Læknablaðið - May 2019, Page 50
254 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri og læknir
dagur.b.eggertsson@reykjavik.is
Áhrif loftgæða og svifryks á heilsufar
hefur fengið aukið vægi undanfarin ár.
Stjórnvöld undir forystu umhverfisráðu
neytisins og Umhverfisstofnunar hafa
sett fram metnaðarfulla áætlun um að
vinna að bættum loftgæðum á Íslandi.
Aðgerðirnar eru byggðar á alþjóðlegum
rannsóknum og meginmarkmiðið er skýrt:
„Að stuðla að loftgæðum og heilnæmu
umhverfi.“ Undirmarkmiðin eru að fækka
ótímabærum dauðsföllum af völdum loft
mengunar í færri en 5 eftir 10 ár, fækka
fjölda þeirra daga þar sem svifryk fer
yfir heilsufarsmörk úr 20 niður í 0 og að
ársmeðaltal brennisteinsvetnis verði áfram
undir skilgreindum mörkum.
Lengi vel var Heilbrigðisnefnd Reykja
víkurborgar sú eina með viðbragðsáætlun
í loftgæðamálum. Þetta hefur breyst hratt.
Enn skortir þó heimildir til að grípa til
aðgerða til að bregðast við spám um léleg
loftgæði. Lagaheimildir þarf einnig til að
taka gjald af nagladekkjum eða takmarka
notkun þeirra. Sérstaka athygli vekur að
í nýrri loftgæðaáætlun var eitt af megin
atriðunum að setja heimildir til gjaldtöku
í lög. Þær heimildir voru í frumvarpi til
umferðarlaga á síðasta ári en voru horfin
úr frumvarpinu sem lagt var fyrir Alþingi.
Engar skýringar hafa komið fram á þessu
og hlýtur það að vekja spurningar um
hvort stjórnvöldum sé einhver alvara með
loftgæðaáætlun sinni.
Saga Reykjavíkur sýnir að læknar hafa
iðulega gegnt lykilhlutverki við að ýta á
eftir nauðsynlegum umbótum í heilbrigð
ismálum. Þær umbætur sem mestu skipta
hafa oft verið utan við viðfangsefni hins
hefðbundna heilbrigðiskerfis. Guðmundur
Björnsson læknir og bæjarfulltrúi, og síðar
landlæknir, var fremstur í þeim flokki sem
börðust fyrir vatnsveitu í Reykjavík og
tók upp vatnsgjald til að fjármagna hana
í upphafi síðustu aldar. Það var ótrúlega
óvinsælt, jafnvel þótt eitt árið hafi 21 bæj
arbúi látist af taugaveiki sem rekja mátti
til þess að vatn í brunnum hafði spillst.
Það jafngildir því að yfir 1000 Reykvík
ingar hefðu látist á einum og sama vetrin
um miðað við íbúafjölda nú. Vatnsgjaldið
var engu að síður svo óvinsælt að Guð
mundi var ráðlagt að bjóða sig ekki fram
aftur eftir að hafa tryggt framgang þessa
framfaramáls í bæjarstjórn!
Guðmundur Hannesson læknir
var í lykilhlutverki í umræðunni um
heilsuspillandi húsnæði og betra borgar
skipulag. Nær okkur í tíma má svo nefna
Katrínu Fjeldsted lækni og borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins sem vakti verðskuld
aða athygli fyrir að standa með göngugöt
um og aðgerðum til að auka áherslu á fólk
en draga úr áherslu á bíla í borgarstjórn á
9. og 10. áratugnum.
Þessi átök um fólk og umhverfi annars
vegar og forgang bílaumferðar hins vegar
eru enn áberandi og nátengd vandanum
við að vinna gegn lélegum loftgæðum í
borginni.
En hver er staðan? Loftgæði á Íslandi
eru einhver þau bestu í heiminum og loft
gæði í Reykjavík bera af flestum borgum
og hafa raunar batnað undanfarna áratugi.
Það er engu að síður mat Umhverfis
stofnunar Evrópu að um 80 ótímabær
dauðsföll megi árlega rekja til svifryks á
Íslandi. Þetta eru einhverjar lægstu tölur
í Evrópu en háar engu að síður. Til að
setja þær í samhengi má nefna að Laufey
Tryggvadóttir forstöðumaður hjá Krabba
meinsskrá Krabbameinsfélags Íslands
hefur metið það svo að 56 árleg dauðsföll
megi rekja til óbeinna reykinga á Íslandi,
með vísun til nýlegra breskra rannsókna.
Þótt einnig hafi dregið úr reykingum er
breið samstaða meðal lækna og heilbrigð
isstarfsfólks um að slaka ekki á klónni
við að draga úr þeim og áhrifum óbeinna
reykinga.
Uppspretta svifryks er langmest frá
umferð. Slit gatna, útblástur og sót frá bíl
um skiptir mestu en einnig óhreinindi frá
byggingaframkvæmdum. Betri loftgæði
síðustu ár hafa náðst meðal annars með
hvarfakútum, minni notkun nagladekkja
og þeirri skyldu sem innleidd hefur
verið að þvo vinnutæki sem fara út af
byggingarsvæðum. Notkun nagladekkja
virðist hins vegar aftur vera að aukast og
umferðin einnig sem er áhyggjuefni.
Í fyrsta lagi þarf að fylgja einarðlega
eftir aðgerðaráætlun um bætt loftgæði,
ekki síst þeim sem lúta að notkun
nagladekkja. Í öðru lagi þurfa heilbrigð
isnefndir sveitarfélaga eða sveitarfélög
að fá heimildir til að grípa til ráðstafana
þegar loftgæði eru slæm. Í þriðja lagi þarf
að breyta ferðamáta og styðja við þéttingu
byggðar (sem styttir vegalengdir) og
græna samgöngumáta. Þétting byggðar
og breyttar ferðavenjur eru eitt stærsta
umhverfis, loftslags og lýðheilsumál
samtímans.
Síðast en ekki síst þurfa læknar og
heilbrigðisstéttir að láta þessi mál sig
varða, taka þátt í umræðunni, kynna rök
og rannsóknir og vinna úttektir við ís
lenskar aðstæður. Án forystu lækna hefði
aldrei náðst sá árangur við að minnka
reykingar og óbeinar reykingar eins og nú
er staðreynd. Barnalæknar í Osló sýndu
stuðning svo um munaði við gjaldtöku
af nagladekkjum vegna áhrifa svifryks á
þroska lungna hjá börnum. Fordæmin eru
því mörg. Embætti landlæknis hefur þróað
mikilvæga lýðheilsuvísa sem ná til ferða
venja í samgöngum. Gera þarf slíkt hið
sama varðandi loftgæði, sú áhersla er bæði
tímabær, brýn og rétt.
Áttatíu ótímabær
dauðsföll árlega
Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna
í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar
í dagsins önn.