Læknablaðið - mai 2019, Síða 41
LÆKNAblaðið 2019/105 245
umdæmissjúkrahús Austurlands (FSN)
snemma árs 2002. „Við höfðum engin
tengsl við Austfirðinga og höfðum aldrei
komið til Neskaupstaðar en ákváðum að
láta slag standa, og ég tók við stöðu skurð
læknis. Við ætluðum okkur ekki að vera
þar nema kannski tvö ár, en okkur líkaði
vel og árin urðu 7,“ segir Jón, sem starfar
enn á FSN en fjölskyldan býr í Hafnarfirði.
„Ég er þó ekki í 100% vinnu þar, er í hlut
falli sem gerir mér kleift að vinna þannig
að ég fer austur í ákveðinn tíma og á síðan
góð frí inni á milli og get verið heima með
fjölskyldunni. Mér finnst þetta gott fyrir
komulag með góðu jafnvægi milli vinnu
og frítíma,“ segir Jón.
Átta heilsugæslustöðvar
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA)
rekur heilsugæslustöðvar á Djúpavogi,
Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði, Eg
ilsstöðum, Seyðisfirði og Vopnafirði. Í
Neskaupstað er svo sjúkrahúsið ásamt
heilsugæslu í sömu byggingu. Þar er
hjúkrunardeild og endurhæfingardeild
og stoðdeildir, röntgendeild með CT og
rannsóknastofa. Einnig er sjúkra og
iðjuþjálfun fyrir inniliggjandi og göngu
deildarsjúklinga. Á FSN er eina fæðingar
deild Austurlands og aðgengi að skurð
stofu allan sólarhringinn með skurð og
svæfingalækni. „Við náum að sinna
hlutverki okkar sem fæðingarstofnun vel
og það hefur verið mikil ánægja með þjón
ustu fæðingardeildarinnar. Það er metið í
samvinnu við fæðingarlæknana á Sjúkra
húsinu á Akureyri hvaða konum sé óhætt
að fæða hjá okkur og hverjar ættu að
fæða á stærri stofnun. Um 2/3 barna Aust
firðinga fæðast á FSN,“ segir Jón.
Öryggiskeðja Austfirðinga
Jón segir að hlutverk FSN sé einnig að vera
bráðasjúkrahús fyrir fjórðunginn. „Já, við
tökum við flestum þeim vandamálum sem
upp koma, en í sumum tilfellum þurfum
við að senda sjúklinga á stærri spítala, þá
oftast Landspítala, eftir að búið að er sjúk
dómsgreina og veita fyrstu meðferð hjá
okkur. Öll beinbrot sem þarf að gera við
á skurðstofu eru þó send til Akureyrar,
þar sem gert er við brotin og ef sjúkingar
þurfa á frekari innlögn og endurhæfingu
að halda koma þeir aftur til okkar að að
gerð lokinni. Mér finnst við sinna okkar
hlutverki vel og sjúkrahúsið er mikilvæg
ur þáttur í öryggiskeðju Austfirðinga.“ Í
þessu sambandi rifjar Jón upp blaðagrein
læknis sem lýsti þeirri skoðun sinni að
það væri ekki hægt að reka sjúkrahús úti
á landi. Ástæðan var sú að læknismeð
ferð væri orðin svo sérhæfð og flókin að
minni sjúkrahús en Landspítali hefðu ekki
bolmagn til að veita hana. „Þessu er ég
hjartanlega ósammála. Algengustu lækn
Jón stundar hestamennsku með fjöl-
skyldunni. Þau eiga hesthús í Hlíðar-
þúfum í Hafnarfirði. Hér er hann
með Loka sínum en þeir eru mjög
góðir félagar. Ljósmynd/einkasafn