Læknablaðið - maj 2019, Qupperneq 47
LÆKNAblaðið 2019/105 251
Sólveig Bjarnadóttir
stjórnarmaður FL
Nú á dögunum var haldin árshátíð Félags
læknanema. Þar eru árlega veitt verðlaun
þeim kennara og deildarlækni sem þykja
hafa skarað fram úr. Í ár voru einnig veitt
sérstök heiðursverðlaun.
Kennsluverðlaun
Handhafi kennsluverðlauna FL 2019 er
Elsa Björk Valsdóttir, sérfræðingur í al
mennum skurðlækningum og lektor við
læknadeild Háskóla Íslands. Elsa hefur
barist ötullega fyrir því að innleiða hermi
kennslu í læknadeild. Hún hefur skipulagt
færnibúðir fyrir læknanema í upphafi 4.
árs og staðið fyrir færniviku sem hluta
af námskeiði í skurðlæknisfræði. Með
þessu gefst nemendum tækifæri til að æfa
klínísk vinnubrögð í öruggu umhverfi
undir handleiðslu leiðbeinanda. Einnig
hefur Elsa átt þátt í því að skipuleggja
klíník um siðfræði fyrir 4. árs læknanema
til að fjalla um siðferðisleg álitamál sem
geta komið upp í starfi og ræða erfið atvik
sem nemar kunna að hafa lent í.
Deildarlæknaverðlaun
Handhafi deildarlæknisverðlauna FL 2019
er Hjálmar Ragnar Agnarsson. Hjálmar
hefur verið einstaklega virkur og metnað
arfullur í því að sinna nemum og á mikið
hrós skilið. Hann hefur sýnt frumkvæði
í kennslu og skipulagt fræðslu utan skóla
til að hjálpa við próflestur. Sérstaklega
á hann heiðurinn af því að kenna 4. árs
læknanemum að lesa hjartarafrit.
Heiðursverðlaun
Handhafi heiðursverðlauna FL árið 2019 er
Gunnhildur Jóhannsdóttir. Heiðursverð
laun eru aðeins veitt við sérstök til
efni, gjarnan til þeirra sem hafa unnið
óeigingjarnt starf í þágu læknanema.
Gunnhildur hefur með vinnu sinni sem
skrifstofustjóri á skurðsviði Landspítala
skipulagt og haldið utan um klínískt
nám nema á 4. ári um áralangt skeið.
Hún hefur þannig leitt margrar kynslóðir
læknanema í gegnum sín fyrstu klínísku
skref á Landspítala og kunnum við henni
bestu þakkir fyrir.
Þórdís Þorkelsdóttir, Hjálmar Ragnar Agnarsson og Sólveig Bjarnadóttir.Sólveig Bjarnadóttir, Gunnhildur Jóhannsdóttir, Þórdís Þorkelsdóttir og Teitur Ari
Theodórsson.
Stjórn Félags læknanema, frá vinstri: Krister Blær Jónsson, Þórdís Þorkelsdóttir, Teitur Ari Theodórsson, Elsa Björk
Valsdóttir, Árni Johnsen, Sólveig Bjarnadóttir og Daníel Pálsson. Ljósmyndari: Jóhannes Davíð Purkhús.
Árshátíð
Félags
læknanema