Fréttablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 13
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Vitanlega yrðu bæði Joe Biden og Bernie Sanders himnasend- ing í embætti forseta Bandaríkj- anna miðað við það stórslys sem Donald Trump er. Þrátt fyrir þessar fordæma- lausu að- stæður er afar brýnt að hlúa að menn- ingunni. Genesis® II E-610 GBS Verð: 219.950 kr. Einn valdamesti og um leið hættulegasti maður heims situr í Hvíta húsinu og sendir nær daglega frá sér alls kyns fjar-stæðu á Twitter. Þar trompar hann sjálfan sig hvað eftir annað, eins og hann gerir á blaðamannafundum þar sem opinberast greinilega að hann hefur nánast ekkert vit á þeim málum sem hann er að tjá sig um. Það er til háðungar fyrir Bandaríkin að maður af þessari sort skuli hafa verið kosinn forseti Banda- ríkjanna. Það hlýtur einnig að teljast áfellisdómur yfir Bandaríkjunum að ekki skuli finnast öflugur frambjóðandi gegn honum. Karlmennirnir tveir sem nú etja kappi um að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins eru hátt á áttræðisaldri og bera með sér hrumleika. Í hvert sinn sem þeim bregður fyrir á sjónvarpsskjá í kappræðum eða viðtölum óttast velviljaðar sálir einna mest að þeir muni hníga niður, ellimóðir. Vitanlega yrðu bæði Joe Biden og Bernie Sanders himnasending í embætti forseta Bandaríkjanna miðað við það stórslys sem Donald Trump er. Freistandi er að ætla að Bandaríkjamenn hefðu getað fundið ferskari frambjóðendur. En ekki vildu þeir konu með hugmyndir og lausnir og ekki vildu þeir heldur nútímalegan samkynhneigðan fram- bjóðanda. Síst skal því haldið fram að fólk sem er komið á elliár hafi ekkert fram að færa. Það býr yfir lífs- reynslu og þroska og vonandi visku sem það getur auðveldlega deilt með öðrum. En óneitanlega er auðvelt að verða hugsi yfir þeirri staðreynd að forseti Bandaríkjanna er 73 ára og keppinautarnir í Demó- krataflokknum sem setja stefnuna á eitt valdamesta embætti heims eru 77 ára og 78 ára. Myndin sem heimurinn fær af valdastrúktúr í bandarískum stjórnmálum er af samfélagi gamalla karla sem telja sér allt fært. Eitt af fáum gleðilegum uppbrotum í þessari karlasamsetningu er þegar Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sýnir af sér alkunnan skörungskap, 79 ára gömul. Hún er undan- tekning frá því sem virðist vera regla, að konur sem komnar eru af léttasta skeiði fái ekki vinnu. Fyrir fram hefði mátt ætla að fjarska auðvelt yrði að vinna Donald Trump í forsetakosningum, eftir að hann hefur hvað eftir annað opinberað algjöra van- hæfni sína í embætti. Stórum hópi kjósenda þykir samt töff að hann skuli líta á konur sem leikföng, stimpla múslima sem hryðjuverkamenn og flokka stóra hópa innflytjenda sem glæpamenn. Hann þykir ímynd hins sterka karlmanns sem segir það sem aðrir hugsa en þora ekki að segja upphátt. Joe Biden lýsti því yfir fyrir skömmu að hann vildi að varaforsetaefni sitt yrði kona. Bernie Sanders lýsti sömuleiðis yfir áhuga á að velja konu sem varafor- setaefni sitt. Heimurinn þarf á því að halda að losna við Donald Trump úr embætti. Ef sá sem velst til þess að velta honum úr sessi er karlmaður um áttrætt þá verður svo að vera. Sá öldungur verður með konu með sér – til vara. Konur fá einmitt oft slíkt hlutverk; að vera bara til vara. Kona til vara Áttum að vinna Kórónuveiran var slæm og óþolandi fyrir, en nú þegar búið er að blása