Læknablaðið - mai 2019, Síða 14
218 LÆKNAblaðið 2019/105
3,7% karla, p=0,814). Hámarksþrýstingsfall yfir ósæðarlokuna fyrir
aðgerð var hins vegar hærra hjá konum, eða 74,4 ± 29,3 mmHg borið
saman við 68,0 ± 23,4 mmHg hjá körlum, p=0,013. Lokuop kvenna
reyndist einnig minna (0,60 (0,281,50) cm2 á móti 0,70 (0,202,00)
cm2 hjá körlum, p<0,001) en munurinn var ekki marktækur eftir að
leiðrétt var fyrir líkamsyfirborði (0,32 (0,150,76) cm2/m2 á móti 0,34
(0,120,89) cm2/m2 hjá körlum, p=0,112).
Samanburður aðgerðartengdra þátta er sýndur í töflu II. Að
gerðar, vélar og tangartímar voru áþekkir fyrir karla og konur
sem og hlutfall ígræddra ólífrænna og lífrænna lokna. Alls fengu
70 einstaklingar (16,4%) ígrædda ólífræna loku og 358 (83,6%) líf
ræna loku; þar af 205 (47,9%) lífræna loku án grindar og 153 (35,7%)
með grind. Lokur sem græddar voru í konur voru að meðaltali
minni en karlalokurnar, eða 23,4 ± 1,9 mm borið saman við 25,9 ±
1,9 mm (p<0,001). Kransæðahjáveita samhliða ósæðarlokuskiptum
var gerð hjá 241 sjúklingi (56,3%); 43,0% kvenna og 63,5% karla
(p<0,001). Ekki reyndist marktækur munur á milli kynja þegar
skoðaðar voru aðrar fylgiaðgerðir ósæðarlokuskipta (p>0,2), en
míturlokuaðgerð var gerð samhliða hjá 20 einstaklingum (4,7%),
MAZEaðgerð hjá 34 einstaklingum (4,7%) og annars konar hjarta
aðgerð hjá 71 einstaklingi (16,6%).
Snemmkomnir fylgikvillar eru sýndir í töflu III. Alls fengu
289 sjúklingar einhvern minniháttar fylgikvilla (67,5%) og fengu
konur marktækt oftar þvagfærasýkingu (15,9% á móti 6,2% karla,
p=0,002) en aðrir minniháttar fylgikvillar reyndust sambærilegir
milli kynja. Samtals greindust 125 sjúklingar (29,2%) með einhvern
alvarlegan fylgikvilla innan 30 daga frá aðgerð en ekki reyndist
marktækur munur milli kynja (29,8% kvenna á móti 29,1% karla,
p=0,966). Á fyrsta sólarhring eftir aðgerð var blæðing í brjósthols
kera minni hjá konum eða 730 mL (bil 906240 mL) borið saman við
848 mL (bil 1305340mL) (p=0,017). Konur fengu hins vegar fleiri
einingar af rauðkornaþykkni í legunni (5 á móti fjórum einingum
hjá körlum, p=0,001). Miðgildi heildarlegutíma var 13 dagar fyrir
konur en 10 dagar fyrir karla (p=0,022) (tafla III).
Þrjátíu dögum frá aðgerð höfðu 24 einstaklingar látist (5,6%); 13
konur af 151 (8,6%) og 11 karlar af 277 (4,0%). Munurinn reyndist
ekki marktækur (p=0,076).
Í fjölþátta aðhvarfsgreiningu reyndist kvenkyn ekki marktæk
ur forspárþáttur aukinnar 30 daga dánartíðni þegar leiðrétt hafði
verið fyrir aldri og EuroSCORE II (tafla IV). Þar sem aldur og kyn
eru hluti af EuroSCORE II var til næmisgreiningar gert annað
áhættulíkan sem innihélt marktækar breytur úr einþátta grein
ingu aðrar en EuroSCORE II, þar með talið kvenkyn. Þar reyndist
kyn heldur ekki spá fyrir um 30 daga dánartíðni (niðurstöður ekki
sýndar).
