Fréttablaðið - 09.12.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Þetta er
verulegt og
vaxandi
áhyggju-
efni enda
er atvinnu-
vegafjár-
festing
grunnur
að verða-
mæta-
sköpun
framtíðar-
innar.
Þá er almennt
heilbrigði og
lýðheilsa
betri mæling
á þörf innan
heilbrigðis-
kerfisins en
landsfram-
leiðsla. 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀
䔀爀 樀攀瀀瀀椀渀渀 琀椀氀戀切椀渀渀 樀氀愀昀爀椀㼀
猀琀愀爀琀 昀礀爀椀爀 樀攀瀀瀀愀渀渀 瘀攀琀甀爀嘀攀氀搀甀 爀甀最最琀
䴀氀甀洀 ∠ 匀欀椀瀀琀甀洀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀
Bryndís
Haraldsdóttir
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Það er ýmislegt sem við stjórnmálamenn erum gagnrýnd fyrir, stundum með réttu og stundum með röngu. Nú heyrist því kastað fram að þjóð-
kjörnir fulltrúar fari ekki að vilja þjóðarinnar og vísað
til þess að Ísland verji 8,3% af vergri landsframleiðslu
(VLF) til heilbrigðismála samkvæmt því sem kemur
fram í nýrri skýrslu OECD en meðaltal OECD-ríkja er
8,8 prósent og öll hin Norðurlöndin eru yfir 9%.
Samanburðir OECD eru oft ágætir til síns brúks en
geta aldrei verið einhvers konar alfa omega á hvort við
séum að standa okkur í viðkomandi málaflokki. Að
halda slíku fram eru rugludallarök.
Í fyrsta lagi segir þessi samanburður auðvitað ekkert
um gæði heldur eingöngu hversu háu hlutfalli af VLF er
varið í heilbrigðismál. Landsframleiðsla sveiflast í takt
við efnahagsástandið hverju sinni. Þörfin á fjármunum
í heilbrigðiskerfið er í engu samræmi við efnahags-
sveiflur nema ef vera skyldi í öfuga átt og því ætti
heilbrigðiskerfinu að vera hlíft við niðurskurði þegar
illa árar. Fjárþörf kerfisins hlýtur frekar að vera í takt
við aldurssamsetningu þjóðarinnar þar sem eldra fólk
notar heilbrigðisþjónustu oftar en yngra. Þá er almennt
heilbrigði og lýðheilsa betri mæling á þörf innan heil-
brigðiskerfisins en landsframleiðsla.
OECD færði okkur PISA-niðurstöður um daginn
en þar kemur ýmislegt áhugavert fram. Skólakerfið
stendur sig vel á ákveðnum sviðum en því miður miðar
okkur ekki upp á við í lesskilningi. Það er áhyggju-
efni og ber að taka alvarlega. En það er líka mæling
á því hvernig íslensk börn standa í samanburði við
börn í öðrum löndum. Hlutfall af VLF sem varið er til
menntamála segir ekkert um raunverulega stöðu.
Hvernig stendur íslenskt heilbrigðiskerfi sig í saman-
burði við önnur lönd, hversu fljótt og vel læknar kerfið
þá sjúku? Hvernig er lýðheilsa þjóðarinnar í saman-
burði við aðrar þjóðir? Hvernig líður sjúklingum í
okkar heilbrigðiskerfi í samanburði við nágrannalönd-
in? Hversu ánægð erum við með þjónustu kerfisins?
Ég held að þessar spurningar og svör við þeim þurfi
að liggja til grundvallar við alla ákvarðanatöku um
hvar megi efla það mikilvæga kerfi sem heilbrigðis-
kerfið er.
Hvernig mælum við gæði?
Þótt við siglum nú inn í samdráttarskeið er ágætt að hafa það hugfast að þjóðarbúið hefur aldrei staðið styrkari fótum. Tvær fréttir í liðinni viku eru til marks um það. Þannig nema eignir lífeyrissjóðanna nú yfir 5.000 milljörðum, sem
jafngildir nærri 180 prósentum af landsframleiðslu, og
þá heldur erlend staða þjóðarbúsins áfram að batna og
var í lok þriðja ársfjórðungs jákvæð um 714 milljarða, eða
sem nemur um fjórðungi af landsframleiðslu, og hefur
aldrei mælst sterkari. Fáar þjóðir í Evrópu geta státað af
slíkri stöðu. Árið hefur verið lífeyrissjóðunum, sem hafa
það hlutverk að ávaxta sparnað allra landsmanna, afar
hagfellt og útlit er fyrir að raunávöxtun stærstu sjóðanna
verði vel yfir tíu prósentum. Þar munar mestu um miklar
verðhækkanir á erlendum hlutabréfum.