af Eurovision vegna faraldursins er virkilega reynt á þolinmæði okkar Íslendinga. Sem betur fer náðum við að halda undankeppni til að svala þorsta okkar fyrir missæmilegri músík. Við höfum alltaf vitað að við værum að fara að vinna keppnina. Við vissum að við myndum vinna með Gleðibank- anum fyrir nærri fjórum ára- tugum og sumir eru enn að bíða eftir að sænska lagið frá 1999 verði dæmt ógilt og Selma krýnd réttmætur sigurvegari. Sama ætti við um Norðmanninn með fiðluna árið 2009 ef hann væri ekki svona fjári krúttlegur. Aldrei gleymt Síðustu ár höfum við alveg getað sagt okkur að við myndum ekki vinna, samt með þá von í maganum að Evrópa fengi „Ég á líf“ eða pappírslagið með Svölu á heilann. Daði og Gagnamagnið var það sem átti að f leyta okkur alla leið. Það hafa veðbankar sagt og tilfinning okkar. Þessa árs verður ávallt minnst sem ársins sem Ísland fékk ekki að vinna Eurovision. Það mun áttræður Gísli Marteinn minna okkur á við upphaf útsending- arinnar á keppninni árið 2050. Líklega verður þessi aumingjans þjóð þá enn sigurlaus í þessari keppni sem við dáum svo. arib@frettabladid.is Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmála- ráðherra. Þegar á reynir hefur íslenska þjóðin styrkt böndin og horft fram á við. Nú stöndum við sannarlega frammi fyrir flóknum viðfangsefnum í baráttunni við COVID-19, ekki síst vegna samkomubanns sem síð- ast var í gildi fyrir rúmri öld. Fyrsta skrefið í baráttunni gegn veirunni snýr að heilsuvernd, enda nauðsynlegt að hefta útbreiðslu hennar. Samhliða þarf að huga að efnahagslegum og félagslegum viðbrögðum. Neikvæð efnahagsleg áhrif veirunnar eru einhver þau mestu sem alþjóðakerfið hefur séð í langan tíma. Þess vegna þarf umfang efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar að vera verulegt. Þrátt fyrir þessar fordæmalausu aðstæður er afar brýnt að hlúa að menningunni. Íslenskt menningarlíf hefur lengið staðið í blóma og mun áfram blómstra þótt tímabundinn skuggi hafi fallið á samfélagið. Útilista- verk færa okkur gleði í nauðsynlegum heilsubótar- göngum. Íslenskir listamenn, menningarstofnanir og sjálfstæðir listhópar hafa einnig fundið leiðir til að færa okkur menninguna heim. Streymi, beinar útsendingar og upptökur frá tónleikum, upplestri og leiksýningum eru hafnar og bækur bíða lestrar á náttborðum um allt land. Myndlist bætir lit í gráan hversdagsleikann og íslenskar kvikmyndir létta lund margra, sem komast ekki út meðal fólks. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur stofnað samráðshóp með helstu lykilaðilum í menningarmálum um land allt, til að vinna að því mikilvæga verkefni að halda uppi starfsemi listastofnana við þær óvenjulegu aðstæður sem hafa nú skapast. Fundir hópsins sýna að mikil samstaða ríkir og eru allir reiðubúnir að leggjast á eitt til að minnka skaðann. Ekkert af þessu er þó sjálfsagt. Við höfum valið að fjárfesta í menningu og listum með margvíslegum hætti og afraksturinn er óumdeildur. Núverandi aðstæður hafa til dæmis komið illa við tónlistarmenn, sem hafa orðið fyrir miklu tekjutapi vegna viðburða, sýninga og tónleika sem fallið hafa niður. Í mörgum tilvikum eru þetta listamenn sem eru fyrstir til að gefa vinnu sína fyrir góðan málstað, og nú er það okkar hinna að finna leiðir til að styðja þá. Gerum það sem þarf! Framlag listafólks lofsvert 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.