Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 201928 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein „Með samþykkt breytinga á lög- um um dýrasjúkdóma og fleira og þingsályktunartillögu um aðgerða- áætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, er Ísland fyrsta land- ið í heiminum sem setur á hreint og klárt bann við dreifingu mat- væla sem sýkt eru af salmonellu og kampýlóbakter og sem inni- halda ákveðnar tegundir sýklalyfja- ónæmra baktería,“ segir Þórar- inn Ingi Pétursson varaþingmað- ur Framsóknarflokks. Alþingi sam- þykkti lagabreytinguna skömmu fyrir þinglok í síðustu viku. Þóra- inn bætir því við að í húfi sé vernd- un búfjárstofna, varnir gegn dýra- sjúkdómum og matvælaöryggi. „Ísland er núna í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis,“ segir Þórarinn Ingi; „og íslenskir bændur óttast ekki samkeppni erlendis frá, þar sem hún er á jafnréttisgrunni. Það er lykilatriði og allt tal um eitthvert annað er bara rangt. Á grundvelli lýðheilsusjónarmiða munu íslensk stjórnvöld koma í veg fyrir dreif- ingu matvæla sem í greinast sýkla- lyfjaónæmar bakteríur. Þetta gerist með banni við dreifingu tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería í mat- vælum að undangenginni greiningu á stöðunni, uppsetningu eftirlits og í samræmi við opinbera stefnu í að- gerðum gegn útbreiðslu sýklalyfja- ónæmra baktería.“ Þórarinn segir að ef þessi mikil- vægustu skref Alþingis hefðu ekki verið stigin væri Ísland búið að opna á innflutning á hráu kjöti, eins og meðal annars kjötinnflytjendur hafa krafist. „Íslensk stjórnvöld væru þá einfaldlega að gera tilraun sem allar líkur eru á að endi með ósköpum. Bæði varðandi sýkingar í matvælum og sýklalyfjaónæmi sem virtar al- þjóðlegar stofnanir og vísindamenn telja að muni draga fleiri jarðarbúa til dauða árið 2050 en ógnvaldur- inn krabbamein. Tilraunastarfsemi af því tagi gerist ekki á okkar vakt,“ segir Þórarinn Ingi. mm Í byrjun árs fól ég Embætti land- læknis að gera aðgerðaáætlun til að draga úr sykurneyslu landsmanna. Embættið hefur nú skilað aðgerða- áætlun í 14 liðum sem lúta með- al annars að heilsueflandi sam- félögum, skólum og vinnustöð- um, aukinni heilbrigðisfræðslu á öllum skólastigum, eflingu heilsu- gæslunnar með heilsueflandi mót- tökum, hollara matarframboði í íþróttamanvirkjum og að því að hafa hærri álögur á sykurrík- um mat en lægri álögur á ávöxt- um og grænmeti. Á ríkisstjórnar- fundi í síðustu viku var ákveðið að skipa starfshóp sem verður falið að innleiða aðgerðaáætlun Embættis landlæknis. Í stjórnarsáttmála kemur fram að skoða eigi beitingu efnahag- slegra hvata til eflingar lýðheilsu. Í minnisblaði Embættis landlæknis sem lagt var fram í ríkisstjórn fyrir rúmu ári kemur fram að embæt- tið leggur áherslu á að lýðheil- susjónarmið verði höfð til hliðsjó- nar þegar kemur að því að beita efnahagslegum hvötum þannig að þeir virki sem forvarnaraðgerð og verði til að bæta heilsu Íslendinga. Aðgerðaáætlunin er í samræmi við þessar áherslur embættisins á for- varnir og beinir sjónum að áhri- faþáttum heilsu í lífstíl fólks eins og mataræði, hreyfingu og svefni. Á Íslandi, samanborið við hin Norðurlöndin, er mest neysla á sykruðum gosdrykkjum og sykurrí- kum vörum. Sykraðir gos- og sva- ladrykkir vega þyngst í sykurney- slu hér á landi en rúmlega þriðjun- gur (34%) af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr þessum vörum. Verð á gosdrykkjum er lágt á Íslandi og lækkaði enn frekar þegar vörugjöld voru afnumin í byrjun árs 2015. Er það andstætt þeirri þróun sem á sér stað í vestrænum löndum þessi mis- serin. Þá hefur ítrekað komið fram að hlutfall of feitra er hátt á Íslandi og neysla á sykurríkum vörum eykur líkur á offitu og tannskemmdum og mikil neysla á sykruðum gos- og sva- ladrykkjum getur auk þess aukið líkur á sykursýki af tegund 2. Í nýrri skýrslu frá WHO kemur fram að það sé vaxandi vísindale- gur grunnur fyrir því að vel skipu- lagðir skattar á matvæli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifarík leið til að bæta neysluvenjur. Það er mín skoðun að skattlagning ætti að vera ein af forgangsaðgerðum stjórnvalda til að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Laugardaginn 22. júní opn- aði Guðlaugur Óskarsson ljós- myndasýningu undir berum himni við gömlu hlöðuna á Stálpastöð- um í Skorradal. Hann tileinkar sýninguna vináttu þeirra Jónínu við úlfsstaða- og Uppsalafólkið í Hálsasveit og á myndinni er hann einmitt með þeim Gísla Hösk- uldssyni og Kristfríði Björnsdótt- ur á Uppsölum, áður Hofsstöðum. Þau standa við ljósmynd á sýning- unni sem Guðlaugur tók af þeim hjónunum á gráum gæðingum við Giljafoss fyrir fáum árum. Sýningin verður opin til 29. september. hg Drögum úr sykurneyslu Bann við dreifingu matvæla sem innihalda sýklalyfjaónæmar bakteríur Þórarinn Ingi Pétursson. Sýning Guðlaugs opnuð á Stálpastöðum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.