Læknablaðið - maj 2019, Qupperneq 40
244 LÆKNAblaðið 2019/105
■ ■ ■ Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Ég ætlaði ekki alltaf að verða læknir, ég
hafði gríðarlegan áhuga á flugi og ætlaði
að verða flugmaður. Ég lærði að fljúga
svifflugum þegar ég var 16 ára og stund
aði það í nokkur ár. Ég var síðan byrjaður
að læra að fljúga til að taka einkaflug
mannspróf þegar fór að líða að lokum
menntaskólans. Ég hafði hins vegar líka
mikinn áhuga á læknisfræði og sérstak
lega skurðlækningum sem mér fannst
og finnst enn vera spennandi sérgrein.
Á þessum tíma voru atvinnuhorfur fyrir
flugmenn dökkar, og það varð til þess að
ég hætti flugnáminu og skellti mér í lækn
isfræðina í staðinn, með það að markmiði
að verða skurðlæknir þegar ég yrði stór,“
segir Jón H.H. Sen, forstöðulæknir og
sérfræðingur í almennum skurðlækning
um á umdæmissjúkrahúsi Austurlands
í Neskaupstað þegar hann var spurður um
starfsáform í æsku.
Pabbi frá Kína
Jón er fæddur í Reykjavík 1966 og upp
alinn í Hlíðunum. Foreldrar hans eru
Björg Jónasdóttir Sen og Jón Sen og er
hann yngstur fjögurra systkina. „Mamma
var íslensk, en pabbi er fæddur í Kína og
ólst þar upp fyrstu 13 árin. Sagan á bak
við það er sú að Oddný Erlendsdóttir
amma mín fór til Edinborgar í enskunám
rétt fyrir upphaf fyrri heimsstyrjaldar
innar og kynntist þar og giftist afa mín
um, Kwei Ting Sen, sem var þar að læra
sálfræði. Þau eignuðust einn son þar,
Erlend, en hann dó úr hundaæði. Eftir að
stríðinu lauk fluttist amma með honum
til Kína með stuttri viðkomu á Íslandi og
þau eignuðust pabba og systur hans. Þegar
líða fór á fjórða áratuginn jókst ófriðurinn
milli Japana og Kínverja, og þegar Japanar
gerðu innrás í Kína árið 1937 fékk amma
nóg og ákvað að flytja aftur heim með
börnin,“ segir Jón.
Systkini Jóns eru Þóra, fyrrverandi
flugfreyja og skrifstofustjóri Flugfreyjufé
lags Íslands, Oddný kvikmyndafræðingur
og Jónas píanóleikari, kennari og tónlist
argagnrýnandi. Jón er giftur Gunni Sif
Sigurgeirsdóttur, myndlistarmanni og
hundaræktanda, og eiga þau 5 börn.
„Starfsstúlka“ á slysadeildinni
Jón rifjar upp skólagöngu sína. Hann
gekk í Hlíðaskóla og svo áfram upp eft
ir Hamrahlíðinni í MH og hóf nám við
læknadeild HÍ 1986. „Ég vann að sjálf
sögðu á sumrin meðan á læknanáminu
stóð. Fyrstu tvö sumrin á slysadeildinni
sem „starfsstúlka“, sem var rótgróið
kvennastarf og engin fordæmi fyrir því
að karlmenn væru í slíkum störfum. Við
vorum reyndar tveir félagar sem fórum í
þetta, ég og Sigurður Böðvarsson, og brut
um ísinn. Það var gaman að vera ferskur
læknanemi á Slysó og mikið sem ég lærði
á þessum tíma. Ég vann mig svo upp í
að vinna við hjúkrun á Slysó eftir þriðja
árið og eftir fimmta árið sem aðstoðar
læknir. Eftir annað árið í læknadeildinni
fórum við Hlynur Níels Grímsson sem
skiptinemar til Ísrael í einn mánuð, nánar
tiltekið á Chaim Sheba Medical Center í
Tel Hashomer, sem var mikil upplifun.“
Jón hefur eins og flestir aðrir
læknar starfað víða. Áður en hann
hóf kandídatsárið 1993 vann hann í
nokkra mánuði úti á landi, á Húsavík og
á Hólmavík. Hann kláraði svo kandídats
árið á Landspítala og fékk stöðu á skurð
deildinni í ársbyrjun 1995 fram á haust
1996, en þá flutti fjölskyldan með tvö lítil
börn til Noregs, til Haugasunds á suð
vesturströndinni. Þau bjuggu þar fram
til ársins 2000 og fluttu þá um set til Staf
angurs svo Jón gæti klárað sérnámið sitt í
meltingarskurðlækningum.
Fjölskyldan býr í Hafnarfirði
Jón segir að stefnan hafði alltaf verið að
flytja aftur til Íslands og fyrir tilviljun
bauðst honum starf á Fjórðungssjúkra
húsinu í Neskaupstað, sem nú heitir
Heilbrigðisstofnun Austurlands
sinnir heilbrigðisþjónustu á
Austurlandi á 16.000 ferkíló-
metra svæði, allt frá Bakkafirði
til Álftafjarðar, frá hálendi til
strandar. Íbúar á Austurlandi eru
um 11.000. Á myndinni er spít-
alinn í Norðfirði sem Ormar Þór
Guðmundsson og Örnólfur Hall
teiknuðu. Ljósmynd: Hallgrímur
Axel Tulinius.
Gott að vinna sem
læknir úti á landi
– segir Jón H.H. Sen skurðlæknir á umdæmissjúkrahúsi
Austurlands í Neskaupstað