Hugur og hönd - 01.06.2011, Blaðsíða 13
samkvæmt höfundarréttarlögum samið
mál í ræðu og riti, leiksviðsverk, tónsmíð-
ar, myndlist, byggingarlist, kvikmyndir,
ljósmyndalist, nytjalist og aðrar samsvar-
andi listgreinar. Handverk og hugbúnaður
teljast einnig vera vernduð af höfund-
arrétti.
Stundum geta hönnun og höfundarrétt-
ur farið saman. Það þýðir t.d. að þótt
Eggið eftir Arne Jacobsen sé ekki skráð
hönnun hér á landi (hönnun var fyrst
skráð á Islandi árið 1994) er ósennilegt að
einhver gæti framleitt og boðið til sölu
eftirlíkingar af stólnum án athugasemda.
Hönnun stólsins myndi að öllum líkind-
um teljast nytjalist og því falla undir höf-
undarrétt. Þess má geta að höfundarréttur
gildir í 70 ár eftir lát höfundar. Erfmgjar
hans gætu því átt réttinn að hönnuninni á
grundvelli höfundarréttar.
Tripp Trapp stóllinn frá Stokke og
Bombo stóllinn frá Magis eru dæmi um
hönnunar- og höfundarréttarmál sem
hafa farið fyrir íslenska dómstóla. Eigendur
hönnunarinnar kærðu þá aðila sem buðu
eftirlíkingarnar til sölu. Stokke kærði sölu-
aðila ^4//>/£4-barnastólsins sem þótti aug-
ljós eftirlíking af Tripp Trapp. Fyrirtækið
Magis stefndi söluaðila KINETIC-stólsins
þar sem hann þótti sömuleiðis einkennast
af hönnun Stefano Giovannoni fyrir
Magis. I báðum tilfellum var viðkomandi
söluaðilum meðal annars gert að eyða
óseldum birgðum og greiða fyrirtækinu
og hönnuðinum skaðabætur.
Heimsfrægur á Islandi
Hönnunarvernd er ávallt landsbundinn
réttur sem gildir í þeim löndum þar sem
sótt hefur verið um vernd.
Hámarksverndartími er 25 ár og skiptist
niður í fimm tímabil. Fyrir Islendinga er
ekki skylda að skrá hönnun fyrst hér á
landi til þess að geta sótt um vernd erlend-
is heldur getur viðkomandi farið beint í
útrás með hönnun sína. Island er meðal
annarra aðili að alþjóðlegum samningi
um hönnun sem gerir umsækjendum
kleift að sækja um vernd í mörgum lönd-
um í einu með einni umsókn.
Undanfarið hefur verið fjallað um það
í fréttum að íslenskri hönnun hafi verið
stolið. Það er því nauðsynlegt fyrir hönn-
uði að kynna sér þá skráningarmöguleika
sem í boði eru. Otvíræðir kostir eru
fólgnir í hönnunarvernd því með skrán-
ingu getur aðili komið í veg fyrir órétt-
mæta notkun annars aðila á eigin hug-
verki. Skráning hönnunar er hagkvæm
og einföld leið til að vernda hönnunina,
veitir einkarétt til að hagnýta hana og
auðveldar til muna sönnun á rétti til
hennar. Fjölgun skráðrar hönnunar hjá
Einkaleyfastofunni er dæmi um þá vakn-
ingu sem orðið hefur í þjóðfélaginu varð-
andi gildi og verðmæti hugvits.
Lokaorð
Það fer ekki á milli mála að mikil verð-
mæti geta leynst í hugverki og hönnun.
Það er því mikilvægt að hönnuðir sæki sér
upplýsingar til réttra aðila og fái aðstoð til
þess að vernda hugverk sitt á sem bestan
hátt. Einungis hönnuður eða sá sem sækir
rétt sinn til hans getur með skráningu
samkvæmt lögum um hönnunarrétt öðl-
ast einkarétt til hönnunar.
Einkaleyfastofan hefur á undanförnum
árum haft það að markmiði sínu að kynna
þá skráningarmöguleika sem stofnunin
hefúr upp á að bjóða. Þá má einnig finna
gagnlegar upplýsingar á heimasíðu stofn-
unarinnar www.els.is. Allar hönnunar-,
vörumerkja- og einkaleyfaskráningar eru
birtar í ELS-tíðindum, en það er rafrænt
tímarit Einkaleyfastofunnar sem gefið er
út 15. hvers mánaðar með nýjum skrán-
ingum.
Heimildir:
Lög um hönnun nr. 46/2001, með síðari breyting-
um; Reglugerð um skráningu hönnunar nr.
706/2001; Höfundarlög 73/1972 með síðari breyt-
ingum; www.els.is;www.myndstef.is; www.honn-
unarmidstodin.is
Þ j óðbúningas tofan
Nethyl 2E
110 Reykjavík
Sími 551 8987
GSM: 898 4331/898 1573
upphlutur@simnet.is
www.upphlutur.is
Saumum allar gerðir íslenskra búninga.
Mátum, breytum og metum eldri búninga.
Tökum í umboðssölu gamla búninga og búningasilfur.
HUGUROG HÖND 2011
13