Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 41

Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 41
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Kolbeins Marteinssonar BAKÞANKAR buzzador® Njóttu Í þeim darraðardansi sem sam-félag okkar hefur gengið í gegnum undanfarið hefur verið aðdá- unarvert að fylgjast með einstakri leiðtogahæfni nokkurra þeirra sem stjórna grunnstoðum samfélagsins. Þau hafa tekið okkur í fangið og fullvissað okkur um að þetta muni allt líða hjá. Skipulögð upplýsinga- miðlun með daglegum upplýsinga- fundum skiptir hér lykilmáli. Mikilvægasta fyrirtæki landsins, Icelandair, stígur nú krappar öldur með Boeing 737 MAX-vélar sínar kyrrsettar og hrinu afbókana við upphaf stærsta sölutímabils ársins. Forstjóri þess sýnir aðdáunarverða stillingu og talar af sannfæringu um að þetta verði yfirstíganlegt. Ríkisstjórnin hefur einnig áttað sig á þessu og hefur boðað frekari aðgerðapakka um leið og ástandinu linnir. Fyrir það ber að hrósa, en frekari aðgerða er þörf. Kínverska táknið fyrir krísu er einkar lýsandi fyrir ástandið þessi misserin. Vinstri hlið þess merkir snögga breytingu meðan sú hægri merkir tækifæri lífsins. Breytingar kunna að vera erfiðar en getan til að sjá tækifærin sem þær skapa getur skilið á milli árangurs eða mistaka. Einn fremsti krísusérfræðingur Norðurlanda, Norðmaðurinn Bjørn Richard Johansen, hefur komið að úrlausn fjölmargra vandamála á Íslandi sl. 10 ár og þekkir aðstæður hér því vel. Hann sagði mér nýlega að Íslendingar ættu það til að tala helst til mikið og við mættum vera skipulagðari. Hins vegar séum við þrautseig, óhrædd, dugleg og vinnu- söm. Með slíka styrkleika munum við komast yfir þetta eins og annað. Gleymum aldrei tækifærunum sem okkur auðnaðist að nýta eftir hrunið 2008. Þau sköpuðu nýjar stoðir undir hagkerfi okkar og lífs- kjör. Og viðhöldum gleðinni, því það styttir alltaf upp. Tækifæri eða dauði Auðvelt að versla á byko.is Við sendum heim Verslaðu á netinu Pantaðu fyrir kl. 13:00 á virkum degi og þú færð vöruna samdægurs á höfuðborgarsvæðinu 8,2 Kílóvött 2 Brennarar Tilboðsverð Gasgrill ROGUE R365, grillgrind 51x46cm úr pottjárni. 69.995 506600035 Almennt verð: 89.595 20% afsláttur af allri vegg- og loftamálningu Það er lítið mál að mála 25% afsláttur af öllu parketi og flísum 25% afsláttur af öllum Grohe blöndunar- tækjum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.