Hugur og hönd - 01.06.2011, Page 2

Hugur og hönd - 01.06.2011, Page 2
Formannspistill Við lifum á spennandi tímum og við lifum á ótrúlegum tímum. Heimilisiðnaðarfélag Islands (HFI) er að verða 98 ára og má muna tímana tvenna, það hefur risið hátt og farið um öldudali. Stundum gengið vel og stundum miður en þannig er jú lífið. Við sem vinnum hjá HFT höfum reynt að nýta vel þau tæki- færi sem fylgt hafa í kjölfar kreppunnar sem sett hefur mark sitt á þorra þjóðarinnar. Aukinn áhugi á handverki og ásókn í að læra nýjar aðferðir hefur verið okkur mikið gleðiefni en á sama tíma hefur því miður verið dregið úr handverkskennslu í grunn- skólum. Það er því skylda okkar að bregðast við því. Síðastliðið sumar buðum við upp á sumarnámskeið fyrir börn, hálfsmánaðar námskeið frá kl. 10 til 16 á daginn. Námskeiðið var rnjög vel sótt og komust færri að en vildu. Það var líf og fjör hér í Nethylnum þessa fallegu daga í ágúst. Börn á aldrinum 7-14 ára skottuðust niður í Elliðaárdal í leit að köngulóm og heimsóttu Arbæjarsafnið til að fá andblæ liðinna ára í hugann. Þema námskeiðsins var indjánar og þegar því lauk voru gluggarnir fullir af draumaföngurum, köngulóarvef með risavöxnum köngulóm og auganu alsjáandi svo eitthvað sé nefnt. Síðasta daginn var haldið pylsupartý og var einstaklega skemmtilegt að sjá krakkana fallast í faðma og kveðjast með fögrum fyrirheitum um að vera fésbókarvinir og ekki síst að hittast hér að ári. Það er okkur mikilvægt að sjá til þess að hand- verksþekkingin lifi áfram með komandi kynslóðum. Handverkið hefur ætíð styrkt fjölskylduböndin, öldungar hafa kennt unga fólkinu handverkið. Ommur, sem prjóna vett- linga og sokka, kenna barnabörnum fyrstu handtökin í meðferð prjóna, heklunála og nála. Afar, sem smíða, tálga og hnýta, kenna á sama máta meðhöndlun á verkfærum svo að litlar hendur fari sér ekki að voða. Allt er þetta til að styrkja fjöl- skylduböndin og um leið styrkist sjálfsmynd lítils einstaklings til frambúðar. Margir gestir hafa sagt okkur hér í Nethylnum frá því að amma eða afi hafx kennt þeim til verka og það fylgir þessum sögum svo mikil hlýja og góð tilfinning. Já, þetta eru dýrmætar minningar. A síðasta sumri vorum við með nýjungar hér í Nethylnum. Fyrst ber að nefna að þegar vefnaðarnámskeið Lotte Dalgaard hófst opnuðum við sýningu á verkum hennar. Þetta var einstök sýning á frábærum verkum. Lotte Dalgaard er óumdeilanlega merkilegur frumkvöðull í sinni list, hún liggur heidur ekki á kunnáttu sinni og hönnun heldur miðlar og hvetur alla sem áhuga hafa á að nýta sér þekkingu sína. „Ef ég ekki miðla þessu áfram þá deyr þetta með mér“, sagði þessi geðþekka og skemmtilega kona. Hún heillaðist af landinu og er tilbúin til að koma aftur til okkar ef áhugi er fyrir hendi. Þegar sýningu á verkum Lotte Iauk settum við upp sýningu á íslenskum þjóðbúningum. Islendingar jafnt og fólk af erlendu bergi brotið sótti í að koma og skoða sýninguna og var almenn ánægja með þetta framtak. Markmiðið er að halda áfram með sýningar í húsnæðinu inn af versluninni næsta sumar. Það verð- ur líka auðvelt að auglýsa hana á nýju, fínu heimasíðunni okkar (www.heimilisidnadur.is) og hvet ég alla til að kynna sér hana. Norska heimilisiðnaðarfélagið hélt myndarlega upp á 100 ára afmælið sitt og hrifumst við Islendingarnir, sem afmælið sótt- um, af því hve vel tókst til. Sýningarnar vöktu mikla hrifningu sem og glæsileg afmælishátíð sem drottning Noregs tók þátt í. A afmælishátíðinni áttum við tvo glæsilega fulltrúa í hópi ungs handverksfólks, þær Erlu Sighvatsdóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur. Þær, ásamt öðrum 16-24 ára listamönnum sem komu víða að, tóku þátt í handverksdegi í Spikestubben í Osló. Stúlkurnar okkar sýndu vattarsaum og verk unnin í horn og bein og voru þær félaginu og landi sínu til mikils sóma. Þessu lauk svo öllu með pallborðsumræðum eftir innlegg frá öllum Norðurlöndunum. Guðrún Bjarnadótdr, Hadda, var með inn- legg fyrir Islands hönd og fjallaði hún um ungt fólk og hand- verk. Hlaut umfjöllun hennar mjög góðar viðtökur áheyrenda og þökkum við Höddu kærlega fyrir framlag hennar. Á Jónsmessu fjölmenntu uppábúnar konur á Arbæjarsafnið. Gengið var úr Nethylnum og vakti það mikla athygli þegar rúmlega 20 konur, í mismunandi þjóðbúningum, gengu eftir stéttunum á þessu fallega sumarkvöldi. Oddný Kristjánsdóttir kynnti og lýsti búningunum fyrir viðstöddum og þar sem þetta var svo skemmtilegt er stefnt á að endurtaka þennan viðburð. Með góhri kveðjn og þakklæti jyrir gott dr. Solveig Theodórsdóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélags Islands. Frá þjóðbúningasýningu sumarið 2010.

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.