Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - mai 2019, Síða 50

Læknablaðið - mai 2019, Síða 50
254 LÆKNAblaðið 2019/105 L I P R I R P E N N A R Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og læknir dagur.b.eggertsson@reykjavik.is Áhrif loftgæða og svifryks á heilsufar hefur fengið aukið vægi undanfarin ár. Stjórnvöld undir forystu umhverfisráðu­ neytisins og Umhverfisstofnunar hafa sett fram metnaðarfulla áætlun um að vinna að bættum loftgæðum á Íslandi. Aðgerðirnar eru byggðar á alþjóðlegum rannsóknum og meginmarkmiðið er skýrt: „Að stuðla að loftgæðum og heilnæmu umhverfi.“ Undirmarkmiðin eru að fækka ótímabærum dauðsföllum af völdum loft­ mengunar í færri en 5 eftir 10 ár, fækka fjölda þeirra daga þar sem svifryk fer yfir heilsufarsmörk úr 20 niður í 0 og að ársmeðaltal brennisteinsvetnis verði áfram undir skilgreindum mörkum. Lengi vel var Heilbrigðisnefnd Reykja­ víkurborgar sú eina með viðbragðsáætlun í loftgæðamálum. Þetta hefur breyst hratt. Enn skortir þó heimildir til að grípa til aðgerða til að bregðast við spám um léleg loftgæði. Lagaheimildir þarf einnig til að taka gjald af nagladekkjum eða takmarka notkun þeirra. Sérstaka athygli vekur að í nýrri loftgæðaáætlun var eitt af megin­ atriðunum að setja heimildir til gjaldtöku í lög. Þær heimildir voru í frumvarpi til umferðarlaga á síðasta ári en voru horfin úr frumvarpinu sem lagt var fyrir Alþingi. Engar skýringar hafa komið fram á þessu og hlýtur það að vekja spurningar um hvort stjórnvöldum sé einhver alvara með loftgæðaáætlun sinni. Saga Reykjavíkur sýnir að læknar hafa iðulega gegnt lykilhlutverki við að ýta á eftir nauðsynlegum umbótum í heilbrigð­ ismálum. Þær umbætur sem mestu skipta hafa oft verið utan við viðfangsefni hins hefðbundna heilbrigðiskerfis. Guðmundur Björnsson læknir og bæjarfulltrúi, og síðar landlæknir, var fremstur í þeim flokki sem börðust fyrir vatnsveitu í Reykjavík og tók upp vatnsgjald til að fjármagna hana í upphafi síðustu aldar. Það var ótrúlega óvinsælt, jafnvel þótt eitt árið hafi 21 bæj­ arbúi látist af taugaveiki sem rekja mátti til þess að vatn í brunnum hafði spillst. Það jafngildir því að yfir 1000 Reykvík­ ingar hefðu látist á einum og sama vetrin­ um miðað við íbúafjölda nú. Vatnsgjaldið var engu að síður svo óvinsælt að Guð­ mundi var ráðlagt að bjóða sig ekki fram aftur eftir að hafa tryggt framgang þessa framfaramáls í bæjarstjórn! Guðmundur Hannesson læknir var í lykilhlutverki í umræðunni um heilsuspillandi húsnæði og betra borgar­ skipulag. Nær okkur í tíma má svo nefna Katrínu Fjeldsted lækni og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem vakti verðskuld­ aða athygli fyrir að standa með göngugöt­ um og aðgerðum til að auka áherslu á fólk en draga úr áherslu á bíla í borgarstjórn á 9. og 10. áratugnum. Þessi átök um fólk og umhverfi annars vegar og forgang bílaumferðar hins vegar eru enn áberandi og nátengd vandanum við að vinna gegn lélegum loftgæðum í borginni. En hver er staðan? Loftgæði á Íslandi eru einhver þau bestu í heiminum og loft­ gæði í Reykjavík bera af flestum borgum og hafa raunar batnað undanfarna áratugi. Það er engu að síður mat Umhverfis­ stofnunar Evrópu að um 80 ótímabær dauðsföll megi árlega rekja til svifryks á Íslandi. Þetta eru einhverjar lægstu tölur í Evrópu en háar engu að síður. Til að setja þær í samhengi má nefna að Laufey Tryggvadóttir forstöðumaður hjá Krabba­ meinsskrá Krabbameinsfélags Íslands hefur metið það svo að 56 árleg dauðsföll megi rekja til óbeinna reykinga á Íslandi, með vísun til nýlegra breskra rannsókna. Þótt einnig hafi dregið úr reykingum er breið samstaða meðal lækna og heilbrigð­ isstarfsfólks um að slaka ekki á klónni við að draga úr þeim og áhrifum óbeinna reykinga. Uppspretta svifryks er langmest frá umferð. Slit gatna, útblástur og sót frá bíl­ um skiptir mestu en einnig óhreinindi frá byggingaframkvæmdum. Betri loftgæði síðustu ár hafa náðst meðal annars með hvarfakútum, minni notkun nagladekkja og þeirri skyldu sem innleidd hefur verið að þvo vinnutæki sem fara út af byggingarsvæðum. Notkun nagladekkja virðist hins vegar aftur vera að aukast og umferðin einnig sem er áhyggjuefni. Í fyrsta lagi þarf að fylgja einarðlega eftir aðgerðaráætlun um bætt loftgæði, ekki síst þeim sem lúta að notkun nagladekkja. Í öðru lagi þurfa heilbrigð­ isnefndir sveitarfélaga eða sveitarfélög að fá heimildir til að grípa til ráðstafana þegar loftgæði eru slæm. Í þriðja lagi þarf að breyta ferðamáta og styðja við þéttingu byggðar (sem styttir vegalengdir) og græna samgöngumáta. Þétting byggðar og breyttar ferðavenjur eru eitt stærsta umhverfis­, loftslags­ og lýðheilsumál samtímans. Síðast en ekki síst þurfa læknar og heilbrigðisstéttir að láta þessi mál sig varða, taka þátt í umræðunni, kynna rök og rannsóknir og vinna úttektir við ís­ lenskar aðstæður. Án forystu lækna hefði aldrei náðst sá árangur við að minnka reykingar og óbeinar reykingar eins og nú er staðreynd. Barnalæknar í Osló sýndu stuðning svo um munaði við gjaldtöku af nagladekkjum vegna áhrifa svifryks á þroska lungna hjá börnum. Fordæmin eru því mörg. Embætti landlæknis hefur þróað mikilvæga lýðheilsuvísa sem ná til ferða­ venja í samgöngum. Gera þarf slíkt hið sama varðandi loftgæði, sú áhersla er bæði tímabær, brýn og rétt. Áttatíu ótímabær dauðsföll árlega Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar í dagsins önn.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.