Fréttablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 6
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
Tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum til verkefna sem
framkvæmd verða á tímabilinu 1. júlí - 31. desember 2020.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að
kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.
Umsóknarfrestur rennur út 4. maí 2020 kl. 16.00.
Ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.
Umsjónaraðili:
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími: 515 5800, tonlistarsjodur@rannis.is
Styrkir úr
Tónlistarsjóði
Umsóknarfrestur til 4. maí
ára
COVID-19 „Unnið er hörðum hönd-
um að því að tryggja stöðu lyfja-
birgða með öllum hagsmunaað-
ilum,“ segir í svari Lyfjastofnunar
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Alma Möller landlæknir minnti á
upplýsingafundi á þriðjudag lyfja-
fræðinga í apótekum á fyrirmæli
Lyfjastofnunar um að afgreiða ekki
meira af lyfjum en venjulega. Og
fylgja þeim tíma sem eigi að líða
á milli afgreiðslna á fjölnota lyf-
seðlum.
„Við höfum ekki ástæðu til að
ætla annað en að fyrirmælum
stofnunarinnar hafi verið fylgt
af lyfsölum,“ svarar Lyfjastofnun
fyrirspurn Fréttablaðsins af þessu
tilefni.
„Lyfjastofnun hefur orðið vör
við nokkra aukningu og hefur því
biðlað til allra að hamstra ekki lyf
til að ógna ekki stöðu lyfjabirgða á
landinu að óþörfu,“ segir jafnframt í
svörum stofnunarinnar. „Við sjáum
nokkra aukningu og er hún nokkuð
jöfn milli lyfja.“
Enn fremur segir Lyfjastofnun
að birgðastaða lyfja í landinu sé
góð. „Er þar hægt að þakka góðu
samstarfi við alla hagsmunaaðila
í aðfangakeðju og sölu lyfja. Fylgst
er með stöðunni daglega og gripið
til aðgerða þegar þörf krefur,“ segir
í svörunum.
Þá kveður Lyfjastofnun ekki útlit
fyrir lyfjaskort eins og málin horfa
við nú. „Lykilatriði er að fólk taki
ekki upp á því að hamstra lyf því
það er engin þörf á því,“ er ítrekað
í svarinu.
Minnt er á að fram hafi komið
að gripið hafi verið til ráðstafana í
Evrópu til að sporna við lyfjaskorti.
Lyfjastofnun eigi í stöðugum sam-
skiptum við alla hagsmunaaðila hér
heima og erlendis sem geti minnkað
líkur á lyfjaskorti vegna COVID-
19. „Fylgst er grannt með stöðu mála
og hún endurmetin daglega.“ – gar
Segja unnið hörðum höndum að því
að tryggja stöðu lyfjabirgða í landinu
Landlæknir vill að lyfsalar fylgi fyrirmælum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 „Starfið hefur eiginlega
gengið vonum framar þessa tvo
daga. Það sem er gott og jákvætt er
að skipulagið hefur allt gengið upp.
Nemendur, foreldrar og starfsfólk
hafa staðið sig með þvílíkum sóma
og virt allar þessar áætlanir sem
við höfum gert,“ segir Hreiðar Sig-
tryggsson, skólastjóri Langholts-
skóla.
Frá því að samkomubann tók
gildi vegna útbreiðslu kórónaveir-
unnar hefur starf í leik- og grunn-
skólum landsins tekið miklum
breytingum. Unnið er í smærri
hópum og er skóladagurinn styttur.
Í gær hafði tveimur grunnskólum
í Reykjavík, Háteigsskóla og Kletta-
skóla, verið lokað tímabundið eftir
að smit kom upp meðal starfs-
manna. Þá hefur Grunnskóla Húna-
þings vestra á Hvammstanga verið
lokað og allir nemendur og starfs-
menn komnir í sóttkví.
Leikskólarnir Laufskálar, Stakka-
borg og Nóaborg í Reykjavík hafa
einnig lokað tímabundið, þeir tveir
síðarnefndu vegna gruns um smit.
Nemendur í 10. bekk Hagaskóla
mæta ekki í skólann í dag af sömu
ástæðu á meðan beðið er niður-
stöðu úr sýnatöku.
Hreiðar segir að í Langholtsskóla
sé nemendum skipt í tvo hluta og
mæti þeir annan hvern dag. „Svo
búum við svo vel að vera að vinna
mikið rafrænt á unglingastigi og þar
getum við mætt nemendum betur
með fjarkennslu,“ segir Hreiðar.
Hann segir að nú skipti mestu
máli að halda lífinu gangandi og
búa til rútínu fyrir nemendur.
„Kennslan er auðvitað ekki sú
sama. En það er bara þetta stóra
verkefni í samfélaginu að halda
hugarró. Svo vitum við auðvitað
ekki hvernig næsti dagur verður.
Það sýna allir samstöðu og yfirveg-
un og ég held þetta geti ekkert orðið
mikið betra miðað við aðstæður.“
Í skólanum eru um 700 nemendur
og starfsmenn eru um hundrað tals-
ins. Enn sem komið er hefur ekkert
smit greinst í hópnum. „Við erum
ansi heppin með það en það eru
nokkuð margir nemendur sem for-
eldrar kjósa að halda heima.“
Hreiðar segir að áætlun hafi verið
gerð fyrir þessa viku og svo þurfi að
taka stöðuna aftur og gera áætlun
fyrir næstu viku.
„Núna erum við fyrst og fremst
að hugsa um að halda bara áfram,
að stoppa ekki allt saman. Við
erum auðvitað bara að taka þátt
í þessu eins og allt samfélagið að
dreifa þessu álagi og halda út eins
lengi og við getum,“ segir Hreiðar.
sighvatur@frettabladid.is
Hugsa fyrst og fremst
um að allt stoppi ekki
Samkomubann vegna COVID-19 faraldursins setur mark sitt á allt samfélagið
þessa dagana og eru skólarnir þar ekki undanskildir. Skólastjóri Langholts-
skóla segir foreldra, nemendur og starfsfólk standa sig með miklum sóma.
Í Langholtsskóla er unnið í smærri hópum og skóladagurinn er styttur hjá nemendum FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við erum ansi
heppin með það en
það eru nokkuð margir
nemendur sem foreldrar
kjósa að halda heima.
Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri
1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð