Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2019, Qupperneq 27

Skessuhorn - 26.06.2019, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 26. JúNÍ 2019 27 Norðurálsmótið fór fram um síð- ustu helgi á Akranesi þar sem 1.500 iðkendur í 7. flokki drengja og þúsundir aðstandendur þeirra komu saman í bænum til að taka þátt í og fylgjast með mótinu. Mótsgestir fengu sannkallaða rjómablíðu alla mótsdagana. Mót- ið var sett fyrir hádegi á föstudag- inn og hófst með árlegri skrúð- göngu keppenda frá ráðhúsinu við Stillholt. Gengið var sem leið lá í Akraneshöllina þar sem mót- ið var formlega sett. Skömmu síð- ar hófst keppni og voru leikir spil- aðir í þrjá daga, þar sem ungir og efnilegir fótboltaiðkendur sýndu mikil tilþrif. „Mótið gekk rosalega vel,“ sagði Sigurður Þór Sigursteins- son, framkvæmdarstjóri KFÍA í samtali við Skessuhorn að móti loknu. „Þetta er stærsta mót hing- að til. Hingað komu 224 lið frá 37 félögum allsstaðar af landinu þar sem spilaðir voru 1.120 leikir yfir helgina,“ bætir hann stoltur við. Sigurður Þór var hæstánægð- ur með samstarf sjálfboðaliða um liðna helgi. „Þetta er fyrsta Norð- urálsmótið þar sem ég er fram- kvæmdastjóri félagsins og það er ótrúlegt að upplifa þetta góða samstarf sem átti sér stað við und- irbúning mótsins og meðan á því stóð. Það var frítt í sundlaugina alla helgina, þökk sé Akraneskaup- stað. Við vorum í nánu samstarfi við skólana í bænum sem lögðu til húsnæði til gistingar og svo allir þeir dómarar sem mönnuðu þessa 1.120 leiki sem voru spilaðir og foreldrar sem aðstoðuðu með ein- um eða öðrum hætti eiga hrós skil- ið. Þetta var bara frábært mót í alla staði og skipulagningin til fyrir- myndar og mikil ánægja með mót- ið heilt yfir. Fyrir Akraneskaup- stað þá er það mikil lyftistöng að fá svona fjölda inn í bæinn sem er ekki einungis á fótboltamóti held- ur á þar viðskipti og nýtir þjónustu sem er í boði. Svo skemmir ekki þegar veðrið var eins og það var um helgina, ekkert nema sól og blíða,“ segir framkvæmdarstjórinn að endingu. Tíðindamenn Skessuhorns ræddu einnig við nokkra foreldra sem voru gestir á mótinu. Þeir voru á einu máli um að öll skipulagning og umgjörð KFÍA í kringum mót- ið hefði verið til fyrirmyndar. „Þeir eru líka þokkalega vanir hér í fót- boltabænum að skipuleggja svona stórviðburði og kunna það vel,“ sagði pabbi eins Fjölnisdrengsins, þegar þeir feðgar voru þreyttir en sælir að kaupa nesti fyrir heimferð á sunnudaginn. Við leyfum myndum frá mótinu að tala sínu máli, en þær tóku Guð- mundur Bjarki, Gunnhildur Lind, Magnús M og Kolla Ingvars. glh Stærsta Norðurálsmótið til þessa „Mikil lyftistöng að fá þennan fjölda í bæinn“

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.