Fréttablaðið - 19.03.2020, Page 37
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@
frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
KRAKKARNIR ERU
BÚNIR AÐ REKA MIG
SEM STÆRÐFRÆÐIKENNARA OG
HEIMTA AÐ PABBINN TAKI VIÐ,
SEM ÉG ER REYNDAR GUÐS
LIFANDI FEGIN AÐ ÞAU GERÐU.
ÞEGAR ÉG FÉKK SVO
SÍMTALIÐ UM ÞÆTT-
INA FÉKK ÉG NÆSTUM HJARTA-
STOPP OG GAT EKKI TALAÐ AF
SPENNINGI.
SPORTIÐ
Í DAG
ALLA VIRKA DAGA 15:00
#bestasætið
Þáttaröðin Mannlíf með grínistanum Evu Ruza hefst í dag í Sjónvarpi Símans.„Hugmyndin að þátt-unum kom frá lífsstíls-
blaðinu Mannlífi og er unnin í sam-
starfi við Sagafilm. Það má segja að
þetta sé litla barnið þeirra. Ég fékk
svo þann heiður að fá að ganga með
það fulla meðgöngu og bæta dassi
af Evu Ruzu galsa við þetta allt. Þór
Freysson framleiðandi leiddi mig
áfram í þessu öllu og fékk , greyið,
að hlusta á blaðrið í mér og misgáfu-
legar hugmyndir í margar vikur,“
segir Eva og bætir svo við: ,,Ég veit
samt að honum leiddist það pott-
þétt ekki því það var alltaf fjör í
tökunum. Mér þótti ótrúlega vænt
um að þau Steingerður, Róald og
Sigríður Dagný hjá Mannlífi treystu
hugmyndaf lugi okkar Þórs full-
komlega og leyfðu okkur að leika
lausum hala.“
Six pack og gleði
Eva segir þættina fullkomna fyrir
hámhorf nú þegar fólk þarf að eyða
löngum stundum heima hjá sér
vegna ástandsins í þjóðfélaginu.
„Eina vitið er að hlamma sér í sóf-
ann og horfa á þættina. Það er ekki
eins og fólk hafi eitthvað annað að
gera, allavega ekki þeir sem eru í
sóttkví. Jafnvel hægt að kveikja og
gera nokkrar magaæfingar á meðan
horft er. Slá tvær flugur í einu höggi;
„six pack“ og gleði í hjartað,“ segir
hún og hlær.
Eva lýsir þáttunum á þann veg að
þeir séu í raun byggðir upp eins og
þú sért að fletta blaði.
„Nema lifandi blaði með brussu-
gangi, hlátri og skemmtun beint
í æð. Í hverjum þætti er eitt ,,for-
síðuviðtal“ ef svo mætti segja og
svo minni innslög þar sem ég læri
til dæmis að elda, tek fræga í hraða-
spurningar og ég get sagt ykkur það
að það var veisla eitt og sér. Það sem
kom upp í þeim svörum lætur fólk
hlæja. Ég átti mjög erfitt með að
halda andlitinu í þeim þáttalið,“
segir hún.
Hvolpaaugun virka
Það gekk gífurlega vel að fá fólk til
að taka þátt að sögn Evu.
„Það má eiginlega segja að þetta
hafi gengið eins og í lygasögu. Við
þurftum ekki að snúa upp á hand-
legginn á neinum viðmælanda. Það
voru allir til í þetta verkefni og allir
til í að vera með, enda hafa þessi
hvolpaaugu mín f leytt mér langt
síðan í æsku. Það var gaman að sjá
að þau virkuðu líka á f leiri en bara
pabba og manninn minn,“ segir Eva
og hlær.
Eva vinnur í blómaverslun móður
sinnar, Ísblóm, í verslunarkjarn-
anum Miðbæ.
„Þannig að ég, enn og aftur,
henti upp hvolpaaugunum og bað
mömmu um frí í mánuð til að geta
hellt mér í þetta verkefni. Þið heyrið
bara í mér ef ykkur vantar eitthvað.
Þá set ég upp augun og geng í verkið
fyrir ykkur. Skemmtibransinn fékk
hins vegar ekkert frí frá mér, en ég
var nánast uppi á sviði um hverja
helgi á meðan allt var í gangi.“
Endaði með hlaupasting
Upptökurnar gengu vel og Eva segir
alla gesti hafa verið skemmtilega og
áhugaverða á sinn hátt.
„Ég á mjög erfitt með að að velja
á milli, ég er bara svo innilega glöð
yfir að það voru allir til í þetta,
allir svo hressir og skemmtilegir.
Reyndar fór ég út að hlaupa með
Þórarni Eldjárn og átti fullt í fangi
með að elta hann. Var komin með
hlaupasting og allt en hann blés
ekki úr nös, kallinn,“ segir hún.
Hún segir margt hægt að læra af
þáttunum og fólkinu sem í þeim
birtist.
„Allt er þetta fólk sem hefur látið
draumana sína rætast og það er
eitthvað sem margir eru hræddir
við að gera. Ég var til dæmis að lifa
drauminn minn við gerð þáttanna.
Núna þegar allir eru heima við, þá
er svo sannarlega hægt að láta sig
dreyma og kannski stökkva á tæki-
færin þegar allt fellur í ljúfa löð.“
Söngelsk en laglaus
Dreymdi þig um að verða sjónvarps-
stjarna?
„Mig hefur alltaf langað til að
vinna við sjónvarp, alveg síðan ég
var lítil. Vinkonur mínar segja bara
við mig eitt orð og það er ,,Loksins“.
Ég hef alltaf verið í öllu. Andskoti
athyglissjúk að sögn mömmu og
pabba. Í skólastarfi var ég í öllum
nefndum, öllum leikritum, söngva-
keppnum, sem er mér reyndar hulin
ráðgáta því ég er alls engin söng-
kona,“ segir hún og hlær.
Hún segist alltaf hafa sóst í skap-
andi verkefni og það hafi svo algjör-
lega breytt lífi hennar þegar sam-
félagsmiðlar komu inn í myndina.
„Ég nýtti þá í að skapa eitthvað
skemmtilegt efni fyrir áhorfend-
urna og geri enn. Þegar ég fékk svo
símtalið um þættina fékk ég næst-
um hjartastopp og gat ekki talað af
spenningi. Er ótrúlega þakklát fyrir
þetta tækifæri sem kom til mín.“
Rekin á öðrum degi
Það er nóg að gera hjá Evu þótt
mörgum verkefnum hafi vissulega
verið af lýst vegna kórónafarald-
ursins.
„Ég er með 10 ára tvíbura heima
og hef verið að heimaskóla þau, sem
hefur gengið upp og niður verð ég að
viðurkenna. Ég er reyndar hræði-
legur kennari og á fullt í fangi með
þessa iPad kennslu. Ég man þá tíð
þegar við notuðum blað og skrúf-
blýanta með strokleðri á endanum.
Krakkarnir eru búnir að reka mig
sem stærðfræðikennara og heimta
að pabbinn taki við, sem ég er
reyndar guðs lifandi fegin að þau
gerðu. Smá skellur hins vegar, þar
sem það gerðist bara á degi tvö að
ég var rekin.“
steingerdur@frettabladid.is
Rekin á
öðrum degi sem
stærðfræðikennari
Í dag koma út þættirnir Mannlíf með grínistanum Evu Ruza. Hún
segir þá kjörna fyrir hámhorf núna þegar fólk þarf að halda sig
heima. Eva kennir tvíburunum sínum nú heima við í ljósi ástands-
ins, en var rekin sem stærðfræðikennari á degi númer tvö.
Eva vinnur hjá móður sinni í blómabúðinni Ísblóm en fékk mánaðarfrí til að gera þættina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð