Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 18

Hugur og hönd - 01.06.2011, Side 18
Úrtaka fyrir hálsmáli: Þegar 'bakstykki mælist 10 (11) cm frá aðallit er fellt af fyrir hálsmáli í þeirri hlið sem snýr að miðju baki: -1. umf. =fella af 6 lykkjur -2. og 3. umf = er felld af 1 lykkja í hvort skipti. Þegar bakstykki mælist 12 (13) cm eru síðustu lykkjurnar felldar af, sem þá mynda axlarstykki. Hitt bakstykkið er prjónað sem spegilmynd af fyrra bakstykki Framstykki(40 (44) lykkjur) Tekið er úr fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki. Urtaka fyrir hálsmáli: Þegar framstykki mælist 6 (7) cm eru felldar af miðju lykkjurnar (16 (16) lykkjur) þannig að 8 (10) lykkjur eru eftir á hvorum enda sem mynda axl- arstykki. Því næst eru hvert axlarstykki prjónað fyrir sig og í næstu tveim umferðum er tekin úr 1 lykkja í hverri umferð á þeirri hlið sem snýr að hálsmálinu (alls 2 lykkj- ur). Nú eru 6 (8) lykkjur eftir á hverju axlarstykki og það er prjónað þar til það mælist jafn langt og bakstykkið. Frágangur, ermar og hálslíning: Axlir eru saumaðar saman. Neðsti hluti handvegar á fram- og bakstykki eru saumaðir saman (2 cm upp frá slétta prjóninu) í hvorri hlið. Bakstykkin tvö eru saumuð saman neðstu 2 cm. Ermi: Teknar eru upp u.þ.b. 32 (36) lykkjur í ermagatinu. Byrjun umferðar er í hand- akrika. Prjónið með perluprjóni í hring fyrstu 7 (8) umferðirnar. Eftir 7 (8) umferðir eru felldar af 6 (8) lykkjur í byrjun umferðar og 6 (8) lykkjur í lok- inn. Hér eftir er ermin prjónuð fram og til baka. Prjónið því næst 1 (2) umferð án úrtöku. I næstu 2 umferðum eru felldar af 3 lykkjur á hvorum enda (alls 6 lykkjur í hvorri umferð). I næstu umferð á eftir eru síðustu lykkjurnar felldar af. Hin ermin er prjónuð á sama hátt. Hálslíning: Teknar eru upp passlega margar lykkjur á hálsmáli framanverðu (u.þ.b. 38 - 40 1). Lykkjur á bakstykki eru látnar bíða. Prjónaðar eru 5 (7) umferðir að framan. Takið því næst upp passlega margar lykkjur af bakstykkjum og prjónið 2 umferðir því næst er fellt af. Kaupið 3-4 passlega stórar tölur. Hnappagöt eru gerð með því að hekla eina umferð niður eftir miðju baki og gera lofltykkjur á milli, passlega margar sem er passandi fyrir stærð talanna. Sesselja Þórðardóttir Lopapeysa úr tölvu www.prjonamunstur.is Sverrir Pétursson leggur prjónakonum landsins lið með því að gera þeim kleift að hanna peysurnar í tölvu. Sverrir er kerfisfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og býr á Isafirði. Aður en hann hóf störf sem útgerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf. var hann vélstjóri til sjós í rúm 20 ár. Gefum Sverri orðið: Hugmyndin að forritinu varð til í bankahruninu haustið 2008. Kveikjan var prjónaskapur konunnar og tengda- dóttur. Eg byrjaði haustið 2009 að skrifa forritið. Frá hausti 2010 hef ég setið ansi stíft við öll kvöld og helgar. Nánast allur minn frítími hefur farið í forritið. í árs- byrjun 2011 skráði ég lénin prjonam- unstur.is og knittingpatterns.is. Þann 19. janúar 2011 setti ég svo forritið á vefinn á slóðinni http://prjonamunstur.is. Hugmyndin var að koma strax með grunnútgáfu af forritinu og þróa það áfram með athugasemdir notenda að leiðarljósi. I núverandi útgáfu er hægt að velja dömu- og herrastærðir og munsturbreidd frá 6 til 12 lykkjur. Allar uppskriftir miða við prjónfestu 13 lykkjur og 18 umferðir í 10 x 10 cm. Forritið miðar við Alafosslopa, léttlopa, plötu- lopa og kambg- arn. Hægt er að vista og opna uppskriftir. Að lokinni hönnun er svo hægt að búa til pdf-skjal með hefð- bundnum leið- beiningum til að prjóna peysuna. Mikið hefur verið spurt um barna- stærðir og breiðari munsturgeira. Ég er núna langt kominn með næstu útgáfu, þori þó ekki að nefna dagsetningu. Helstu nýjungar þar eru : • Breytileg prjónfesta. • Hægt að setja inn öll mál á peysum, vídd, ermalengd og sídd, hvort sem um er að ræða barna-, dömu- eða herrastærðir. • Hægt að velja staðlaðar stærðir, barna, dömu og herra. • Hægt að hafa munstur á ailri peys- unni. • Hægt að hafa misbreið munstur á ermum, bol og herðum. Eg mun halda áfram að þróa forritið enda klárast verkefni sem þetta aldrei. Eg hef fengið margar hugmyndir um við- bætur sem lúta að fjölbreyttari gerð peysa, spegla munstur og hafa vefsvæði þar sem hægt er að hlaða niður upp- skriftum frá öðrum og margt fleira. Prjónamunstur er einnig að finna á Facebook, www.facebook.com/prjonam- unstur. 18 HUGUR0G HÖND2011

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.