Fréttablaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 36
Svefn, eða öllu heldur skortur á honum, er dr. Erlu Björnsdóttur mikið hjartans mál þannig að hún nýtir sérfræðiþekk-ingu sína og öll tækifæri í
hugsjónabaráttu sinni fyrir bættri
svefnmenningu.
„Þetta er bara samfélagslegt
mein sem við þurfum að bregðast
við og hugmyndin er að reyna að
opna augu bæði almennings og fyr-
irtækja, segir Erla um ráðstefnuna
Svefn í Hörpu í haust.
Erla sem er sálfræðingur með
doktorspróf í líf- og læknavísind-
um er ekki síst spennt fyrir því að
hitta Matthew Walker, einn þekkt-
asta svefnsérfræðing heims, á ráð-
stefnunni.
„Hann er bara poppstjarna í
þessum heimi þannig að það er
ótrúlega mikill heiður að fá hann
til landsins,“ segir Erla um Har-
vard-prófessorinn sem hefur slegið
í gegn með bókinni Why We Sleep.
Raunveruleg svefnþörf
„Þessi bók hefur aldeilis farið
sigurför um heiminn, verið á met-
sölulistum úti um allt og opnað
augu almennings fyrir mikil-
vægi svefnsins sem mér hefur oft
fundist vera hin gleymda grunn-
stoð heilsunnar,“ segir Erla sem er
nýbyrjuð að kenna valnámskeið
við Háskólann í Reykjavík þar
sem bók Walkers er lögð til grund-
vallar. „Why We Sleep er mjög vís-
indaleg á köf lum en hann nær vel
til almennings með henni þótt það
sé líka gaman að lesa hana sem vís-
indamaður.“
Erla segir þó mestu máli skipta
að Walker hafi tekist að koma
mikilvægum skilaboðum áleiðis.
„Þetta er auðvitað gríðarlega mikil-
vægt og svo er hann bara algerlega
frábær ræðumaður og ég held að
þessi ráðstefna sé alveg einstakt
tækifæri og klárlega það stærsta
sem hefur verið gert í þessum
málum fyrir almenning á Íslandi.“
Svefn eða dauði
Erla segir Walker einfaldlega tala
tæpitungulaust um hversu alvarleg
áhrif það hefur að vera vansvefta.
„Því miður sefur mjög stór hluti
fólks allt of lítið í dag og við Íslend-
ingar erum alveg sér á báti í þessu
en samkvæmt nýjustu tölum segist
um þriðjungur sofa sex tíma eða
minna sem er bara orðinn hættu-
lega lítill svefn sem eykur líkur á
alls konar sjúkdómum, skerðir lífs-
líkur og f leira.
Mér finnst þetta svolítið sorg-
legt vegna þess að þótt svefninn
hafi sjaldan verið jafn mikið í
umræðunni og maður finni að fólk
er almennt meðvitaðra um að þetta
skipti máli þá hafa þessar tölur
aldrei verið eins svakalegar.
Þarna er eitthvert misræmi í
gangi sem við þurfum að vinna
með og gera fólki grein fyrir því
að af leiðingarnar birtast á svo
mörgum sviðum í daglegu líf i.
Þetta snýst ekki aðeins um að þú
munir fá hjartaáfall eftir tuttugu
ár, heldur líka bara hvernig þú ert
að standa þig í vinnunni, hversu
streitan er mikil, hvernig þér líður,
hvernig þú tæklar vandamál og allt
þetta dagsdaglega.“
Óþreytandi í svefnbaráttunni
„Mér f innst mikilvægt að ef la
fræðslu, koma þessu inn í námskrá
og fræða almenning vegna þess að
af leiðingarnar eru svo alvarlegar,“
segir Erla um þessa mikilvægustu
og öf lugustu forvörn gegn and-
legum og líkamlegum sjúkdómum.
Erla bendir einnig á að fyrir-
tæki ættu að sjá sér beinan hag
í því að stuðla að bættum svefni
starfsfólks þar sem lélegur svefn
er ávísun á minni framleiðni, f leiri
veikindadaga, aukna slysahættu og
meira álag á heilbrigðisþjónustuna.
