Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.12.2019, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr. JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr. JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr. jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF TILBOÐ Á VÖLDUM SÝNINGARBÍLUM ERUM Í SAMNINGSSTUÐI JEEP© WRANGLER TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 11.590.000 KR. JEEP© GRAND CHEROKEE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 9.990. 00 KR. JEEP© CHEROKEE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 7.490.000 KR. JEEP© RENEGADE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 4. 90. 0 KR. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is 1 Sjálfstæðir listamenn borga fyrir að vinna Fréttaskýring um stöðuna á sjálfstæðu senunni. 2 Það mátti engu muna, sek-úndum síðar var húsið orðið alelda Íslensk fjögurra manna fjöl- skylda missti aleiguna í eldsvoða í Noregi á föstudaginn. 3 Þrífa upp eftir fylgjendur sína eftir að eggjum var kastað í vitlaust hús Aron Már, Herra Hnetusmjör og Birgir Hákon þrifu eggjaslettur af húsi sem þeir töldu vera heimili ritstjóra DV. 4 Fimm manns handteknir vegna mannsláts í Úlfarsár- dal Maður féll af svölum og var úrskurðaður látinn. 5 Jólasveinar með rímnaflæði í jólabaði við Mývatn Jóla- sveinarnir fóru í sitt árlega jólabað við Mývatn í gær. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að auka gagnsæi og tryggja dreift eignarhald. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SJÁVARÚTVEGUR „Það er alveg á hreinu að frumkvæðið mun ekki koma frá ríkisstjórnarf lokkunum eða Miðflokknum í þessum málum. Þess vegna þarf að halda þeim við efnið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisn- ar, um nýtt frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Frumvarpinu sem f lutt er af þingf lokki Viðreisnar auk Pírat- ans Helga Hrafns Gunnarssonar og Helgu Völu Helgadóttur þingkonu Samfylkingarinnar, er ætlað að auka gagnsæi fjárhagsupplýsinga sjávarútvegsfyrirtækja. Þannig er lagt til að útgerðarfyrir- tæki sem ráða yfir einu prósenti eða meira af heildaraflahlutdeild skuli skráð á markað. Einnig er lagt til að skilgreining á tengdum aðilum verði rýmkuð verulega frá því sem nú er og að hámark af lahlutdeildar sem einstakur aðili eða tengdir aðilar geta ráðið yfir verði afmarkað með skýrari hætti. Þá er í frumvarpinu að finna ákvæði til að tryggja dreift eignarhald félaga sem fara yfir átta prósent heildaraflahlutdeildar. Þorgerður Katrín segir að frum- varpið hafi verið í vinnslu í nokk- urn tíma en mikilvægt sé að koma því á dagskrá nú enda um grund- vallarmál að ræða. „Við erum ekki bara að tala eins og mér finnst ríkisstjórnin vera að gera, heldur erum við að koma með tillögur. Það getur vel verið að þær verði óþægilegar og það verði mikið uppnám hjá útgerðinni. En þetta er algjörlega nauðsynlegt ef við eigum að byggja upp traust og trúverðug- leika á þessari mikilvægu atvinnu- grein,“ segir Þorgerður Katrín. Hún segir að krafan um gegnsæi eignarhalds þýði ekki endilega að verið sé að koma í veg fyrir sam- þjöppun. Verið sé að koma í veg fyrir að eignarhald stórra fyrir- tækja sé bara á höndum örfárra einstaklinga og fjölskyldna. „En þetta er prinsippmál og þannig verða allir f lokkar að nálg- ast þetta. Ef menn vilja bara óbreytt ástand þá skulu þeir bara segja það skýrt og skorinort. Þá eru farnar að myndast ákveðnar skýrar línur í íslenskri pólitík.“ Þá komi til greina að endurskoða nákvæmlega hvar mörk eignar- halds eigi að liggja varðandi skrán- ingarskyldu á markað. Frumvarpið gerir ráð fyrir aðlögunartíma fyrir þau fyrirtæki sem í hlut eiga. „Ef við komumst að samkomulagi þvert á f lokka um þetta prinsipp getum við auðvitað farið í að ræða hvort hlutfallið eigi að vera minna eða meira. En þetta er algjört prin- sipp að þegar menn eru komnir yfir tiltekinn hluta af auðlindinni verði menn að skrá fyrirtækið á markað.“ Þorgerður bendir einnig á að skil- greiningin á tengdum aðilum sé of óljós í dag. Það hafi meðal annars valdið Fiskistofu og eftirlitsaðilum erfiðleikum. „Samhliða þessu þarf auðvitað að breyta auðlindaákvæðinu í stjórnarskránni. Mér sýnist núna stóri slagurinn fara að standa um það. Fólk er farið í hefðbundnar skotgrafir og það má greinilega ekki breyta miklu.“ sighvatur@frettabladid.is Nauðsynlegar tillögur til að byggja upp traust á greininni Þingflokkur Viðreisnar, auk þingmanns Pírata og Samfylkingarinnar, hefur lagt fram frumvarp á Al- þingi um stjórn fiskveiða. Vilja auka gagnsæi, tryggja dreift eignarhald stærri fyrirtækja og afmarka skýrar hámarks aflahlutdeild. Formaður Viðreisnar segir að samhliða þurfi að breyta stjórnarskránni. Ef menn vilja bara óbreytt ástand þá skulu þeir bara segja það skýrt og skorinort. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar FJÖLMIÐLAR Frumvarp mennta- málaráðherra um styrki til einka- rekinna fjölmiðla er á dagskrá þingfundar í dag. Verði dagskrá þingfundar tæmd mælir ráðherra fyrir málinu og fer það svo til með- ferðar í allsherjar- og menntamála- nefnd. Gera má ráð fyrir að óskað verði eftir umsögnum um málið og það svo tekið aftur til meðferðar í nefndinni að loknu jólaleyfi. Í frumvarpinu er kveðið á um endurgreiðslu til einkarekinna fjöl- miðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllun um samfélagsleg mál- efni. Samkvæmt frumvarpinu getur hlutfall endurgreiðslu orðið að hámarki 18 prósent af kostnaði, þó ekki hærri en sem nemur fimmtíu milljónum króna. Ekki hefur verið eining um málið í stjórnarliðinu og hefur málið ítrekað strandað í þingflokki Sjálf- stæðisf lokksins. Í upphaf legu frumvarpi ráðherrans var gert ráð fyrir endurgreiðslu á allt að 25 pró- sentum kostnaðar. Talan var svo lækkuð niður í 20 prósent. Í því frumvarpi sem lagt var fram fyrir helgi er, sem fyrr segir, aðeins gert ráð fyrir að hlutfall endurgreiðslu verði 18 prósent. Þegar er gert ráð fyrir endur- greiðslu til einkarekinna fjölmiðla í fjárlögum fyrir næsta ár sem sam- þykkt voru í lok nóvember. Er þar gert ráð fyrir 400 milljóna útgjalda- svigrúmi til stuðnings við einka- rekna fjölmiðla. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar næst- komandi og taki til kostnaðar sem fellur til frá og með rekstrarárinu 2019. Verði frumvarpið samþykkt snemma á vorþingi mun það að óbreyttu hafa afturvirkt gildi að þessu leyti. – aá Lilja mælir fyrir frumvarpi um fjölmiðla á Alþingi í dag Lilja kynnti áform um stuðning við fjölmiðla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.