Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2020, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 19.03.2020, Qupperneq 11
Agnar Tómas Möller, f o r s t ö ð u m a ð u r s k u l d a b r é f a hj á Júpíter, segir mikil­vægt að Seðlabanki Íslands horfi til ann­ arra seðlabanka og styðji beint eða óbeint við fjármögnun á halla­ rekstri ríkissjóðs. Bankinn verði að gefa afdráttar­ laus skilaboð í þá veru „svo að markaðsvextir fari ekki að rjúka hér upp á versta tíma og eyði út þeirri slökun í peningalegu aðhaldi sem bankinn er að reyna að miðla áfram“. Hann segir hallarekstur ríkis­ sjóðs hanga „eins og sverð Dam­ óklesar yfir markaðinum“. Skuldabréfafjárfestar tóku illa í óvænta ákvörðun Lánamála rík­ isins um að stórauka útgáfu ríkis­ bréfa á öðrum fjórðungi ársins – þannig að hún geti orðið allt að fjörutíu milljarðar króna – en til marks um það rauk ávöxtunarkrafa verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa upp í viðskiptum gær­ dagsins. Sem dæmi hækkaði krafa slíkra bréfa á lengri endanum um á bilinu 14 til 32 punkta. Vextir á útlánum meðal annars banka og lífeyris­ sjóða fylgja að jafnaði breytingum á kröfu umræddra bréfa. „Mér heyrist markaðurinn hafa nokkrar áhyggjur af því að stór­ aukið framboð ríkisbréfa geti vegið gegn þeirri viðleitni Seðlabankans að lækka vaxtastigið í hagkerfinu,“ segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhag­ fræðingur Íslandsbanka. Hann telur þó rétt að „leyfa ryk­ inu að setjast í þeim efnum“, eins og hann orðar það, „enda á bæði eftir að skýrast hversu umfangsmikil slík útgáfa verður og eins því hvort spurn lífeyrissjóða og annarra inn­ lendra aðila eftir ríkistryggðum bréfum muni ekki aukast á kom­ andi vikum og mánuðum“. Eftir hálfs prósentustigs stýri­ va x t a læk k u n peningastef nu­ nefndar í gær – úr 2,25 prósentum í 1,75 prósent – hafa vextir bankans lækkað um 2,75 prósentustig frá því í maí í fyrra. Fram kom í máli Ásgeirs Jónsson­ ar seðlabankastjóra á fundi Seðla­ bankans í gærmorgun að bankinn byggi yfir „ótal tækjum“ til þess að bregðast við því efnahagsáfalli sem nú dynur yfir vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. „Við erum bara rétt að byrja,“ sagði Ásgeir. Aðspurður segir seðlabankastjóri að það sé möguleiki að þau tæki verði dregin fram á næstu vikum. „Við erum að skoða hvert og eitt þeirra um þessar mundir. Núna vorum við að beita einu þeirra, með lækkun sveiflujöfnunaraukans, en við getum líka meðal annars beitt efnahagsreikningi bankans. Við erum hins vegar lítið opið hag­ kerfið og það gerir hlutina ekki auðveldari heldur erfiðari,“ segir Ásgeir í samtali við Markaðinn. Auk vaxtalækkunar peninga­ stefnunefndar ákvað f jármála­ stöðugleikanefnd bankans að af létta tveggja prósenta kröfu um sveif lujöfnunarauka á banka, en af léttingin skapar svigrúm til nýrra útlána til sem nemur allt að 350 milljörðum króna. Lausafé að þurrkast hratt upp Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðal­ hagfræðingur Kviku, segir að mörgu leyti skiljanlegt að ríkið vilji auka útgáfu ríkisbréfa til þess að fjármagna fyrirséðan hallarekstur. Spurningin sé hins vegar hver eigi að kaupa bréfin. Ekki sé víst að það sé skynsamlegt að ríkið dragi til sín mikið innlent lausafé á meðan slíkt fé sé að þurrkast hratt upp í einka­ geiranum. „Ef lífeyrissjóðirnir draga úr erlendum fjárfestingum sínum vegna stöðunnar á erlendum mörk­ uðum,“ útskýrir hún, „gætu þeir vel keypt útgáfuna. Hins vegar þarf að spyrja sig hvort það sé skynsamlegt að inn­ lendir aðilar kaupi útgáfuna við núverandi aðstæður þar sem víða er verið að ganga á sjóðsstöðu. Í mörgum tilfellum eru litlar sem engar tekjur að koma inn. Ef ríkið tekur þessar krónur til sín fjarlægir það lausafé úr einkageiranum. Þó krónurnar rati smám saman aftur út í kerfið í formi ríkisumsvifa tekur það tíma. Miðað við hvað hlutirnir eru að þróast hratt þessa dagana gæti það skapað vanda­ mál til skamms tíma á meðan fjár­ magnið er ekki í umferð. Umfang þessara aðgerða og tímalína skiptir því miklu máli,“ nefnir Kristrún. Daníel Svavarsson, forstöðumað­ ur hagfræðideildar Landsbankans, segir það augljóst að fyrirhuguð ríkisbréfaútgáfa muni hafa áhrif á lausafjárstöðuna í kerfinu ef ekki verði gripið til neinna stýfingarað­ gerða á móti. „Það er ljóst að íslenska