Fréttablaðið - 09.12.2019, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Sími: 558 1100
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður Skeiði 1
www.husgagnahollin.is
V
E F
V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
STÓLA
TAX
FREE
* Taxfree tilboðið gildir af öllum stólum nema frá SKOVBY
og sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Allir stólar á taxfree tilboði*
9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Steinþór Helgi hefur lengi verið viðloðandi spurningakeppnir og djammið. MYNDIR/OWEN FIENE
ÞEMAÐ ER DJAMMIÐ,
EN NOTKUN ORÐSINS
ER Í MJÖG VÍÐUM SKILNINGI.
FRAMVINDA MANNKYNS- OG
MENNINGARSÖGUNNAR HEFUR
RÁÐIST AF TILVILJUNARKENND-
UM VIÐBURÐUM SEM HAFA ÁTT
SÉR STAÐ Á DJAMMINU.
Nú í kvöld fer fram fyrsta pöbbkvisið, e ð a b a r s v a r i ð , á Rönt ge n v ið Hver f isgöt u , en því stjórnar einn
þeirra sem reka staðinn, Stein
þór Helgi Arnsteinsson. Hann er
enginn aukvisi þegar kemur að
spurningakeppnum, enda vann
hann Gettu betur með liði Borgar
holtsskóla árið 2005. Hann var
síðar dómari og samdi spurningar
fyrir keppnina í heil f jögur ár,
fyrst ásamt Margréti Erlu Maack
og seinni tvö árin með Bryndísi
Björgvinsdóttur.
Steinþór hefur stundað pöbb
kvisa bæjarins í árafjöld. Hann
gegndi stundum hlutverki spyrils
á Grand Rokk og hélt svo utan
um pöbbkvis á skemmtistaðnum
sáluga Dolly. Það var því einróma
samkomulag þeirra sem eiga og
reka Röntgen að Steinþór Helgi sæi
um fyrsta pöbb kvisið.
Fyrst og fremst skemmtiefni
„Ég hef verið mjög reglulega
óreglulega með pöbbkvis. Á
Grand Rokk í gamla daga
og Húrra oft líka. Svo
hef ég náttúrulega
verið viðloðandi
G e t t u b e t u r
frá því í fram
h a l d s s k ó l a ,“
segir Steinþór
Helgi.
Hann segir það að semja
spurningar og halda utan um
pöbbkvis vera ákveðið list
form.
„Það að setjast niður
og reyna að setja saman
svona spurningar, það
er já, ákveðið listform.
Þetta er náttúrulega fyrst og fremst
skemmtiefni.“
Hann segir að pöbbkvisið á
Röntgen vera með nokkuð klass
ísku sniði en þema kvöldsins í
kvöld er einfaldlega djammið.
„Við reynum jú eitt
hvað að k r ydd a
upp á formið.
Þemað er djammið, en notkun
orðsins er í mjög víðum skilningi.
Framvinda mannkyns og menn
ingarsögunnar hefur ráðist af til
v iljunarkenndum v iðbu rðum
sem hafa átt sér stað á djamminu.
Það mun ekkert saka samt að vita
svona helstu grundvallarhluti
um íslenska djammið. Ég mun
samt alveg ferðast um víðan völl
í spurningum mínum en þetta
verður svona stefið í gegn,“ segir
Steinþór Helgi.
Þeir alfróðustu vinna ekki alltaf
Hann segir ekkert neglt niður um
hve oft pöbbkvisið verði haldið,
en stefnan sé að hafa það í það
minnsta einu sinni í mánuði.
„Við erum enn að móta þetta.
Svo er planið að reyna að fá ein
hverjar kanónur til þess að vera
með okkur. Það var svona smá
krafa meðeigenda minna að ég sæi
um fyrsta kvöldið, ekkert mál að
verða við því kalli.“
Hann segir þemað eiga vel við.
„Já, það helst vel í hendur við
pöbbk vis, djammið. Þetta
snýst náttúruleg smá um
að vera blekaður, helst að
enda í blakkáti,“ segir
hann og hlær. „Nei,
nei, það ætti bara að
hjálpa fólki. Það eru
ekki endilega þeir
alfróðustu sem
v i n n a . H i n i r
d j ö m m u ð u
eiga líka séns,
alveg eins og í
l íf inu,“ seg ir
Steinþór Helgi.
Pöbbkvisið fer fram á efri hæð
Röntgen við Hverfisgötu 12. Tveir
eru í hverju liði og vegleg verðlaun
í boði. steingerdur@frettabladid.is
Pöbbkvis er
ákveðið listform
Í kvöld fer fram fyrsta pöbbkvisið á Röntgen við Hverfisgötu.
Spyrillinn er Steinþór Helgi sem áður vann, samdi spurningar og
dæmdi í Gettu betur. Þema fyrsta kvöldsins er djammið.