Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - maí 2019, Blaðsíða 43

Læknablaðið - maí 2019, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 247 Hörður Þorleifsson horfinn@simnet.is Í ársbyrjun 1994 fóru nokkrir af eldri læknum að ræðast við um framtíðina. Hve lengi þeir mættu starfa og hver afkoman gæti orðið. Það var hóað til fundar lækna sem voru á sjötugsaldri og þar yfir. Hvata­ menn voru Árni Björnsson, Ásmundur Brekkan og Gunnlaugur Snædal. Það var allgóð aðsókn á fyrsta fundi sem haldinn var á Grand Hóteli 19. mars 1994. Þar var rætt um hagsmunamál okkar eldri lækna þegar starfsemin fer að dvína. Ákveðið var að ná samkomulagi við banka með afslætti í huga og var ákveðið að ræða við Sparisjóð Reykjavíkur. Einnig var rætt um notalegheit, að koma saman og spjalla. Ákveðið var að smala fleirum saman og stofna félag eldri lækna. Þetta var gert og laugardaginn 7. maí 1994 var haldinn stofnfundur Öldungadeildar lækna í Rúg­ brauðsgerðinni. Hann var fjölmennur. Félagarnir voru sammála um að vera ekki að ræða mikið um sjúkdóma heldur njóta samverunnar. Árni Björnsson var fyrsti formaður til 1997. Kosnir voru ritari, gjaldkeri og tveir í meðstjórn og auk þess 6 í svokallað öldungaráð. Þetta hefur haldist. Sigmund­ ur Grétar Magnússon var kosinn formaður 1997 til 2001. Svo varð Ásmundur Brekkan formaður. Hann var formaður til 2003. Þorvaldur Veigar Guðmundsson var for­ maður til 2005 er Páll Gestur Ásmundsson tók við og gegndi formennsku til 2009. Þá varð Sigurður Egill Þorvaldsson formað­ ur til 2013. Næsti formaður var Magnús Birgisson Einarsson, fram til 2017. Núver­ andi formaður er Kristófer Þorleifsson. Skipulag hefur haldist áþekkt í gegnum árin. Nokkuð algengir eru stjórnarfundir á milli félagsfunda. Þar er undirbúnings­ vinna að þörfum félagsins um athafnir og fundi. Fundir Öldungadeildar voru í fyrstu haldnir á laugardögum og á ýmsum stöð­ um, hjá opinberum fyrirtækjum og einnig á sjúkrastofnunum. Á þeim stöðum var boðið upp á kaffi og meðlæti. Með for­ mennsku Sigmundar var 1998 farið að hafa vínarbrauð með kaffinu í Hlíðasmára, í hálftíma fyrir fundi, sem alltaf hafa byrjað kl. 16. Einnig var farið að bjóða mökum með á fundina. Fyrsti miðvikudagur í mánuði hefur verið hafður sem fundar­ dagur. Fundirnir hafa yfirleitt verið mjög ánægjulegir og erindin þar hafa náð yfir stórt svið fyrir utan læknisfræði sem þó hefur verið með í stórmálum. Þrjátíu og átta læknar hafa tekið til máls og að mestu leyti um önnur hugðarefni en læknisfræði. Hafa til dæmis tengt sig til síðbronsaldar, sögualdar og miðalda á Íslandi og tengsla við Dani. Einnig farið með eigin skáldskap og ýmislegt annað. Einnig höfum við not­ ið þess að hlusta á 18 náttúrufræðinga og jarðfræðinga sem hafa heimsótt okkur og sagt sögu landsins. Nokkra sagnfræðinga, líffræðinga, íslenskufræðinga, rithöfunda og fjölmiðlamenn höfum við notið þess að hlusta á. Fyrsta utanlandsferð Öldungadeildar­ innar var farin vorið 2003 til Kaupmanna­ hafnar og Borgundarhólms, og aðeins litið til annarra landa við Eystrasalt. Önnur utanlandsferðin var farin 2006 til Slóveníu. Síðan hafa 11 utanlandsferðir verið farnar. Innanlandsferðir hafa verið um 20 og farn­ ar að vori og hausti. Jólafagnaður hefur stundum verið haldinn. Öldunga- deild lækna 25 ára Ö L D U N G A D E I L D Stjórn Öldungadeildar Kristófer Þorleifsson formaður Jóhannes M. Gunnarsson ritari Guðmundur Viggósson gjaldkeri Halldóra Ólafsdóttir Margrét Georgsdóttir Öldungaráð Hörður Alfreðsson Magnús B. Einarson Reynir Þorsteinsson Snorri Ingimarsson Þórarinn E. Sveinsson Umsjón síðu Magnús Jóhannsson Árni Björnsson Sigmundur Magnússon Ásmundur Brekkan Þorvaldur V. Guðmundsson Páll Ásmundsson Sigurður Egill Þorvaldsson Magnús Einarsson Kristófer Þorleifsson

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.