Langtímalifun karla og kvenna eftir ósæðarlokuskipti er sýnd
á mynd 1. Einu ári frá aðgerð var heildarlifun kvenna 89,4% (95%
ÖB: 84,694,5) og 93,9% (95%ÖB: 91,196,7) fyrir karla og 5 árum frá
aðgerð 80,1% (95%ÖB: 74,086,7) meðal kvenna og 83,0% (95%ÖB:
78,787,5) meðal karla (logrankpróf p=0,49).
Umræða
Í þessari afturskyggnu rannsókn var borinn saman snemmkom
inn árangur 151 konu og 277 karla sem gengust undir opin ósæðar
lokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla. Í ljós kom að heildartíðni
snemmkominna fylgikvilla reyndist sambærileg fyrir bæði kyn og
ekki reyndist marktækur munur á 30 daga dánartíðni sem var 5,6%
fyrir hópinn í heild (8,6% fyrir konur og 4% fyrir karla). Svipaðri
dánartíðni fyrir konur hefur verið lýst í erlendum rannsóknum,
og allt að 11%,17 þótt í flestum rannsóknum sé hún nær 36%.1823
Hér á landi eru konur rúmur þriðjungur (35,3%) þeirra sem
gangast undir lokuskipti vegna ósæðarlokuþrengsla. Svipuðu
hlutfalli hefur verið lýst erlendis17,18,21,22 þótt sumar rannsóknir
sýni allt að 4047% hlutfall kvenna.19,20,23,24 Ástæða lægra hlutfalls
kvenna hér á landi er ekki augljós en erlendis hafa rannsóknir
R A N N S Ó K N
Tafla IV. Sjálfstæðir forspárþættir 30 daga dánartíðni, ákvarðaðir með lógistískri
aðhvarfsgreiningu.
ÁH 95% ÖB p-gildi
Aldur 1,10 1,03-1,19 0,008
Euroscore II 1,07 1,03-1,12 0,002
Kvenkyn 1,54 0,63-3,77 0,338
ÁH = áhættuhlutfall. ÖB = öryggisbil.
Tafla III. Samanburður á fylgikvillum eftir aðgerð og öðrum þáttum tengdum
legunni eftir aðgerð. Fjöldi (%) fyrir flokkabreytur, meðaltal með +/- staðalfráviki
fyrir normaldreifðar talnabreytur en miðgildi fyrir ónormaldreifðar talnabreytur.
Konur
(n=151)
Karlar
(n=277)
p-gildi
Minniháttar fylgikvillar 106 (72,6) 183 (66,5) 0,244
Nýtilkomið gáttatif 79 (63,7) 148 (62,2) 0,865
Afturkræf blóðþurrð í heila 1 (0,7) 8 (2,9) 0,238
Fleiðruvökvi 27 (17,9) 31 (11,2) 0,077
Nýrnaskaði án skilunar 29 (20,3) 37 (13,7) 0,107
Yfirborðssýking 14 (9,3) 24 (8,7) 0,973
Þvagfærasýking 24 (15,9) 17 (6,2) 0,002
Lungnabólga 11 (7,3) 37 (13,4) 0,079
Alvarlegir fylgikvillar 45 (29,8) 80 (29,1) 0,966
Hjartaáfall 17 (11,3) 36 (13,0) 0,713
Miðmætisbólga 0 (0,0) 4 (1,5) 0,335
Hjartaþelsbólga 0 (0,0) 2 (0,7) 0,757
Nýrnaskaði sem krafðist
skilunar
10 (6,6) 8 (2,9) 0,116
Heilablóðfall 2 (1,3) 5 (1,8) 1,000
Fjöllíffærabilun 19 (12,6) 19 (6,9) 0,074
Enduraðgerð <30 daga 31 (20,5) 52 (18,8) 0,769
Þar af vegna blæðingar 26 (17,2) 36 (13,0) 0,304
Annað
Blæðing fyrsta sólarhring [mL] 730 (90-6240) 848 (130-
5340)
0,017
Gjöf rauðkornaþykknis [ein] 5 (0-214) 4 (0-46) 0,001
Lega á gjörgæslu [dagar] 1 (0-107) 1 (1-80) 0,110
Lega á sjúkrahúsi [dagar] 13 (0-143) 10 (1-207) 0,022
30 daga dánartíðni 13 (8,6) 11 (4,0) 0,076