Vægi erlendra eigna í eignasöfnum lífeyrissjóðanna
hefur stóraukist. Eftir að hafa verið læstir á bak við fjár-
magnshöft í átta ár hafa erlendar eignir þeirra aukist
um þriðjung frá 2017 og eru nú um 30 prósent af heildar-
eignum. Æskilegt er að hlutfallið verði að lágmarki um 50
prósent til lengri tíma litið. Með sama framhaldi, þar sem
meirihluta af árlegum iðgjöldum er ráðstafað til erlendra
fjárfestinga, er ekki langt í að það markmið náist. Það er
ekki aðeins skynsamlegt út frá sjónarmiðum um áhættu-
dreifingu, heldur einnig til að koma í veg fyrir neikvæðar
efnahagslegar afleiðingar þegar lífeyristaka eftirstríðs-
kynslóðarinnar hefst. Iðgjaldagreiðslur til þeirrar kyn-
slóðar munu þá setja þrýsting á greiðslujöfnuðinn. Slík
uppbygging á erlendu eignasafni lífeyrissjóðanna þarf
að haldast í hendur við innflæði erlends fjármagns til að
lágmarka áhrifin á gengisstöðugleika.
Þessi þróun er að verða á sama tíma og bankakerfið er
að skreppa saman. Eignir lífeyrissjóðanna eru nú meiri
en bankanna og þeir orðnir umfangsmestu leikendurnir
í íslensku fjármálakerfi. Fyrirséð er að bilið mun halda
áfram að breikka. Þunginn í fjármagnskerfinu, eins og
seðlabankastjóri nefndi í erindi sínu á SFF-deginum í lok
síðasta mánaðar, er að færast frá bönkum til lífeyrissjóða.
Við sjáum þetta í stórauknum sjóðfélagalánum á síðustu
árum – í október námu þau 14 milljörðum og hafa aldrei
verið meiri í einum mánuði – en ástæða er til að ætla að
sjóðirnir komi í ríkara mæli að fjármögnun fyrirtækja,
einkum þeirra stærri, þegar þau fara að nýta sér meira
skuldabréfamarkaðinn til að sækja sér lánsfé.
Til skemmri tíma er samt hætt við því að þetta muni
ekki ganga svona snurðulaust fyrir sig. Stífar eiginfjár-
kvaðir og háir sértækir skattar hafa valdið því að sumir
bankar eru að minnka efnahagsreikning sinn, sem
birtist í útlánasamdrætti og yfirlýstri stefnu Arion um
að minnka fyrirtækjalánasafn sitt um fimmtung á einu
ári. Á sama tíma eru lífeyrissjóðir að horfa út fyrir land-
steinana og því spurning um getu þeirra til að taka við af
bankakerfinu. Hvaðan á þá fjármagnið að koma? Hefð-
bundin atvinnuvegafjárfesting hefur skroppið saman
sex ársfjórðunga í röð og óvíst hvenær hún mun taka við
sér. Þrátt fyrir vaxtalækkanir hefur því þrengt að aðgengi
fyrirtækja að lánsfé. Þetta er verulegt áhyggjuefni, enda
er atvinnuvegafjárfesting grunnur að verðmætasköpun
framtíðarinnar, sem stjórnvöld geta ekki horft á aðgerða-
laus mikið lengur. Kerfið er stíflað.
Áhyggjuefni
Hin útvöldu
Loftslagsráðstefna SÞ fer nú fram
í Madríd. Auk umhverfisráð-
herra fara þangað fjórir þing-
menn. Þar á meðal Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson og Sigríður
Á. Andersen. Þessi sami Sig-
mundur og nýlega skrifaði grein í
erlent tímarit þar sem hann sagði
að bráðnun jökla á Íslandi væri
ekkert vandamál. Já, og þessi
sama Sigríður og nýlega sakaði
Umhverfisstofnun um að stunda
falsfréttir við framsetningu á
tölfræði. Sigmundur hefur varað
við áhrifunum sem umræðan
hafi á börn. Vonandi hittir hann
Gretu Thunberg og útskýrir að
það sé ekkert að óttast.
Tækifærismennska
Mikill viðsnúningur hefur orðið
hjá dómsmálaráðherra um meint
fordæmisgildi Landsréttarmáls-
ins. Þótt mögulegt fordæmis-
gildi hafi verið meðal helstu
röksemda fyrir endurskoðun
yfirdeildar MDE hefur ráðherra
blásið á það nú þegar Pólverjar
hafa lýst stuðningi við mannrétt-
indabrot íslenskra stjórnvalda.
Þótt þeir telji íslenska málið
mikilvægt fyrir framtíð slíkra
brota í Evrópu snýr ráðherra frá
fyrri áherslum og segir málið
ekkert fordæmisgildi hafa fyrir
Evrópu. Hvað er þá eftir af mikil-
vægi endurskoðunar annað er
sérhagsmunir laskaðra stjórn-
málamanna?
sighvatur@frettabladid.is
adalheidur@frettabladid.is
9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN