Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 31

Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 31
ÉG FÓR Í MÚSÍK AF ÞVÍ GARÐARI VAR GEFINN GÍTAR Í JÓLAGJÖF ÞEGAR ÉG VAR ÁTTA ÁRA. HANN FÓR BARA AÐ SOFA EN ÉG TÓK GÍTARINN.Jón Kristinn Cortez er að leggja lokahönd á nótnahefti með einsöngslögum Gunn-ars Reynis Sveinssonar. Svo, „ef Guð lofar“, eins og hann segir, verður kannski Jón Leifs næstur eða Sigfús Ein- arsson. Áður eru komin út hefti með einsöngslögum eftir Árna Thorsteinsson, Karl Ottó Runólfs- son, Jórunni Viðar, Pál Ísólfsson og Jón Þórarinsson, Sveinbjörn Svein- björnsson og Jón Ásgeirsson. „Þetta er auðvitað bara gert til að bjarga þessum menningararfi okkar,“ segir Jón Kristinn. „Þó menn geti orðið sér úti um eintak að einhverju lagi þá eru það nótur sem búið er að ljós- rita aftur og aftur. Ég er að berjast við að koma þessum handritum á lesanlegt form í tölvunni. Þetta er svona hreinsunarstarf líka.“ Sjálfur kveðst Jón Kristinn aldrei selja nótur á stökum blöðum. „Ef einhvern langar í lag sem til er á bók, þá kaupir hann bókina og fær f leiri góð lög með. Auðvitað kaupa menn nótur á netinu og prenta út hjá sér. En þá er horfin öll virðing fyrir nótum á pappír, þeim verður á endanum rúllað upp eða vöðlað saman og týnt. Það er dálítið annað að grípa nótnabókina sína uppi í hillu en að leita í einhverjum blaða- haugum.“ Ekki kveðst Jón Kristinn eiga heiðurinn af því einn að safna öllum lögunum saman sem hann er að gefa út. „Ég hef notið dyggrar aðstoðar Ólafs Vignis Albertssonar píanóleikara og ekki má undan- skilja þá Trausta Jónsson veður- fræðing og Jónas Ingimundarson píanóleikara, þeir hafa verið iðnir við að hafa uppi á einsöngslögum. Frá þeim eigum við landsmenn lista yfir hátt á þriðja þúsund titla sem þeir eru búnir að skrá og ná megninu til sín á ljósritum. Ég er búinn að gefa út 10-15 prósent af þessu, hygg ég, bæði nótur og texta, eins og réttast getur verið. Það er svo sannarlega Ólafur Vignir sem með áratuga reynslu á stóran part í því starfi. Hann hefur lesið yfir hverja einustu bók sem ég hef gefið út. “ Byrjaði að spila á jólum Jón Kristinn kennir tónfræðagrein- ar við Söngskólann í Reykjavík. „Ég bættist í hóp kennara á annarri önn skólans, upp úr áramótum ‘73-’74, og fór svo bara að læra söng líka, ekki síst til að vita hvað hinir nem- endurnir væru að ganga í gegnum.“ Það er Garðar Cortez, bróðir Jóns Kristins, sem stofnaði skólann og stýrir honum. Jón Kristinn segir þá hvorugan vita hvaðan þeim komi tónlistin. „Pabbi var húsasmiður og það var engin músík í honum, en mamma spilað á píanó og alltaf í físdúr, sem þýðir að hún lék allt á svörtu nótunum. Það fannst okkur sérstakt. En ég fór í músík af því að Garðari var gefinn gítar í jólagjöf þegar ég var átta ára. Hann fór bara að sofa en ég tók gítarinn og bókina sem fylgdi og hætti ekki fyrr en ég gat spilað skammlaust Komdu og skoðaðu kistuna mína. Garðar spil- aði aldrei á gítarinn, ég bara eignaði mér hann.“ Jón Kristinn var ekki gamall þegar hann byrjaði í hljómsveit. „Fyrsta hljómsveitin sem ég var í hét Toxic. Hana stofnuðu nokkrir félagar í Réttarholtsskólanum, einn þeirra, Jakob Halldórsson, var æskuvinur minn og ég var sóttur í Laugarnesskólann því það vantaði bassaleikara. Toxic var bítlahljóm- sveit. Bítlarnir og Shadows voru eiginlega mínir fyrstu kennarar, af þeim lærði ég alla bassaganga sem ég komst yfir, þannig lærði ég líka, án þess að vita það, hljómagang og samspil hljóma.“ Ekki kveðst Jón Kristinn hafa átt peninga fyrir plötum fyrr en hann komst í hljómsveit. „Fyrstu popp- plötuna gaf mamma mér í jóla- gjöf, hún hét The Kinks, en mér var harðbannað að spila hana fyrr en á annan í jólum.“ Ein hljómsveitin tók við af ann- arri að sögn Jóns, Blúskompaní Magga Eiríks, Heiðursmenn Þóris Baldurssonar og Mannakorn Magga Eiríks. „Ég spilaði líka lengi með Jakobi Jónssyni söngvara sem átti vinsæla tækifæris- og árshátíðar- hljómsveit.“ Lagerinn hreyfist hægt Nú spyr ég Jón Kristin um tónverka- miðstöðina Ísalög. „Það er fyrirtæki sem ég stofnaði einn 1978, þá datt það í mig að gefa út plötu. Kenndi í Hlíðaskólanum og var þar með feikigóðan stúlknakór og gaf út plötu með honum, Bjart er yfir Betlehem. Svo hóf ég þessa nótna- bókaútgáfu árið 1981 og hef gefið út yfir sextíu bækur. Einsöngslagaút- gáfan byrjaði 1994. Þann 1. desember 2018, á 100 ára afmæli fullveldisins, var lokið við átta binda útgáfu með 289 söng- lögum eftir 66 tónskáld, Íslensk einsöngslög í eitt hundrað ár. Er einhver markaður fyrir svona nótnabækur hér á landi? „Nei, lag- erinn hreyfist hægt. En ég vil taka fram að þó ég hafi gefið út á eigin kostnað fyrstu tuttugu árin, þá hef ég fengið styrki frá ríkisstjórninni og Íslenska einsöngslaginu, svona til að taka kúfinn af áhyggjunum. Það þýðir ekki fyrir mig að byrja á að biðja um styrk og fara svo að vinna. Þetta eru afturvirkir styrkir. Að öðru leyti eru það mjólkurpen- ingarnir.“ Að grípa nótnabókina sína uppi í hillu Íslensk einsöngslög eru mikilvægur hluti af menningararfi þjóðarinnar. Jón Krist- inn Cortez tónlistarmaður gefur þau út í gegnum fyrirtæki sitt Ísalög. Nú einbeitir hann sér að hverju tónskáldi fyrir sig. „Ég er að berjast við að koma þessum handritum á lesanlegt form í tölvunni,“ segir Jón. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Íslensk lög til Singapúr Söngskólinn í Reykjavík er í prófasambandi við Konunglegu tónlistarskólana í Bretlandi sem gefa út námsefni í tónlist og lista yfir lög sem henta til söngs. Á þeim lista eru tólf ís- lensk lög sem Jón Kristinn setti þar inn, með þýddum textum á enskt, syngjanlegt mál. Þetta efni er til sölu í Tónastöðinni. Eins er hægt að skrifa Jóni Kristni, sem lengst hefur sent þetta efni til Singapúr. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Jónas Ingimundarson er meðal þeirra sem veittu Jóni aðstoð við verkið. 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.