Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 27
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erna Aðalheiður
Marteinsdóttir
Kirkjulundi 6 í Garðabæ,
lést 16. mars síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristinn Már Þorsteinsson
María Þorsteinsdóttir Karl Svavar Sigurðsson
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Hans Jakob Beck
Ester Þorsteinsdóttir Þröstur Jensson
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við fráfall,
útför og minningarathöfn
yndislegrar móður okkar,
Elísabetar Kemp
Guðmundsdóttur
fv. bankafulltrúa á Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á bráða- og
líknardeild Landspítalans.
Eva Þórey Haraldsdóttir Gunnar Jóhannsson
Ásdís Hrefna Haraldsdóttir Sigurður V. Guðjónsson
Ragna Haraldsdóttir Leó Jónsson
Sigurður Stefán Haraldsson Thamar Melanie Heijstra
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Bjarni Tómasson
rafvirkjameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
14. mars.
Hjördís Þorsteinsdóttir
Þorsteinn Bjarnason Janni Högh
Laufey Ása Bjarnadóttir Guðmundur Þorri Jóhannesson
Arnar Bjarnason
og barnabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Hrafnhildur Halldórsdóttir
húsmæðrakennari,
Sóltúni 2, Reykjavík,
áður Lindarflöt 8, Garðabæ,
andaðist í faðmi barna sinna á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
laugardaginn 14. mars síðastliðinn.
Hildur Jóhannesdóttir Jóakim Hlynur Reynisson
Þorleikur Jóhannesson Helga Melsteð
Halla Margrét Jóhannesdóttir Sólmundur Már Jónsson
Ólafía Ása Jóhannesdóttir Sigurður Garðar Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Sigurhansson
framreiðslumeistari,
lést á deild 11E á Landspítalanum við
Hringbraut hinn 9. mars. Útför hans fer
fram frá Skálholtskirkju laugardaginn
21. mars klukkan 14.00. Í ljósi aðstæðna verður útförinni
einnig útvarpað í bíla.
Margrét Runólfsdóttir
Bjarki Freyr Guðmundsson
Gunnhildur Guðmundsdóttir
Jóhanna Björg Guðmundsdóttir Martin Christensen
Júlía Dögg Haraldsdóttir Þorsteinn H.
Guðmundsson
og barnabörn.
Elskulegur bróðir okkar,
Skúli Magnússon
Bugðutanga 28,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu þriðjudaginn
3. mars. Í ljósi óvanalegra aðstæðna í
samfélaginu um þessar mundir mun útför
hans fara fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Sigrún Valdimarsdóttir
Mikael Sigurðsson
Valgerður Magnúsdóttir
Auður Lekay
Erna Magnúsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Birgir Símonarson
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut fimmtudaginn
12. mars. Útförin fer fram í kyrrþey í ljósi
aðstæðna í samfélaginu. Sérstakar þakkir
eru til starfsfólks Landspítalans. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð Lindakirkju.
F.h. fjölskyldunnar,
María Kristín Lárusdóttir
Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og kvöddu elskulegan föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Kristján Arnfjörð
Guðmundsson
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Eir, 3.h. suður.
Jóna G. Gunnarsdóttir
Kristjana Kristjánsdóttir Pétur A. Maack
Hilmar S. Kristjánsson Josefine L. Kristjánsson
Ragnar K. Kristjánsson Helga J. Hallgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður Erla Erlingsdóttir
sundkennari,
lést 10. mars á Hrafnistu í Reykjavík.
Útförin fer fram frá Lindakirkju
föstudaginn 20. mars kl. 13.00.
Guðfinna Helgadóttir Guðni Einarsson
Sigríður Helgadóttir Birgir H. Sigurðsson
Helgi Helgason Brynja Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við vildum byggja á þeirri bjar t sý ni sem ávallt hefur fylgt Hönnunar-Mars og ákváðum því að fresta honum fram í lok júní en fella hann ekki
niður. Halda hann eins seint í júní og
við getum – en hérna megin við aðal
sumarfrísmánuðinn,“ segir Halla Helga-
dóttir, framkvæmdastjóri Hönnunar-
miðstöðvar Íslands sem stendur fyrir
þessari miklu þátttökuhátíð.
Samkvæmt upphaf legu plani átti
HönnunarMars að standa frá 25. til 29.
mars. Halla segir ákvörðun um að fresta
honum hafa verið tekna 10. mars, af
orsökum sem allir þekkja. „Þetta sumar
verður ef laust ekkert eins og önnur
sumur en við þurfum að geta hlakkað
til einhvers og við vildum ekki færa
HönnunarMars lengra en svo að við
sæjum í hann. Þetta eru fjórtán vikur,
því hann er áformaður frá 24. til 28. júní.
Hann byrjar á miðvikudegi og lýkur á
sunnudegi, eins og átti að vera núna.
Við erum alltaf með stóra ráðstefnu í
Hörpu á HönnunarMars, sem nefnist
DesignTalks, sjö til átta hundruð hafa
mætt á hana undanfarin ár, sumir koma
langt að. Þetta árið eru fyrirlesarar frá
Íslandi, Bretlandi, Hollandi, Spáni og
New York.“
Ótal úrlausnarefni fylgja svona frest-
un, eins og nærri má geta. „Við fórum
saman í það, sex, sjö manna hópur, að
hringja í alla þátttakendur, sem eru um
hundrað, stuðningsaðila og samstarfs-
aðila og tala við þá persónulega. Náðum
að ljúka því nokkurn veginn milli
klukkan 12.00 og 18.00 einn daginn,“
lýsir Halla. „Það skapaðist strax jákvæð
stemning í kring um þessa ákvörðun
enda eru allir að glíma við sama vanda-
málið núna, með von um betri tíð.“
Meðal þeirra sem þurfti að til-
kynna frestun voru gestir og blaða-
menn erlendis frá, 30 til 40 manns, að
sögn Höllu. „Nánast allir staðfestu þátt-
töku.“ Hún segir Icelandair hafa verið
öflugan stuðningsaðila HönnunarMars
nánast frá upphafi. „Það voru öll f lug
endurbókuð og fyrirtækið tók af breyt-
ingargjöldin. Iclandair-hotels hefur líka
verið góður samstarfsaðili til margra
ára og Arion banki stutt vel við þessa
hátíð, ásamt f leirum. En eins og önnur
fyrirtæki erum við að lenda í algerum
forsendubresti og vonum að stjórnvöld
standi með okkur.“
Hönnunarmiðstöðin er að koma
nýjum vef í loftið að sögn Höllu. „Við
ætlum að nýta tímann vel,“ segir
hún. „Þannig að við komum vonandi enn
sterkari til leiks í júní.“ gun@frettabladid.is
Þurfum að geta hlakkað til
Nú hefur verið ákveðið að fresta mars fram í júní – það er að segja HönnunarMars –
sem hefur verið einn stærsti viðburður marsmánaðar á Íslandi mörg undanfarin ár.
„Vildum ekki færa HönnunarMars lengra en svo að við sæjum í hann,“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT