Fréttablaðið - 19.03.2020, Side 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Við höfum kannað
þessi mál og í
nánast öllum tilvikum hefur
þetta ekki átt við rök að
styðjast.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
Við þurfum að axla
samfélagslega
ábyrgð og heyra í fólkinu
okkar.
Kristína Erna
Hallgrímsdóttir,
verkefnastjóri
hjá Rauða krossi
Íslands
Við Þorragötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
REYKJAVÍKURBORG Matjurtagarðar
fyrir sumarið eru nú auglýstir til
umsóknar á vef Reykjavíkurborgar.
Leigan er 4.800 krónur fyrir svo-
kallaða fjölskyldugarða sem eru um
tuttugu fermetrar hver að stærð og
5.000 krónur fyrir 100 fermetra
garðland í Skammadal, sem er
innan marka Mosfellsbæjar.
Síðan eru átta fermetra garðar
í Logafold sem leigðir eru á 3.400
kr. Matjurtagarðarnir eru sam-
tals um sex hundruð, þar af eru
tvö hundruð í Skammadal. Garðar
við Jaðarsel í Breiðholti verða hins
vegar ekki á vegum í borgarinnar í
sumar heldur félagsins Seljagarðs.
„Garðarnir verða merktir og hægt
er að sækja um tætingu garða gegn
aukagjaldi. Vatn er í öllum görðum.
Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja
ekki með görðunum,“ segir á vef
borgarinnar.
„Garðarnir verða afhentir 1. maí,
en ef veður lofar geta garðyrkjendur
byrjað fyrr.“ – gar
Borgin auglýsir
matjurtagarða
100 kr.
af hverjum seldum
pakka renna til
átaksins Mottumars
COVID-19 Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra,
segir að framkvæmd sóttkvíar hafi
almennt gengið vel. Í sumum til-
vikum geti aðstæður verið snúnar
en fólk sé á heildina litið samvinnu-
þýtt.
Um 2.400 manns eru nú í sóttkví,
svipað og íbúafjöldi Hveragerðis, og
hækkar sú tala dag frá degi. Augljóst
er að löggæslukerfið myndi illa ráða
við að fylgjast grannt með hverjum
og einum.
Víðir segir að reglurnar séu mjög
skýrar, það er ef viðkomandi er í
sóttkví eigi hann ekki að hafa sam-
neyti við einstaklinga aðra en heim-
ilisfólk, og að embættið hafi fengið
ábendingar um hugsanleg brot. „Við
höfum kannað þessi mál og í nánast
öllum tilvikum hefur þetta ekki átt
við rök að styðjast,“ segir hann.
Skýringar geta verið til dæmis að
einstaklingur hafi lokið sóttkví
eða að sóttkví hafi verið aflétt þar
sem prufa hafi reynst neikvæð fyrir
veirunni. „Fólk er almennt sam-
vinnuþýtt og 99 prósent eru með
okkur í þessum aðgerðum.“
Samkvæmt Víði getur útfærsla
tveggja vikna sóttkvíar verið snúin
fyrir marga enda verulegt rask á
daglegu lífi, en sjálfur dvelur hann
á hóteli þar sem kona hans og dóttir
eru í sóttkví. Þá hefur útfærslan á
samkomubanninu og tveggja metra
reglu verið f lókin fyrir fyrirtæki
og þjónustuaðila. Embættið hefur
fengið ábendingar um að reglum sé
ekki fylgt á ákveðnum vinnustöð-
um. „Fólk hefur verið hugmynda-
ríkt við að reyna að leysa þetta og
við reiknuðum með að fólk þyrfti
nokkra daga til að finna taktinn og
aðlaga sig,“ segir Víðir.
„Fyrirspurnum og ábendingum
hefur fækkað snarlega milli daga
þannig að ég býst við að flestir séu
komnir með taktinn fyrir næstu
vikurnar.“ – khg
Segir langflesta fylgja reglum sóttvarnayfirvalda um sóttkví
COVID-19 Rauði krossinn hvetur
þá sem eru í félagslegri ein-
angrun um þessar mundir og
þurfa einhvern til að tala við,
til að fá sér símavin. Nú eru
rúmlega 180 sjálf boðaliðar í vina-
verkefnum Rauða krossins og fleiri
hafa sótt um að sinna slíkri þjón-
ustu og er því auðvelt að eignast
slíkan vin. Um er að ræða þjónustu
í ætt við heimsóknarþjónustu nema
það að samskiptin fara fram í gegn-
um síma.
Fjöldi fólks er í áhættuhópi fyrir
COVID-19 og veigra margir sér við
að fara út úr húsi til að blanda geði
við aðra. Er því mikil hætta á að fólk
við slíkar aðstæður lendi í félags-
legri einangrun. Búið er að leggja
af heimsóknarþjónustu til fólks í
áhættuhópi, þeir einstaklingar fá
nú símtal í staðinn.
Mikið álag hefur verið á Vinalínu
Rauða krossins að undanförnu. Þó
að sú þjónusta sé óskert þá hefur
þeim sem hringja reglulega verið
bent á að eignast símavin, hvort
sem það er tímabundið eða til lengri
tíma.
„Við mælumst til þess að sjálf-
boðaliðar okkar hringi styttri sím-
töl á hverjum einasta degi, fyrir
utan lengri símtöl tvisvar í viku,
til að koma í veg fyrir félagslega
einangrun,“ segir Kristína Erna
Hallgrímsdóttir, umsjónarmaður
verkefnisins hjá Rauða krossinum.
Faraldurinn hefur haft áhrif á
allt þjóðlífið, en samkvæmt nýlegri
könnun Gallup hafa einungis þrjú
prósent landsmanna ekki breytt
venjum sínum að neinu leyti. Í gær
voru staðfest smit hér á landi 250
talsins og um 2.400 manns í sóttkví.
Á heimsvísu hafa meira en 200 þús-
und smitast og átta þúsund látist.
Heimsóknir á heilbrigðisstofn-
anir og dvalarheimili eru bannaðar.
Skipulagt félagsstarf eldri borgara
liggur niðri að mestu leyti. Nú leggja
ríki og sveitarfélög áherslu á að við-
halda grunnþjónustu. Á þriðjudag
var stofnað viðbragðsteymi um
þjónustu við viðkvæma hópa, sem
mun vinna með markvissum hætti
að því að draga úr rofi á þjónustu.
Félög eldri borgara vinna hörðum
höndum að lausnum, bæði í sam-
starfi við sveitarfélög og með því
að bjóða upp á leiðbeiningar um
notkun snjalltækja.
„Við þurfum að axla samfélags-
lega ábyrgð og heyra í fólkinu
okkar. Taka upp tólið. Maður hefur
tekið eftir að það gleymist svo oft að
heimsækja eldra fólk, við gleymum
okkur svo oft í eigin daglega amstri,“
segir Kristína. „Margir eiga ekkert
tengslanet og það er frábært að þau
hafi samband við okkur. Svo eru
margir sem eru með fólk á bak við
sig en fá samt sjaldan heimsóknir.
Við höfum fengið dyggan stuðning
frá samfélaginu síðastliðnar vikur
og þökkum við þann hlýhug sem
við höfum fengið.“
arib@frettabladid.is
Hvetja alla til að taka upp tólið
Mikið álag er á vinalínu Rauða krossins vegna COVID-19 faraldursins. Almenningur er hvattur til að
hringja í nákomna og þeir sem eiga á hættu félagslega einangrun eru hvattir til að nýta sér símavini.
Víðir segir fólk og fyrirtæki hug
myndarík í útfærslum á samkomu
banni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Margir veigra sér við að blanda geði við aðra og því er aukin hætta á félagslegri einangrun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð