Fréttablaðið - 22.01.2020, Síða 31
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
22. JANÚAR 2020
Myndlist
Hvað? Leiðsögn
Hvenær? 12.15
Hvar? Gerðarsafn, Kópavogi
Brynja Sveinsdóttir sýningarstjóri
leiðir gesti um sýninguna Afrit
sem var opnuð síðasta föstudag.
Þar eru verk sjö samtímalista-
manna.
Orðsins list
Hvað? Vísindi á Norðurslóðum
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Oddi, Háskóla Íslands
Frásagnarhefð og efnisleiki lunda
og hvítabjarna.
Hvað? Er sigur í sjónmáli?
Hvenær? 13.00-16.15
Hvar? Grand hótel við Sigtún
Opið Málþing um áfengis- og
vímuefnaforvarnir á Íslandi.
Hvað? Fyrirlestur Lawrence Lessig
Hvenær? 16.00
Hvar? Veröld, hús Vigdísar
Lawrence Lessig, prófessor í
stjórnskipunarrétti við Harvard
háskóla heldur fyrirlesturinn:
Það sem bandaríska lýðræðis-
krísan segir okkur um lýðræði alls
staðar. Fyrirlesturinn fer fram á
ensku. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
Hvað? Húslestur í skammdeginu
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið Gerðu-
bergi
Rithöfundarnir Elísabet Jökuls-
dóttir og Jónína Leósdóttir lesa.
Frítt er inn og fólk hvatt til að taka
með sér handavinnuna.
TÓNLIST
Verk eftir Rakhmaninoff og
Gubaidulinu
Norðurljós í Hörpu
föstudaginn 17. janúar
Flytjendur: hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ungverska tónskáldið Györgi Ligeti
hélt einu sinni tæplega tíu mínútna
langt erindi um framtíð tónlistar-
innar. Hann stóð bara í pontunni og
sagði ekki neitt, en skrifaði nokkrar
fjarstæðukenndar tillögur til áhorf-
enda. Þetta fór ekki vel í þá, og eftir
töluverða háreysti var hann færður
burt með valdi.
Með þessum gerningi var Ligeti
að lýsa því yfir að framtíð tónlist-
arinnar er svo óljós að ekki er hægt
að segja neitt af viti um hana. Það
hefur samt oft verið gert.
Gott dæmi er þegar spáð var í
alfræðiriti um tónlist Rakhman-
inoffs að hún væri aðeins bóla
sem myndi springa og yrði öllum
gleymd í náinni framtíð. Þetta
var um miðja síðustu öld. Rakh-
maninoff hefur þó sjaldan verið
vinsælli. Um helgina voru f luttar
tvær kammertónsmíðar eftir hann
á sitthvorum tónleikunum. Verður
hér fjallað um þann fyrri, sem var
haldinn í Norðurljósasalnum í
Hörpu á föstudaginn.
Rakhmaninoff og Gubaidulina
Tónleikarnir voru í Föstudagsröð-
inni svokölluðu, sem er á vegum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Efnisskráin samanstóð af verki
Rakhmaninoffs og tónlist eftir Sofiu
Gubaidulinu, en þau tvö mynda
saman eitt af þemum vetrardag-
skrár Sinfóníunnar. Tvennir tón-
leikar verða í viðbót þar sem verk
þeirra verða f lutt. Að þessu sinni
var fókusinn á æskutónsmíðar,
sem voru Trio élegiaque nr. 1 eftir
Rakh maninoff og píanókvintett
eftir Gubaidulinu.
Sá fyrrnefndi var kornungur
þegar hann samdi tríóið, en hann
var samt strax búinn að finna
rödd sína sem tónskáld. Tónlistin
skartar dýrlegum melódíum og
töfrakenndum hljómum. Ísmeygi-
leg, grípandi byrjunin umbreytist
f ljótt í spennandi atburðarás með
ýmsum óvæntum uppákomum og
ávallt tignarlegum hápunktum.
Tríóið var einstaklega fallega leikið
af Nicola Lolli fiðluleikara, Sigur-
geiri Agnarssyni sellóleikara og
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara. Strengjaleikurinn
var munúðarfullur og tilfinninga-
þrunginn; píanóleikurinn mjúkur
en nákvæmur og alltaf sannfærandi
ljóðrænn. Samspilið var pottþétt og
heildarhljómurinn flottur.
Fullt af fjöri og húmor
Sömu sögu er að segja um f lutn-
inginn á píanókvintettinum eftir
Gubaidulinu. Anna Guðný lék á
píanó ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur
og Páli Palomares á fiðlur, Gregory
Aronovich á víólu og Bryndísi Höllu
Gylfadóttur á selló. Leikurinn var í
hvívetna tæknilega pottþéttur,
fullur af fjöri og húmor, snerpu og
skaphita.
Sjálf tónlistin var þó ansi ólík
því sem maður á að venjast frá
tónskáldinu. Gubaidulina er virk í
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni,
og tónlist hennar fjallar mikið um
trúhneigð mannsins og leitina að
sannleikanum. Hún er yfirleitt
alvörugefin og sjaldan auðveld
áheyrnar. Kvintettinn hér var hins
vegar aðgengilegt æskuverk og
saminn undir sterkum áhrifum af
Prókofíev og Sjostakóvitsj. Léttur,
öfgakenndur stíllinn skilaði sér full-
komlega í líflegri spilamennskunni.
Þau Rakhmaninoff og Gubaidul-
ina eru mjög ólík tónskáld og fátt
sem þau eiga sameiginlegt. Samt var
eitthvað hressandi við að heyra þau
svona hlið við hlið og hinir tónleik-
arnir í þessu þema eru því töluvert
tilhlökkunarefni. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Efnisskráin samanstóð af
spennandi andstæðum og flutningurinn
var ætíð fagmannlegur.
Grípandi æskuverk í föstudagsröðinni
Verk eftir Sofiu Gubaidulinu var flutt í Norðurljósasal Hörpu.
Fulltrúar launamanna í stjórn
Birtu lífeyrissjóðs
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að
taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2020 til 2022.
Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.9) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta
tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu
og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu
stjórnarmanna.
Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára
í stjórn sjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu
framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið
valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 13. febrúar 2020.
• vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð.
• ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar.
• vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv.
31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim
kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum
lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar.
• Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir
uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu.
Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og
sjóðinn má finna á vefnum birta.is
ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU
Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta@birta.is I birta.is
DAG HVERN LESA
96.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP APR-JÚN 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0