Fréttablaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestan strekkingur og rigning
í dag, en úrkomulítið austanlands.
Minnkandi úrkoma og kólnar í
kvöld. SJÁ SÍÐU 16
Grjótglíma við Gálgaklett
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Margir stunda útivist þessa dagana. Nokkrir vaskir klettaklifrarar spreyttu sig á svokallaðri grjótglímu við Gálgaklett á utanverðu Reykjanesinu
um helgina. Þeir létu veðrið ekki truf la sig þó svo að hitastigið væri rétt um þrjár gráður og kletturinn hrjúfur og kaldur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
SKIPULAGSMÁL Byggingarfulltrú-
anum í Reykjavík hefur verið gert
að taka til meðferðar mál vegna
uppsetningar á lofttúðu í húsi einu
í Álakvísl.
Íbúi í Álakvísl hafði borað gat á
vegg sem snýr að sameiginlegum
utanáliggjandi palli og sett þar upp
lofttúðu fyrir útblástur frá eldhús-
háfi. Þaðan kom að sögn íbúans
í næsta húsi „óbærilegur fnykur
sem leitaði út í horn, beint fyrir
framan íbúð hans“, eins og haft er
eftir honum í umfjöllun úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlinda-
mála.
Nágranninn kærði þá ákvörðun
byggingarfulltrúa að þar sem eld-
húsháfur frá umræddri lofttúðu
hefði verið aftengdur og þannig
bærist ekki matarlykt út um hana
væri hún aðeins óveruleg breyting
á útliti. Túðan teldist því minni-
háttar framkvæmd og væri ekki
byggingarleyfisskyld. Úrskurðar-
nefndin segir ákvörðun byggingar-
fulltrúans ekki studda haldbærum
rökum og því verði að fella hana úr
gildi. - gar
Grannar deila
um stækan fnyk
Eldhúsháfur var aftengdur eftir
kvörtun en lofttúða stendur eftir.
REYKJAVÍK Einar S. Hálfdánarson,
lögmaður og löggiltur endurskoð-
andi, sendi borgarráði Reykjavíkur
bréf á dögunum þar sem hann segist
efast um að reikningsskilaaðferð
Félagsbústaða hf. standist skoðun.
Einar er þrautreyndur í sínu fagi og
situr í endurskoðunarnefnd Reykja-
víkurborgar.
Félagsbústaðir eru gerðir upp
samkvæmt alþjóðlegum reiknings-
stöðlum, IFRS. Í bréfi sínu bendir
Einar á að Félagsbústaðir séu ekki
reknir í hagnaðarskyni og slík félög
í öðrum EES-löndum noti ekki
IFRS-staðla. Vísar Einar í minnis-
blað KPMG frá árinu 2012 þar sem
endurskoðunarfyrirtækið komst að
þeirri niðurstöðu að IFRS ætti ekki
við hjá Félagsbústöðum.
Í núverandi fyrirkomulagi eru
fasteignir Félagsbústaða gerðar
upp á gangvirði sem þýðir að árlega
hækkar virði eigna félagsins í takt
við þróun á markaði. Eðlilegra telur
Einar að eignirnar yrðu metnar á
afskrifuðu kostnaðarverði.
Segir Einar vafa á hvort notkun
Félagsbústaða á IFRS sé heimil
samkvæmt íslenskum lögum en
ekki síður hvort við hæfi sé að gera
eignirnar upp á gangvirði.
Bendir Einar einnig á að kjörnir
fulltrúar kynnu að vera persónulega
ábyrgir ef svo ólíklega vildi til að
kröfuhafar Félagsbústaða létu á það
reyna hvort ársreikningar Félagsbú-
staða hf. hefðu gefið glögga mynd
af rekstri og efnahag félagsins. Þá
kynni sú persónulega ábyrgð einn-
ig að ná til endurskoðunarnefndar
Félagsbústaða og borgarinnar.
Bréf Einars var rætt á fundi borg-
arráðs í síðustu viku. Meirihluti
Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata
og Vinstri grænna lét bóka að þær
skoðanir sem komu fram í bréfi
Einars hefðu verið til umfjöllunar í
endurskoðunarnefnd borgarinnar
og að fjármálasvið Reykjavíkur-
borgar hefði leitað sér álit óháðs
aðila sem hefði staðfest fram-
kvæmd borgarinnar.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfull-
trúi Miðf lokksins, hefur ítrekað
bent á óeðlilegt misræmi á upp-
gjörsreglum A-hluta Reykjavíkur-
borgar og Félagsbústaða. Uppgjör
Félagsbústaða samkvæmt IFRS búi
til froðu í uppgjöri Reykjavíkur-
borgar. Tilgangurinn sé að búa til
rými til frekari lántöku borgar-
innar.
„Þessum ágreiningi verður að
koma úr ráðhúsinu. Ekki verður
hjá því komist lengur að fá úrskurð
reikningsskila- og upplýsinga-
nefndar sveitarfélaga og Ríkis-
endurskoðunar á þessum uppgjörs-
kúnstum, sem skipta svo miklu máli
í rekstri borgarinnar á þann hátt að
ef þeim verður breytt þá er borgin
komin í veruleg fjárhagsleg vand-
ræði. Borgarfulltrúi mun senda
erindi þess efnis til þessara aðila,“
segir í bókun Vigdísar.
bjornth@frettabladid.is
Telur vafa á hvort skil
reikninga standist lög
Löggiltur endurskoðandi, sem situr í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborg-
ar, hefur ritað bréf til borgarráðs þar sem hann varar við því að reikningsskil
Félagsbústaða myndu ekki standast skoðun óháðs aðila ef á það reyndi.
Þessum ágreiningi
verður að koma úr
ráðhúsinu.
Vigdís Hauksdóttir,
borgarfulltrúi
Miðflokksins
Félagsbústaðir eru eina óhagnaðardrifna leigufélagið innan EES sem gerir
upp samkvæmt alþjóðlegum reikningsstöðlum, IFRS. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Úrskurðarnefndin segir
ákvörðun byggingarfull-
trúans ekki studda hald-
bærum rökum, því verði að
fella hana úr gildi.
VIÐSKIPTI Frumvarp dómsmála-
ráðherra um að heimila áfengi í
netverslunum hér á landi verður
lagt fram á fundi ríkisstjórnar-
innar í dag. Nái frumvarpið fram
að ganga verður einkaleyfi ÁTVR
á sölu áfengis hér landi afnumið
ef undanskildar eru erlendar net-
verslanir sem selja áfengi hingað til
lands án aðkomu ÁTVR.
Frumvar pið hefur nú þegar
fengið á sig nokkra gagnrýni og er
sumt af því á misskilningi byggt. Í
frumvarpinu er ekki kveðið á um
breytingar á lögum um áfengisaug-
lýsingar. Þá verður áfram gerð sú
krafa að kaupendur séu 20 ára eða
eldri. - bdj
Leggur til sölu
áfengis á netinu
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir, dóms-
málaráðherra
3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð