Læknablaðið - May 2019, Page 11
LÆKNAblaðið 2019/105 215
R A N N S Ó K N
Inngangur
Ósæðarlokuþrengsli (aortic stenosis) er algengasti lokusjúkdómur
inn í fullorðnum á Vesturlöndum.1 Algengi sjúkdómsins eykst með
hækkandi aldri og hrjáir um 2,8% einstaklinga á aldrinum 6074
ára en um 13% einstaklinga eldri en 75 ára.2 Aldursbundin kölkun
á eðlilegri þríblöðkuloku er algengasta orsök ósæðarlokuþrengsla
í fullorðnum og greinist yfirleitt upp úr sextugu en einstaklingar
með meðfædda tvíblöðkuloku (um 12% algengi) greinast fyrr á
ævinni.1,3
Meingerð ósæðarlokuþrengsla er margþætt og flókin en loku
blöðin þykkna og stífna vegna kölkunar. Þannig þrengist ósæðar
lokan og til að viðhalda útstreymishlutfalli hjartans þykknar
vinstri slegillinn, sem aftur eykur á súrefnisþörf vöðvans.46 Al
gengustu einkenni ósæðarlokuþrengsla eru mæði, hjartaöng og
yfirlið en auk þess geta hjartsláttartruflanir komið fyrir og jafn
vel valdið skyndidauða.6,7 Lyfjameðferð hefur lítil áhrif á gang
sjúkdómsins8 og þegar einkenna hjartabilunar verður vart versna
lífslíkur einstaklinga hratt.4 Hefðbundin meðferð er opin hjarta
aðgerð þar sem lokunni er skipt út; ýmist fyrir ólífræna loku úr
hertu kolefni eða lífræna loku úr svíni eða gollurshúsi kálfs.9 Hér á
landi eru ósæðarlokuskipti önnur algengasta opna hjartaaðgerðin
á eftir kransæðahjáveitu.10 Á síðustu árum hefur komið fram ný
meðferð við ósæðarlokuþrengslum sem kallast ósæðarlokuísetn
ing með þræðingartækni, eða TAVI (transcatheter arotic valve im-
plantion), þar sem lífrænni loku er komið fyrir í ósæðarlokustað
Snemmkominn árangur opinna
ósæðarlokuskipta við ósæðarloku
þrengslum hjá konum á Íslandi
Á G R I P
Inngangur
Ósæðarlokuskipti er önnur algengasta hjartaskurðaðgerðin á Íslandi.
Markmið rannsóknarinnar er að meta í fyrsta sinn á Íslandi snemm-
kominn árangur opinna ósæðarlokuskipta vegna ósæðarlokuþrengsla
hjá konum.
Efniviður og aðferðir
Afturskyggn rannsókn á 428 sjúklingum sem gengust undir opin
ósæðarlokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla á Íslandi 2002-2013.
Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám og voru skráðir fylgikvillar aðgerð-
ar og farið var yfir hjartaómanir fyrir og eftir aðgerð. Forspárþættir
dauða innan 30 daga voru metnir með lógistískri aðhvarfsgreiningu og
heildarlifun áætluð (Kaplan-Meier). Miðgildi eftirfylgdartíma var 8,8 ár
(0-16,5 ár).
Niðurstöður
Af 428 sjúklingum voru 151 konur (35,3%) og voru þær að meðaltali
tveimur árum eldri en karlar (72,6 ± 9,4 ára á móti 70,4 ± 9,8, p=0,020).
Einkenni fyrir aðgerð voru sambærileg milli kynja en konur höfðu
marktækt hærra EuroSCORE II fyrir aðgerð (5,2 ± 8,8 á móti 3,2 ±
4,6, p=0,002). Hámarks-þrýstingsfall yfir ósæðarlokuna var hærra
hjá konum (74,4 ± 29,3 mmHg á móti 68,0 ± 23,4 mmHg, p=0,013) en
tíðni snemmkominna fylgikvilla, bæði minniháttar og alvarlegra, var
sambærileg milli kynja líkt og 30 daga dánartíðni (8,6% á móti 4,0%,
p=0,076) og 5 ára lifun (80,1% á móti 83,0% fyrir karla, p=0,49). Kven-
kyn reyndist ekki vera forspárþáttur fyrir dauða innan 30 daga þegar
leiðrétt var fyrir öðrum þekktum forspárþáttum dauða (ÁH: 1,54, 95%-
ÖB: 0,63-3,77) svo sem aldri.
Ályktanir
Á Íslandi eru konur um þriðjungur þeirra sem gangast undir
ósæðarlokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla. Þær eru rúmlega
tveimur árum eldri en karlar þegar kemur að aðgerð og virðast hafa
lengra gengin ósæðarlokuþrengsli. Tíðni fylgikvilla eftir aðgerð, 30
daga dánartíðni og langtímalifun var engu að síður sambærileg hjá
kynjunum.
Anna Guðlaug Gunnarsdóttir1
Kristján Orri Víðisson1
Sindri Aron Viktorsson2
Árni Johnsen1
Daði Helgason3
Inga Lára Ingvarsdóttir4
Sólveig Helgadóttir5
Arnar Geirsson6
Tómas Guðbjartsson1,2
Höfundar eru öll læknar.
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, 3lyflækningasviði Landspítala,
4svæfinga- og gjörgæsludeildum Sahlgrenska háskólasjúkrahússins í Gautaborg, 5og
Akademíska háskólasjúkrahússins í Uppsölum, 6hjartaskurðdeild Yale-háskólasjúkrahússins,
New Haven.
Fyrirspurnum svarar Tómas Guðbjartsson, tomasgudbjartsson@hotmail.com
https://doi.org/10.17992/lbl.2019.05.230
með þræðingartækni.11 Nú er þessum ísetningum einkum beitt
hjá sjúklingum þar sem áhætta við opna aðgerð er talin mikil,
til dæmis hjá háöldruðum eða sjúklingum sem áður hafa gengist
undir opna hjartaaðgerð.12,13 Nýlegar slembirannsóknir á sjúkling
um í miðlungs til lágáhættuhópum hafa hins vegar sýnt svipað
an snemmkominn árangur og við opin ósæðarlokuskipti, en lang
tíma árangur TAVIaðgerða er ekki jafn vel þekktur.1416
Erlendis eru konur um 3050% þeirra sem gangast undir
ósæðarlokuskipti1724 og hafa flestar rannsóknir, en þó ekki allar,
sýnt ívið hærri 30 daga dánartíðni borið saman við karla.1724 Á Ís
landi hafa nokkrar rannsóknir verið gerðar á árangri ósæðarloku
skipta, einkum með áherslu á langtímalifun og fylgikvilla á borð