ríkið mun, rétt eins og önnur ríki, þurfa að fjármagna stóran hluta af inn­ spýtingaraðgerðum sínum með lántöku. Í langf lestum tilfellum hafa seðlabankar ríkjanna hins vegar einhverja aðkomu að því,“ nefnir Daníel. Hann segist ekki efast um að bein skuldabréfakaup Seðlabankans komi til greina ef það verði mikil lausafjárþurrð í kerfinu. Það eigi eftir að skýrast. Seðlabankastjóri sagðist á fund­ inum í gær ekki útiloka slíkar aðgerðir. Þær hefðu þó ekki enn komið til tals á vettvangi peninga­ stefnunefndar. Skoði mótvægisaðgerðir Kristrún segist hafa skilning á því að Seðlabankinn sé ekki tilbúinn, eins og er, til þess að ráðast í bein skuldabréfakaup á markaði. Þó sé mikilvægt að bankinn skoði ýmsar mótvægisaðgerðir við ríkisútgáf­ una ef hún fer í hendur innlendra fjárfesta, en í því sambandi nefnir hún meðal annars að hann geti gert f leiri bréf, til dæmis bankabréf og fasteignabréf, veðhæf í viðskiptum við sig. „Það þarf þó að hafa í huga að bankabréfin eru tryggð með hús­ næðislánum og er ekki sjálfgefið að gefa endalaust út af slíkum bréfum á skömmum tíma,“ útskýrir Krist­ rún og bætir við: „Þá er Seðlabankinn einnig að eftirláta bönkunum peningaprent­ unarvaldið að hluta til með því að gera bréfin veðhæf. Ef til vill er þá allt eins gott að hann stígi bara sjálfur inn. Kannski þarf að gera bæði ef aðstæður halda áfram að breytast. Aðalmálið nú er að Seðlabankinn komi þeim skila­ boðum skýrt á framfæri að hann sé meðvitaður um lausafjárstöðuna í kerfinu og að hann muni passa upp á hana ef útgáfa ríkissjóðs skapar tímabundinn skort á lausafé,“ nefnir hún. Aðspurður um þau ummæli Ásgeirs að bankinn sé „rétt að byrja“ í aðgerðum sínum, segir Daníel að mögulega sé verið að vísa til frekari vaxtalækkana. Hafa verði þó í huga að slík aðgerð hjálpi fyrir­ tækjum ekki endilega við að f leyta sér í gegnum lausafjárvanda, þó svo að vaxtalækkanir séu hjálplegar þegar efnahagsbatinn hefst. Jafnframt geti seðlabankastjóri verið að vísa til þess að bankinn muni beita sér með kaupum á bréfum á markaði eða frekari inn­ gripum á gjaldeyrismarkaði. „Venjulega eru seðlabankar frem­ ur varkárir í yfirlýsingum sínum og gefa lítið til kynna um aðgerðir nema þær séu tilbúnar. Þess vegna voru þessi ummæli dálítið sérstök,“ segir Daníel. Hallarekstur ríkissjóðs hangir eins og og sverð Damóklesar yfir markaðinum. Agnar Tómas Möller, forstöðu- maður skulda- bréfa hjá Júpíter Aðalmálið nú er að Seðlabankinn komi þeim skilaboðum skýrt á framfæri að hann sé meðvit- aður um lausafjárstöðuna í kerfinu. Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðalhagfræð- ingur Kviku Útgáfan vinni gegn peningastefnunni Verðhrun varð á skuldabréfamarkaði vegna ákvörðunar Lánamála um að stórauka útgáfu ríkisbréfa. Forstöðumaður hjá Júpíter segir brýnt að Seðlabankinn styðji við fjármögnun á hallarekstri ríkisins. Hagfræðingar vilja að bankinn skoði mótvægisaðgerðir. Seðlabankastjóri segist hafa orð bankanna sem tryggingu Ásgeir Jónsson seðlabanka- stjóri segist hafa orð bankanna sem tryggingu fyrir því að þeir muni fara eftir tilmælum fjármálastöðugleikanefndar sem hefur brýnt fyrir þeim að taka tillit til þeirrar óvissu sem uppi er í þjóðarbúskapnum við ákvörðun um útgreiðslu arðs og endurkaup á eigin hlutabréfum á komandi misserum. Spurður hvort nefndin sé í yfir- lýsingu sinni einkum að beina orðum sínum til Arion banka, sem er eini bankinn í einkaeigu og skráður á markað, segir Ásgeir að svo sé ekki enda hafi eigandi hinna bankanna, ríkissjóður, einnig verið með áform um arð- greiðslur. Fjármálastöðugleikanefndin segist einnig „ætlast til þess að það svigrúm sem lækkun sveiflu- jöfnunaraukans skapar, verði notað til að styðja við heimili og fyrirtæki. Fylgst verður vel með viðbrögðum bankakerfisins,“ segir í yfirlýsingu hennar. Ásgeir segist hafa átt samtal við forsvarsmenn bankanna í síðustu viku þar sem þeim hafi verið gert ljóst að lækkun sveiflujöfnunaraukans kæmi aðeins til greina að uppfylltum þeim skilyrðum.  Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, sem sjást hér, kynntu ákvarð- anir nefnda bankans á fundi hans í gærmorgun ásamt Þórarni G. Péturssyni, framkvæmdastjóra hagfræði og peningastefnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is MARKAÐURINN 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.