Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 8

Hugur og hönd - 01.06.2011, Síða 8
Vigdís Stefánsdóttir Töfratöskur Þæfðar prjónatöskur Þessar flottu og stóru prjónatöskur eru nógu stórar til þess að geyma allt sem maður þarf og svolítið í viðbót. Þær vöktu mikla athygli á prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins í vetur og margir vildu fá uppskriítina. Það voru mæðgurnar Júlíana Þorvaldsdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir sem komu með töskurnar. En hvernig datt þeim í hug að prjóna svona töskur? „Mamma varð 65 ára og við fórum til Glasgow af því tilefni,“ segir Júlíana. „Þar rákumst við á litla sæta bókabúð sem seldi m.a. prjónabækur. Ein þeirra innihélt uppskriít að prjónatöskum og ákváðum við báðar að þetta langaði okkur til að prjóna. Bókin var keypt og flutt heim til Islands. Fljódega ákváðu mæðg- urnar að byrja prjónaskapinn og náðu sér í hespulopa frá Istex. Það má líka nota þrefaldan plötulopa ef vill. „Við ákváðum að vera með annað mynstur en var í bókinni og teiknuðum okkar eigið mynstur“ segir Júlíana sem raunar sést aldrei lengi án prjónanna frekar en mamma hennar. „töskurnar eru prjónaðar þannig að fram- og bakstykki eru prjónuð sér og ef á að vera mynstur er það prjónað í. Best er að nota svokallað „enskt prjón“ eða myndprjón við þetta. Síðan er botn og hliðar prjónaðar í einni Mœðgurnar Júlíana Þorvaldsdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir eru miklar prjónakonur. lengju. Ef sauma á í töskurnar þarf að gera það áður en saumað er saman og þæft. Það er mun betra að sauma töskurnar saman áður en þær eru þæfðar. Það er mismunandi hversu mikið maður vill þæfa en gott að hafa það nokkuð þétt. Við settum þetta í þvottavélarnar og það gekk ágætlega að þæfa. Svo eru töskurnar fóðraðar. Mamma vildi ekki hliðar í sína tösku heldur saumaði saman fram og bak.“ Höldurnar geta verið tir leðri, prjónaðar eða hvað annað sem er. Það má líka setja plexigler í botninn til að fá betra lag á töskurnar. Stærðin á töskunum er um það bil 70 sm breidd og 48 sm á hæð. 10PI PR4ÓNAR UPPSKPI RENNILÁ TÖLUR Handprjónasamband íslands Skólavörðustíg 19, Reykjavík • sími 552 1890 • www.handknit.is Rennilásar • sími 554 3525 • gengið inn Klapparstígsmegin QO kk 8 HUGUROG HÖND 2011

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.