Fréttablaðið - 19.03.2020, Page 23
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þótt f lestir vilji klæða sig á daginn eru örugglega ein-hverjir sem vilja bara hafa
það kósí fyrir framan sjónvarpið.
Það er lítill vandi þegar úrvalið
af fallegum náttfötum er gríðar-
mikið í netverslunum. Einnig
er skemmtilegt að skoða sögu
náttfata en þau urðu ekki almenn
eign fyrr en á tuttugustu öldinni.
Það voru breskir nýlenduherrar
sem fluttu þau með sér heim
frá Austurlöndum fjær. Íbúar í
Hong Kong, á Indlandi og víðar
höfðu klæðst þægilegum og
léttum buxum og bol áður en þeir
gengu til hvílu. Bretarnir kölluðu
klæðnaðinn náttföt eða „pyjamas“
sem er komið úr persnesku.
Á þriðja áratugnum náði nátt-
fatatískan til amerískra Holly-
woodmynda og þar fóru að birtast
glæsileg silki- og satínnáttföt.
Fyrsta myndin var It Happened
One Night frá 1934, þar sem
Claudette Colbert og Clark Gable
fóru með aðalhlutverkin. Í mynd-
inni sést Claudette í karlmanns-
náttfötum en sú sena vakti mikla
athygli. Á sjötta áratugnum fóru
konur að sjást í náttfötum með
stuttum buxum sem var forveri
svokallaðra baby doll náttfata sem
urðu gífurlega vinsæl á sjöunda
áratugnum. Þá voru líka
fundin upp náttfatapartý
hjá unglingum. Á tímabili
sáust konur keyra börnin
sín í skólann og fara í
matvörubúð á nátt-
fötunum en síðar þótti
það ekki mjög smart.
Coco Chanel var
fyrst kvenna til að
sýna sig á silkinátt-
fötum utanhúss.
Stór tískuhús
fóru að framleiða
glæsileg silki-
náttföt og nú fást
slík frá f lestum
þekktum tísku-
merkjum, má þar
nefna til dæmis
Armani, Dolce & Gabbana, Ralph
Lauren auk margra annarra.
Glæsileikinn er allsráðandi í nátt-
fötum tískuhúsanna og efnin ekki
síðri. Þægindi eru höfð að leiðar-
ljósi eins og sjá má á myndunum
hér til hliðar. Nú geta allir klætt sig
í glæsileg silkináttföt og átt nota-
legar stundir heima.
Á náttfötunum heima fyrir
Í þessu óvenjulega ástandi sem nú ríkir er um að gera að hafa það notalegt heima sé fólk í
sóttkví. Það má til dæmis gera með því að klæðast fallegum og þægilegum náttfötum.
Þægileg og falleg náttföt frá Sophia.
Victoria’s Secret er með mikið úrval
af þægilegum náttfötum. Fyrir-
tækið er með netverslun og hægt
að panta til Íslands.
Flott náttföt frá Ralph Lauren. Þessi eru líka frá Ralph Lauren.
Glæsileg náttföt frá fyrir-
tækinu Desmond & Dempsay.
Dolce &
Gabbana leggja
mikla áherslu
á glæsileg silki-
náttföt.
Baby doll
náttföt voru
gríðarlega
vinsæl á sjötta
og sjöunda ára-
tugnum. Stutt-
buxur og treyja
sem oftast var
með blúndum
og fallegum
skreytingum.
Ungar stúlkur
mættu í partí í
baby doll nátt-
fötunum sínum.
MYNDIR/GETTY-
IMAGE
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R