Fréttablaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 11
#iseyskyr
FYRIR FÓLK
Á FERÐINNI
Ísey skyr fæst nú í nýjum hentugum umbúðum til að
grípa með sér á ferðinni, eftir æfingu eða sem nesti.
Þórólfur Ingi Þórsson afreksíþróttamaður í langhlaupum
og Sonja Skarpaas Þórólfsdóttir
HANDBOLTI Lokaleikurinn í milli-
riðlinum fer fram í kvöld þegar
íslenska landsliðið mætir því
sænska. Svíar mættu Ungverjum í
kvöldleiknum í gær og var sá leikur
ekki búinn þegar Fréttablaðið rúll-
aði í prentsmiðjuna.
Það er ljóst að síðari hálf leikur-
inn tók alveg gríðarlega orku af leik-
mönnum íslands og stutt hvíld mun
ekki hjálpa neinum. Þó draumurinn
um Ólympíuleikana sé nánast f log-
inn út um gluggann og leikurinn í
raun upp á stoltið ættu nokkrir
lykilmenn að geta beitt sér að fullu.
Aron Pálmarsson tók til dæmis lítið
þátt í leik gærdagsins.
Svíar, undir stjórn Kristjáns
Andréssonar, voru búnir að ljúka
keppni fyrir töluverðu en þeir töp-
uðu fyrstu þremur leikjum sínum í
milliriðlinum. Þó hafa áhorfendur
haldið stuðningi sínum við lands-
liðið til streitu og er búist við að um
tíu þúsund manns mæti á leikinn
sem hefst klukkan 19.30. – bb
Kristján og
Svíar í dag
Alexander Petersson á fullri ferð á
mótinu í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HANDBOLTI „Síðari hálf leikurinn
var vel spilaður, bæði í vörn og sókn.
Það var jákvætt. En það situr í mér
þessi byrjun og ég er miður mín,“
sagði Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í samtali við RÚV
eftir leikinn. Það var eðlilega þungt í
honum hljóðið enda fyrri hálfleikur
einn sá versti í manna minnum. Og
það gegn Noregi.
Aðspurður um hvað hafi hrein-
lega gengið á sagði Guðmundur –
eftir smá þögn: „Við þurfum að fara
yfir það og ræða það, liðið saman.
Það var greinilegt að menn voru
ekki tilbúnir að fara í þetta verkefni
eins og þurfti. Og þeir gengu á lagið
og komast í 7-0 og það á endanum
fór með þetta.“
Guðmundur henti þeim sem eiga
að kallast lykilmenn út og lét unga
og ferska fætur sprikla síðari hálf-
leikinn. „Við skiptum nánast um lið
og þá fara hlutirnir að ganga miklu
betur. Síðari hálfleikurinn var frá-
bær og við vinnum hann. Það var
jákvætt að við gáfumst ekki upp og
baráttan var til staðar.“ –bb
Miður sín eftir
byrjunina
Guðmundur var langt frá því að
vera sáttur. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ýmir Örn Gíslason komst lítt áleiðis
gegn Sander Sagosen og Magnus
Gullerud. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HANDBOLTI Tap Íslands gegn Nor-
egi í gær þýðir að draumur íslenska
liðsins um að fara á Ólympíuleik-
ana í Tókýó næsta sumar er úr sög-
unni. Íslenska liðið tapaði 31-28 en
martraðar fyrri hálf leikur fór með
leik okkar manna.
Norska liðið skoraði fjögur fyrstu
mörk leiksins og Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari íslenska liðsins,
neyddist til þess að grípa inn í og
taka leikhlé þegar einungis rúmar
tvær mínútur voru liðnar af leikn-
um. Bað hann leikmenn að fara
ekki að spila einhvern tralala bolta.
Leikhléið skilaði ekki tilætluðum
árangri og Norðmenn héldu áfram
að auka forystuna sem var orðin sjö
mörk þegar tæpar tíu mínútur voru
búnar. Aron Pálmarsson braut svo
ísinn fyrir íslenska liðið. Þetta var
eina mark Arons í leiknum sem var
tekinn af velli og horfði hann á rest-
ina af leiknum á bekknum. Leik-
menn íslenska liðsins náðu ekki
að þétta raðir sínar í vörninni og
Norðmenn skoruðu úr níu af fyrstu
tíu sóknum sínum í leiknum.
Guðmundur freistaði þess að
stappa stálinu í leikmenn sína og
hleypa nýju blóði í liðið þegar hann
tók annað leikhlé sitt um miðbik
fyrri hálf leiks. Hann henti byrj-
unarliðinu á bekkinn og ungu gutt-
arnir tóku við kef linu. Vissulega
slökuðu Norðmenn á en það má
ekki vanmeta þá ágætu staðreynd
að Ísland vann síðari hálf leikinn.
Viktor Gísli varði níu skot og tvö af
fimm vítaköstum sem hann fékk á
sig.
Íslenska liðið gerði sig gildandi
um miðjan seinni hálf leikinn og
kom bilinu niður í þrjú mörk en
nær komust Strákarnir okkar ekki.
Norðmenn hafa unnið alla leiki
sína á mótinu. – hó, bb
Ólympíuleikarnir úr sögunni eftir martraðar fyrri hálfleik
2
mörk skoraði Ísland fyrstu
10 mínútur leiksins.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0