Fréttablaðið - 19.03.2020, Side 21
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Jogginggallar hafa mikið sést á tískusýningum undanfarið, en þegar Lacoste kynnti
vetrartískuna á tískuvikunni í
París í haust mátti sjá jogging-
galla í ýmsum litum. Margir voru
með óhefðbundnu sniði og jafnvel
poppaðir upp með því að para þá
við spariskó og snyrtilega leður-
hanska og jafnvel síðar skinn-
kápur.
Þá hefur sést til fólks mæta á
uppákomur á förnum vegi, þar
sem snyrtilegur klæðnaður er
æskilegur, klætt jogginggalla
og síðkápum líkt og sést hefur á
sýningarpöllunum og jafnvel í
háhæluðum skóm við. Fólk hefur
einnig sést í jogginggöllum með
skartgripi og í fallegum kápum
við á leið til vinnu og við annað
hversdagslegt amstur. Það er því
ljóst að jogginggallar í dag eru
langt frá því að vera einungis ætl-
aðir til íþróttaiðkunar og útivistar
ásamt því að vera auðvitað ein-
staklega þægilegur heimaklæðn-
aður. Jogginggallatískan virðist
falla vel í kramið hjá ríka og fræga
fólkinu sem oft leggur línurnar
í tísku almennings. Söngkonan
vinsæla, Billie Eilish, sést sjaldan í
öðru en jogginggalla en hún hefur
sést í slíkum við hinar ýmsu verð-
launaathafnir, oftast frá þekktum
hönnuðum.
Það vekur ef laust ánægju
margra að kósí heimafatnaður sé
í tísku en það er fátt þægilegra en
víður jogginggalli. Ef fólk er ekki
of upptekið af merkinu er líka
hægt að fá jogginggalla á frekar
góðu verði. Þá má svo bara poppa
upp með skartgripum og leður-
hönskum, sólgleraugum og töff
skóm, líkt og Hollywoodstjörn-
urnar gera og þá er kominn hinn
fínasti samkvæmisklæðnaður.
Það er nefnilega algjör óþarfi að
tolla ekki í tískunni þó að fólk
kjósi þægilegan klæðnað.
Fyrir þau sem eru í heima-
sóttkví er líka tilvalið að klæða
sig í jogginggalla til að hressa sig
við og upplifa sig smart. Það má
dunda sér við að finna klúta og
skart og fylgihluti sem fara vel
við jogginggallann svo hægt sé að
líða eins og stjörnu meðan setið er
uppi í sófa og hámhorft á þætti á
Netf lix. Nú og ef það kemur asna-
lega út þá gerir það ekkert til því
vitnin eru fá.
Jogginggallar og hælaskór
Svo virðist vera sem jogginggallar séu í tísku ef marka má sýningarpalla tískuhúsanna og
klæðnað ríka og fræga fólksins sem mætir íklætt þeim á hina ýmsu viðburði utanlands.
Fyrirsætan
og leikkonan
Tiffany Hsu í
ljósgulri kápu
og samlitum
joggingalla á
leið á tísku-
sýningu á tísku-
vikunni í New
York í haust.
MYNDIR/GETTY
Fyrirsæta í skræpóttum joggingalla
á tískuhátíðinni í Melbourne í Ástr-
alíu sem fór fram snemma í mars.
Haust og
vetrartískan
2020-2021 hjá
Lacoste inni-
heldur alls kyns
jogginggalla.
Stílistinn Maria Barteczko sást í
gráum jogginggalla við gula kápu á
tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Söngkonan
Billie Eilish
notar jogging-
galla við flest
tilefni. Hér er
hún á bresku
tónlistarverð-
laununum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R