„Þetta er rosalega dýrt vandamál
innan fyrirtækja og eitt þeirra sem
borgar sig hvað mest að vinna með
vegna þess að inngripin skila svo
miklum árangri.“
Vakandi að feigðarósi
Erla segir áhugavert að samkvæmt
Gallup-könnun segist önnur hver
manneskja sofa of lítið en f lestir
svari síðan neitandi þegar þeir eru
spurðir hvort þeir séu að gera eitt-
hvað til að viðhalda góðum nætur-
svefni.
„Það er erfitt að breyta venjum
en þegar maður finnur fyrir af leið-
ingum svefnleysis þá er maður nú
oft til í að leggja eitthvað á sig til að
Fljótum illa
sofin að
feigðarósi
Erla Björnsdóttir þreytist ekki á að minna
á samfélagsmeinið sem svefnleysi er. Hún
og Harvard-prófessorinn Matthew Walker
ætla að freista þess að hrista doðann af
fólki á ráðstefnu í Hörpu í haust.
Prófessor Matthew Walker hefur
slegið í gegn með bókinni Why
We Sleep. NORDICPHOTOS/GETTY
Erla fjallar sérstaklega um konur og svefn á ráðstefnunni í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Bókin sem vakti Bill Gates
Microsoft-einvaldurinn
Bill Gates hefur
orðið fyrir álíka
hugljómun og
Arianna Huffing-
ton og þakkar það
alfarið Michael
Walker og bókinni
Why We Sleep.
Gates hefur mælt
eindregið með
bókinni á öllum
sínum miðlum og
bloggi þar sem
hann rekur hvernig
hann lagði meðal
annars grunninn
að veldi sínu með
löngum vinnu-
dögum og vökum
sem teygðu sig yfir allt að tvo
sólarhringa.
Eftir að hafa lesið
bókina geri hann sér
grein fyrir því hversu
mikinn toll svefn-
litlar næturnar tóku af
honum og að svefn-
leysi sé beinlínis ógn
við andlega velferð
og geti hreinlega
stytt lífið.
Gates segist þó alls
ekki kokgleypa allar
kenningar og hug-
myndir Walkers en
það breyti engu um
að hann telji Why
We Sleep mikilvæga
og heillandi bók sem
hann telur til einnar
af þeim fimm bókum sem
hann mælir eindregið með að
fólk lesi á árinu.
Svefnbyltingin
Arianna Huffington, ritstjóri
og einn stofnenda The Huff-
ington Post, er í fremstu víglínu
þeirra ríku, frægu og áhrifaríku
sem beita sér í baráttunni fyrir
bættum svefni. Eftir að hún
áttaði sig á alvarleika hnignandi
svefnmenningar á eigin líkama
og huga skrifaði hún metsölu-
bókina The Sleep Revolution.
Í Svefnbyltingunni dregur
Arianna skýrt fram að þegar
fólk lítur á svefn sem tímasóun
stefni það líkamlegri og and-
legri heilsu í voða um leið og
það grefur undan sjálfu sér í
starfi og einkalífi.
Hún segir ekkert minna en
svefnbyltingu duga til þess að
fólk geti náð stjórn á lífi sínu á
ný. Þá beinir hún spjótum sínum
að svefntöflubransanum og
hvernig snjalltækjafíknin truflar
svefn okkar.
bæta svefninn. Sérstaklega þegar
maður fer að finna hvað maður fær
í staðinn.“
Erla bendir í þessu sambandi á
að boðskapur Walkers hafi fengið
jákvæðan hljómgrunn í viðskipta-
lífinu og það muni um það þegar
áhrifafólk, eins og nú síðast Bill
Gates, stofnandi Microsoft, leggi
sín lóð á vogarskálarnar.
„Það hjálpar umræðunni mikið
þegar Bill Gates stígur fram og segir
að þetta sé áhrifamesta bók sem
hann hefur lesið. Þetta kveikir í
fólki og vekur áhuga og það er
gaman þegar þetta fólk verður til
þess að innan fyrirtækja vakni
vitund um að það er ekki töff að
vinna fram yfir miðnætti, sofa bara
í fjóra tíma og vera svo búinn að
svara tíu tölvupóstum klukkan sex
á morgnana. Dyggðin liggur ekki í
því og það er svefninn sem er bara
algert lykilatriði.
Arianna Huffington gerði náttúr-
lega frábæra hluti og náði svolítið
eyrum kvenna í viðskiptum með
því að tala um þetta og núna kemur
Bill Gates fram og talar sérstaklega
um Matthew Walker sem er auð-
vitað bara frábært.“
toti@frettabladid.is
2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