Læknablaðið - mai 2019, Síða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 247
Hörður Þorleifsson
horfinn@simnet.is
Í ársbyrjun 1994 fóru nokkrir af eldri
læknum að ræðast við um framtíðina. Hve
lengi þeir mættu starfa og hver afkoman
gæti orðið. Það var hóað til fundar lækna
sem voru á sjötugsaldri og þar yfir. Hvata
menn voru Árni Björnsson, Ásmundur
Brekkan og Gunnlaugur Snædal.
Það var allgóð aðsókn á fyrsta fundi
sem haldinn var á Grand Hóteli 19. mars
1994. Þar var rætt um hagsmunamál okkar
eldri lækna þegar starfsemin fer að dvína.
Ákveðið var að ná samkomulagi við banka
með afslætti í huga og var ákveðið að ræða
við Sparisjóð Reykjavíkur. Einnig var rætt
um notalegheit, að koma saman og spjalla.
Ákveðið var að smala fleirum saman og
stofna félag eldri lækna. Þetta var gert
og laugardaginn 7. maí 1994 var haldinn
stofnfundur Öldungadeildar lækna í Rúg
brauðsgerðinni. Hann var fjölmennur.
Félagarnir voru sammála um að vera ekki
að ræða mikið um sjúkdóma heldur njóta
samverunnar.
Árni Björnsson var fyrsti formaður
til 1997. Kosnir voru ritari, gjaldkeri og
tveir í meðstjórn og auk þess 6 í svokallað
öldungaráð. Þetta hefur haldist. Sigmund
ur Grétar Magnússon var kosinn formaður
1997 til 2001. Svo varð Ásmundur Brekkan
formaður. Hann var formaður til 2003.
Þorvaldur Veigar Guðmundsson var for
maður til 2005 er Páll Gestur Ásmundsson
tók við og gegndi formennsku til 2009. Þá
varð Sigurður Egill Þorvaldsson formað
ur til 2013. Næsti formaður var Magnús
Birgisson Einarsson, fram til 2017. Núver
andi formaður er Kristófer Þorleifsson.
Skipulag hefur haldist áþekkt í gegnum
árin. Nokkuð algengir eru stjórnarfundir
á milli félagsfunda. Þar er undirbúnings
vinna að þörfum félagsins um athafnir og
fundi.
Fundir Öldungadeildar voru í fyrstu
haldnir á laugardögum og á ýmsum stöð
um, hjá opinberum fyrirtækjum og einnig
á sjúkrastofnunum. Á þeim stöðum var
boðið upp á kaffi og meðlæti. Með for
mennsku Sigmundar var 1998 farið að hafa
vínarbrauð með kaffinu í Hlíðasmára, í
hálftíma fyrir fundi, sem alltaf hafa byrjað
kl. 16. Einnig var farið að bjóða mökum
með á fundina. Fyrsti miðvikudagur í
mánuði hefur verið hafður sem fundar
dagur. Fundirnir hafa yfirleitt verið mjög
ánægjulegir og erindin þar hafa náð yfir
stórt svið fyrir utan læknisfræði sem þó
hefur verið með í stórmálum. Þrjátíu og
átta læknar hafa tekið til máls og að mestu
leyti um önnur hugðarefni en læknisfræði.
Hafa til dæmis tengt sig til síðbronsaldar,
sögualdar og miðalda á Íslandi og tengsla
við Dani. Einnig farið með eigin skáldskap
og ýmislegt annað. Einnig höfum við not
ið þess að hlusta á 18 náttúrufræðinga og
jarðfræðinga sem hafa heimsótt okkur og
sagt sögu landsins. Nokkra sagnfræðinga,
líffræðinga, íslenskufræðinga, rithöfunda
og fjölmiðlamenn höfum við notið þess að
hlusta á.
Fyrsta utanlandsferð Öldungadeildar
innar var farin vorið 2003 til Kaupmanna
hafnar og Borgundarhólms, og aðeins litið
til annarra landa við Eystrasalt. Önnur
utanlandsferðin var farin 2006 til Slóveníu.
Síðan hafa 11 utanlandsferðir verið farnar.
Innanlandsferðir hafa verið um 20 og farn
ar að vori og hausti. Jólafagnaður hefur
stundum verið haldinn.
Öldunga-
deild
lækna
25 ára
Ö L D U N G A D E I L D
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður
Jóhannes M. Gunnarsson ritari
Guðmundur Viggósson gjaldkeri
Halldóra Ólafsdóttir
Margrét Georgsdóttir
Öldungaráð
Hörður Alfreðsson
Magnús B. Einarson
Reynir Þorsteinsson
Snorri Ingimarsson
Þórarinn E. Sveinsson
Umsjón síðu
Magnús Jóhannsson
Árni Björnsson Sigmundur Magnússon Ásmundur Brekkan Þorvaldur V. Guðmundsson
Páll Ásmundsson Sigurður Egill Þorvaldsson Magnús Einarsson Kristófer Þorleifsson