Fréttablaðið - 09.12.2019, Blaðsíða 6
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Gerðu kjarakaup
fyrir áramót
Volkswagen Transporter
Frá 3.991.935 án vsk
Tilboðsverð frá 3.540.000 kr. án vsk.
Volkswagen Crafter
Frá 5.548.387 án vsk
Tilboðsverð frá 4.830.000 kr. án vsk.
Traustir vinnufélagar
Volkswagen Amarok
Frá 8.190.000 m/vsk
Tilboðsverð frá 7.490.000 kr. m/vsk.
Volkswagen Caddy
Frá 2.766.129 án vsk
Tilboðsverð frá 2.400.000 kr. án vsk.
*Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is.
Nokkur eintök
í boði
Sanna Marin tekur við embætti í
vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY
FINNLAND Sanna Marin verður næsti
forsætisráðherra Finnlands en hún
var í gær valin af flokksráði Jafnaðar-
mannaflokksins til að gegna emb-
ættinu. Flokkurinn leiðir ríkisstjórn
fjögurra flokka sem tók við völdum í
júní síðastliðnum.
Antti Rinne, fráfarandi forsætis-
ráðherra, sagði af sér embætti í síð-
ustu viku eftir vantraustsyfirlýsingu
Miðflokksins.
Marin, sem fékk 32 atkvæði gegn
29 atkvæðum keppinautar síns,
sagði að mikil vinna væri fram
undan við að byggja upp traust. Hún
sagði að stjórnarsáttmálinn héldi
flokkunum saman.
Sanna Marin, sem er 34 ára, verður
yngsti forsætisráðherrann í sögu
Finnlands. Hún hefur setið á þingi
frá árinu 2015 og var samgönguráð-
herra í ríkisstjórn Rinne. – sar
Finnar fá 34 ára
forsætisráðherra
BRETLAND Forskot Íhaldsf lokksins
á Verkamannaf lokkinn mælist
níu prósentustig samkvæmt nýrri
könnun sem BMG gerði fyrir dag-
blaðið The Independent og birt var
í gær. Kosið verður til neðri deildar
breska þingsins næstkomandi
fimmtudag.
Samkvæmt könnuninni fengi
Íha ldsf lok k u r inn 41 prósent
atkvæða sem er tveimur prósentu-
stigum meira en í könnun sem
BMG gerði í lok nóvember. Verka-
mannaf lokkurinn mælist nú með
32 prósent sem er einu prósentu-
stigi minna en í síðustu könnun.
Brexit-f lokkurinn mælist áfram
með fjögur prósent.
Boris Johnson, forsætisráðherra
og leiðtogi Íhaldsf lokksins, ritaði
opið bréf þar sem hann segir kosn-
ingarnar á fimmtudaginn sögu-
legar. Þar gefist Bretum tækifæri
til að halda áfram eftir Brexit.
Johnson vildi ekki svara því í
samtali við Sky-fréttastofuna hvort
hann myndi segja af sér embætti
forsætisráðherra ef f lokkur hans
næði ekki meirihluta í neðri deild
þingsins.
Þá ítrekaði hann að samkvæmt
Brexit-samningi sínum yrði ekkert
eftirlit með vöruf lutningum til og
frá Norður-Írlandi. Það væri rangt
sem fram kæmi í minnisblaði fjár-
málaráðuneytisins sem var lekið
að sú yrði raunin.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaf lokksins, segir hins vegar
að kosningarnar séu tækifæri til að
kjósa von. Hann bjóði upp á metn-
aðarfyllstu áætlunina til að breyta
samfélaginu í áratugi.
Skuggafjármálaráðherra Verka-
mannaf lokksins, John McDonnell,
sagði í samtali við BBC að f lokkur-
inn ætlaði að umbreyta hagkerfinu
fengi hann til þess umboð. Mark-
miðið væri að efnahagskerfið virk-
aði fyrir alla sem þýddi að breyta
yrði formi kapítalismans.
Kosningabaráttan er nú komin á
lokametrana og í gær lögðu f lokk-
arnir áherslu á lykilatriði í kosn-
ingastefnu sinni. Skilaboð Íhalds-
f lokksins snerust um loforð um
upptöku ástralska kerfisins í inn-
f lytjendamálum. Þannig yrði sér-
stöku stigakerfi beitt til að koma
stjórn á innf lutning ósérhæfðs
vinnuaf ls.
Verkamannaf lokkurinn minnti
á áætlun sína um velferðarmál þar
sem í boði yrði ókeypis persónuleg
velferðarþjónusta fyrir aldraða. Þá
yrði 10 milljörðum punda aukalega
varið til velferðarmála til 2024.
Frjálslyndir demókratar, sem
mældust með 14 prósenta fylgi í
könnun BMG, héldu á lofti áætlun
sinni um svæðisbundna jöfnun.
Þannig yrði allt 50 milljörðum
punda varið í fjárfestingar í inn-
viðum utan Lundúna.
Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska
þjóðarf lokksins, telur að framtíð
Skotlands sé undir í kosningunum.
Hún biðlar til kjósenda að fylkja
sér að baki f lokknum til að f lýja
Brexit, vernda heilbrigðiskerfið og
setja framtíð Skotlands í hendur
Skota sjálfra.
Þótt umræða um Brexit haf i
verið áberandi í kosningabarátt-
unni eru fjölmörg önnur mál kjós-
endum ofarlega í huga. Þannig
stóð sjónvarpsstöðin Channel 4
fyrir kappræðum þar sem fulltrúar
f lokkanna ræddu um allt nema
Brexit. Þar var meðal annars rætt
um heilbrigðismál, velferðarmál,
efnahagsmál og loftslagsmál.
sighvatur@frettabladid.is
Íhaldsflokkurinn með gott
forskot fyrir lokasprettinn
Kosið verður til neðri deildar breska þingsins næstkomandi fimmtudag. Íhaldsflokkur Boris Johnson
eykur forskot sitt á Verkamannaflokkinn samkvæmt nýrri könnun sem kynnt var í gær. Forsætisráð-
herrann talar um sögulegar kosningar. Formaður Verkamannaflokksins segir hægt að kjósa vonina.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, á kosningafundi í Llanfairfechan í Wales. NORDICPHOTOS/GETTY
Kosningarnar sem fram
fara í skugga Brexit verða
næstkomandi fimmtudag.
BANDARÍKIN Stjórnvöld í Íran og
Bandaríkjunum höfðu á laugardag
með sér fangaskipti. Það voru yfir-
völd í Sviss sem höfðu milligöngu
um aðgerðina.
Íranir slepptu bandaríska ríkis-
borgaranum Xiyue Wang sem var í
haldi í þrjú ár grunaður um njósnir.
Bandaríkjamenn létu Íranann
Massoud Soleimani lausan en hann
sætti ákæru vegna brota á refsiað-
gerðum Bandaríkjanna gegn Íran.
Reuters-fréttastofan hafði eftir
háttsettum bandarískum embættis-
manni að vonir stæðu til að lausn
Wangs myndi leiða til þess að fleiri
Bandaríkjamönnum yrði sleppt úr
haldi Írana. Þetta væri merki um að
stjórnvöld í Teheran væru reiðubúin
að ræða ýmis málefni.
Samskipti ríkjanna hafa farið
versnandi að undanförnu. – sar
Höfðu með sér
fangaskipti
9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð