar Bill Gates stígur fram og segir að þetta sé áhrifamesta bók sem hann hefur lesið. Þetta kveikir í fólki og vekur áhuga og það er gaman þegar þetta fólk verður til þess að innan fyrirtækja vakni vitund um að það er ekki töff að vinna fram yfir miðnætti, sofa bara í fjóra tíma og vera svo búinn að svara tíu tölvupóstum klukkan sex á morgnana. Dyggðin liggur ekki í því og það er svefninn sem er bara algert lykilatriði. Arianna Huffington gerði náttúr- lega frábæra hluti og náði svolítið eyrum kvenna í viðskiptum með því að tala um þetta og núna kemur Bill Gates fram og talar sérstaklega um Matthew Walker sem er auð- vitað bara frábært.“ toti@frettabladid.is 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.