Skessuhorn - 26.06.2019, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 2019 27
Norðurálsmótið fór fram um síð-
ustu helgi á Akranesi þar sem
1.500 iðkendur í 7. flokki drengja
og þúsundir aðstandendur þeirra
komu saman í bænum til að taka
þátt í og fylgjast með mótinu.
Mótsgestir fengu sannkallaða
rjómablíðu alla mótsdagana. Mót-
ið var sett fyrir hádegi á föstudag-
inn og hófst með árlegri skrúð-
göngu keppenda frá ráðhúsinu
við Stillholt. Gengið var sem leið
lá í Akraneshöllina þar sem mót-
ið var formlega sett. Skömmu síð-
ar hófst keppni og voru leikir spil-
aðir í þrjá daga, þar sem ungir og
efnilegir fótboltaiðkendur sýndu
mikil tilþrif.
„Mótið gekk rosalega vel,“
sagði Sigurður Þór Sigursteins-
son, framkvæmdarstjóri KFÍA í
samtali við Skessuhorn að móti
loknu. „Þetta er stærsta mót hing-
að til. Hingað komu 224 lið frá 37
félögum allsstaðar af landinu þar
sem spilaðir voru 1.120 leikir yfir
helgina,“ bætir hann stoltur við.
Sigurður Þór var hæstánægð-
ur með samstarf sjálfboðaliða um
liðna helgi. „Þetta er fyrsta Norð-
urálsmótið þar sem ég er fram-
kvæmdastjóri félagsins og það
er ótrúlegt að upplifa þetta góða
samstarf sem átti sér stað við und-
irbúning mótsins og meðan á því
stóð. Það var frítt í sundlaugina
alla helgina, þökk sé Akraneskaup-
stað. Við vorum í nánu samstarfi
við skólana í bænum sem lögðu til
húsnæði til gistingar og svo allir
þeir dómarar sem mönnuðu þessa
1.120 leiki sem voru spilaðir og
foreldrar sem aðstoðuðu með ein-
um eða öðrum hætti eiga hrós skil-
ið. Þetta var bara frábært mót í alla
staði og skipulagningin til fyrir-
myndar og mikil ánægja með mót-
ið heilt yfir. Fyrir Akraneskaup-
stað þá er það mikil lyftistöng að
fá svona fjölda inn í bæinn sem er
ekki einungis á fótboltamóti held-
ur á þar viðskipti og nýtir þjónustu
sem er í boði. Svo skemmir ekki
þegar veðrið var eins og það var
um helgina, ekkert nema sól og
blíða,“ segir framkvæmdarstjórinn
að endingu.
Tíðindamenn Skessuhorns
ræddu einnig við nokkra foreldra
sem voru gestir á mótinu. Þeir voru
á einu máli um að öll skipulagning
og umgjörð KFÍA í kringum mót-
ið hefði verið til fyrirmyndar. „Þeir
eru líka þokkalega vanir hér í fót-
boltabænum að skipuleggja svona
stórviðburði og kunna það vel,“
sagði pabbi eins Fjölnisdrengsins,
þegar þeir feðgar voru þreyttir en
sælir að kaupa nesti fyrir heimferð
á sunnudaginn.
Við leyfum myndum frá mótinu
að tala sínu máli, en þær tóku Guð-
mundur Bjarki, Gunnhildur Lind,
Magnús M og Kolla Ingvars.
glh
Stærsta Norðurálsmótið til þessa
„Mikil lyftistöng að fá þennan fjölda í bæinn“