Læknablaðið - maj 2019, Qupperneq 46
250 LÆKNAblaðið 2019/105
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 2 9 . P I S T I L L
Ávísanir ávanabindandi lyfja eftir
sérgreinum lækna á Íslandi
Árið 2018 drógust ávísanir ávanabindandi
lyfja saman um 3,4% á Íslandi miðað við
árið á undan. Munar þar mest um ávísanir
á ópíóíða. Sem dæmi drógust ávísanir
oxýcódón saman um 15,6%. 2112 læknar,
tannlæknar og dýralæknar ávísuðu ávana
bindandi lyfjum á árinu en aðeins um
360 læknar ávísuðu meira en 10.000 dags
skömmtum og mega teljast virkir í ávís
unum þessara lyfja. Fjörutíu stórtækustu
læknarnir ávísuðu 26% af heildarmagni
ávanabindandi lyfja og 100 stórtækustu
læknar ávísuðu 47%. Það er því tiltölulega
fámennur hópur lækna sem ber þungann
af ávísunum ávanabindandi lyfja.
Þegar ávísanir ávanabindandi lyfja
eru skoðaðar eftir sérgreinum sést að
hlutur heilsugæslulækna vegur þyngst,
(sjá mynd). Ávísanir ávanabindandi lyfja
hafa nærri tvöfaldast síðustu 15 ár, voru
tæplega 10 milljón dagsskammtar árið
2003 og fóru mest í rúmlega 18 milljón
dagsskammta árið 2017. Heimilislæknar og
læknar með almennt lækningaleyfi ávísa
55% af öllum ávanabindandi lyfjum árið
2018 og geðlæknar ávísa 13,4%.
Af þeim 100 læknum sem ávísa mest af
ávanabindandi lyfjum voru 59 heimilis
læknar, 12 geðlæknar og 11 sérfræðingar í
sjúkdómum barna. Heimilislæknar eru því
einna stórtækastir við ávísun ávanabind
andi lyfja.
Um 90.000 manns leystu út ávanabind
andi lyf á árinu. Þar af fengu 302 ávana
bindandi lyf frá 10 eða fleiri læknum.
Margir hafa ekki fastan heilsugæslulækni
og fá því sömu lyfin hjá fleiri læknum. Í
slíkum tilvikum er erfitt að koma í veg
fyrir mikla notkun ávanabindandi lyfja.
Um 450 manns fengu samanlagt meira
en fimmfaldan skammt ávísaðan á árinu
af ávanabindandi lyfjum, sem jafngildir
meira en 16 töflum af parkódín forte á dag.
Lyfjateymi Embættis landlæknis:
Ólafur B. Einarsson sérfræðingur, Andrés Magnússon fíknigeðlæknir