Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 201912 Síðastliðinn laugardag var stór dagur fyrir íbúa og sveitarfélög á Snæfells- nesi. Í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi var form- lega opnuð ný gestastofa og upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn. Gesta- stofan er á vegum Svæðisgarðs- ins Snæfellsness og þannig samein- ast sveitarfélögin fimm á Snæfells- nesi og atvinnulífið um rekstur henn- ar. Gestastofan Breiðabliki er hugs- uð sem gátt ferðafólks inn á svæðið, bæði sem áningarstaður og þar get- ur ferðafólk nálgast allar helstu upp- lýsingar áður en haldið er í ferð um svæðið. Í Breiðabliki er hreinlætis- aðstaða opin allan sólarhringinn og auk þess er bensínsjálfsali á hlaðinu sem og veitingavagn. Á daginn verð- ur upplýsingamiðstöð opin og ráð- gert að þar verði auk þess markað- ur. Töluvert hefur verið lagt í endur- bætur á félagsheimilinu sem er í eigu Eyja- og Miklaholtshrepps. Að sögn Eggerts Kjartanssonar oddvita fékkst frá Byggðastofnun 25 milljóna króna styrkur út á skilgreininguna brot- hættar byggðir, sem sunnanvert Snæ- fellsnes fellur undir, og var þessi rík- isstyrkur lagður í endurbætur á hús- inu. Auk starfsemi gestastofu verð- ur Svæðisgarðurinn Snæfellsnes með fundaaðstöðu í húsinu auk þess sem hreppsskrifstofa Eyja- og Mikla- holtshrepps verður þar. Áfram mun Breiðablik engu að síður þjóna íbúum sem félagsheimili sveitarinnar. Opnun listsýningar Mikill fjöldi gesta var við opnun gesta- stofunnar og skýrist fjöldinn af að á sama tíma var formleg opnun listsýn- ingarinnar „Nr 3 - Umhverfing“. Á sýningunni er að finna verk eftir sjö tugi listamanna sem allir eiga ræt- ur eða tengingu við Snæfellsnes. Það sem gerir sýninguna óvenjulega er að sýningarstaðirnir eru fimmtán talsins víðsvegar um Snæfellsnes. Allar nán- ari upplýsingar um sýnendur, sýn- ingarstaði og verk þeirra er að finna í bók sem gefin var út um sýninguna og verður meðal annars hægt að nálgast hana í Breiðabliki, Pakkhúsinu Ólafs- vík og Norska húsinu í Stykkishólmi. Fjölmargir ávörpuðu gesti á lau- gardaginn. Þeirra á meðal Elísa- bet Haraldsdóttir menningarfull- trúi Vesturlands sem þarna fylgdi úr hlaði síðasta verkefni sínu í star- fi. Hún fyllti sjö tugi í síðustu viku og lætur af störfum hjá SSV nú í vi- kunni. Þá ávarpaði Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra samko- muna og flutti kveðju Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra byggðamála í ljósi þess stuðnings sem Byggðastof- nun veitti endurbótum á Breiðabliki. Björg Ágústsdóttir formaður stjórnar Svæðisgarðsins ávarpaði samkomuna sem og listakonurnar sem standa að Umhverfingu. Karlakórinn Heiðbjört söng auk þess nokkur lög. Heiti sýningarinnar Nr. 3 Umh- verfing vísar til að hún flakkar í kring- um landið og er afmarkaður landsh- luti undir hverju sinni, að þessu sinni Snæfellsnes og er þetta stærsta Umh- verfingin til þessa. Verkefnið er sam- starf Akademíu skynjunarinnar, un- dir stjórn sýningarstjóranna Rag- nhildar Stefánsdóttur, Önnu Eyjólfs og Þórdísar Öldu Sigurðardóttur, auk Svæðisgarðsins Snæfellssnes. Í Breiðabliki er hægt að nálgast upplýs- ingar um sýnendur, sýningarstaði og leggja drög að skemmtilegu ferðal- agi um Snæfellsnes þar sem hægt er að tvinna saman náttúrulífsskoðun og að njóta myndlistar. Ragnheiður Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins var að vonum ánægð með laugardaginn. Fagnaði hún þessum tvöfalda áfanga í starfsemi Svæðisgarðsins; opnun gestastofu og stærstu listsýningu sem haldin hefur verið á svæðinu. Það væri stór áfangi að hafa opnað myndarlega gestastofu og ánægjulegt að sveitarfélög á Snæ- fellnesi og atvinnulífið hafi tekið hön- dum saman um verkefnið. Þá sagði hún sýninguna Nr 3 Umhverfing vera afar ánægjulegt verkefni. Hún sýndi svo ekki væri um villst að Snæfellsnes hefði alið af sér stóran og öflugan hóp listafólks sem sannarlega væri sómi af. Eftir formlega opnun sýningarinnar var haldið í rútuferð um svæðið í ein- muna blíðu þar sem skoðaðir verða snæfellskir áfangastaðir, nokkurs ko- nar brot af því besta með áherslu á þjónustu, náttúru, sögu og myndlist. Eins og áður segir er ástæða til að hvetja lesendur til að kynna sér sýninguna Nr. 3 Umhverfing sem opin verður fram í byrjun septem- bermánaðar. Upplagt er að slá saman ökuferð um Snæfellsnes og skoða um leið list sem öll á rætur sínar á svæðið. mm Opnun gestastofu og stórsýningar slegið saman Gestir í biðröð að ná sér í súpu sem boðið var uppá. Segja má að félagsheimilið Breiðablik sé nú fullnýtt. Þar er salernisaðstaða opin allan sólarhringinn, upplýsingamiðstöð ferðafólks, skrifstofa Svæðisgarðsins og hreppsskrifstofa Eyja- og Miklaholtshrepps. Snæfellsnes skartaði sínu fegursta á opnunardaginn. Ragnhildur Sigurðardóttir og Elísabet Haraldsdóttir ásamt listakonunum frá Akademíu skynjunarinnar, þeim Ragnhildi Stefánsdóttur, Þórdísi Öldu Sigurðardóttur og Önnu Eyjólfs. Katharina Kotschote við afgreiðslu í upplýsingamiðstöð gestastofunnar. Fjölmenni var við opnun sýningarinnar og opnun Gestastofunnar. Á gólfi salarins í samkomuhúsinu hefur verið komið upp korti sem markar útlínur Snæfellness. Á veggjum hanga uppi kynningar á listafólkinu sem sýnir á sýningunni. Þrír af fimm sveitarstjórum sem standa að Svæðisgarðinum. F.v. Jakob frá Styk- kishólmi, Björg úr Grundarfirði og Eggert oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps. Með opnun listsýningarinnar fylgir Elísabet Haraldsdóttir úr hlaði síðasta verkefni sínu sem Menningarfulltrúi Vesturlands. Hún lætur af störfum hjá SSV í þessari viku, en hún hefur stýrt menningarmálum í landshlutanum undanfarin 13 ár. Sigursteinn Sigurðsson arkitekt og Ragnhildur Sigurðardóttir á Álftavatni. Hluti gesta á hátíðinni. Karlakórinn Heiðbjört tók nokkur lög undir stjórn Hólmfríðar Friðjónsdóttur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.