Fréttablaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 33
Circulum og Landvættir er yfirskrift mynd-listarsýningar í Gall-eríi Fold en þar sýnir myndlistarmaðurinn Odee, Oddur Eysteinn
Friðriksson, á annan tug verka.
Hann sameinar þarna tvær seríur;
Circulum og Landvætti. Verkin
eru öll hringlaga, gerð úr sam-
settum klippimyndum frá menn-
ingu sem hefur haft mótandi áhrif
á listamanninn. Verkin eru brædd í
álplötur og síðan er húðað yfir með
gloss filmu.
Um hið hringlaga form segir
Odee: „Það að búa til list í hring-
laga formi kallar á öðruvísi mynd-
uppbyggingu en í því ferhyrnda og
gefur manni f leiri tækifæri til að
prófa nýja hluti og búa til eitthvað
einstakt.“
Raunverulegar verur
Spurður af hverju hann hafi valið
landvætti sem myndefni segir hann:
„Landvættir eru ekki bara þessir
fjórir sem eru í skjaldarmerkinu
heldur hafa þeir verið á ýmsum
stöðum í gegnum aldirnar. Þetta
eru yfirnáttúrulegar verur sem geta
annaðhvort verndað einstaklinga
eða hegnt þeim ef þeir gera eitthvað
af sér inni á þeirra landsvæði.
Þegar ég var að vinna verkin og
horfði á skuggamyndirnar af fólk-
inu sem ég bý til, þá fannst mér eins
og ég sæi persónuleikana brjótast
út. Mér fannst þetta vera raunveru-
legar verur. Það gaf mér orku. Það
má segja að verkin setji sig saman
sjálf. Ég byrja en þau taka við og
leiða mig áfram.“
Lokað á opnunardag
Engin formleg opnun var á sýn-
ingunni vegna samkomubanns.
Opnunardaginn var Odee með
beint streymi á Facebook, sem um
1.500 manns fylgdust með, þar sem
hann fjallaði um sýninguna. Hann
spjallaði við áhorfendur um verk
sín í nærri klukkustund og svaraði
spurningum þeirra sem settar voru
fram í athugasemdum. „Þrátt fyrir
að hafa verið í tómum sal þá var
þetta fjölsóttasta sýningaropn-
unin mín til þessa þótt galleríið hafi
verið lokað. Hverjum hefði dottið
það í hug,“ segir Odee. Nokkur verk
eru þegar seld.
Það eru um sex ár síðan Odee
Verk sem setja sig saman sjálf
Myndlistarmaðurinn Odee sýnir á annan tug verka í Galleríi Fold. Þar koma land-
vættir nokkuð við sögu. Opnunardaginn var hann með beint streymi á Facebook.
Það er afar róandi að hlusta á klass-
íska tónlist á tímum þar sem of
margir eru kvíðnir. Heimurinn
hefur átt stórkostlega meistara á
sviði klassískrar tónlistar og erfitt
er að gera upp á milli þeirra. Það má
samt reyna og tónlistartímarit BBC
fékk seint á síðasta ári 174 tónskáld
víða að úr heiminum til að velja
mestu tónskáld allra tíma. Anna
Þorvaldsdóttir tónskáld var meðal
þeirra sem tóku þátt í könnuninni.
Hér eru niðurstöðurnar. Frétta-
blaðið hefur síðan bætt við listann
einu meistaraverki af mörgum eftir
viðkomandi tónskáld.
1 Johann Sebastian Bach
Brandenburgar-konsertarnir
2 Ígor Stravinskíj
Vorblót
3 Ludwig van Beethoven
Tunglskinssónatan
4 Wolfgang Amadeus Mozart
Klarínettukonsert í A-dúr
5 Claude Debussy
Clair de lune
6 György Ligeti
Requiem
7 Gustav Mahler
Sinfónía nr. 5
8 Richard Wagner
Hollendingurinn fljúgandi
9 Maurice Ravel
Dafnis og Klói
10 Claudio Monteverdi
Krýning Poppeu
Klassískir
meistarar
Litagleðin er við völd í verkum Odee. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞAÐ MÁ SEGJA AÐ
VERKIN SETJI SIG
SAMAN SJÁLF. ÉG BYRJA EN ÞAU
TAKA VIÐ OG LEIÐA MIG
ÁFRAM.
Johann Sebastian Bach.
Wolfgang Amadeus Mozart.
sneri sér að myndlist, en áður
stundaði hann nám i viðskipta-
fræði, með áherslu á markaðsfræði
og stjórnun. „Einn daginn var ég að
horfa á vegginn heima hjá mér og
fannst eitthvað vanta á hann. Ég fór
að hugsa hvort ég gæti ekki gert eitt-
hvað sjálfur. Svo vatt þetta upp á sig.
Ég bý yfir nokkrum hæfileikum sem
sameinast í Odee. Ég hef skilning á
markaðssetningu og á auðvelt með
spuna og sköpun og svo er líka í mér
viss grallaraskapur.“
Sýningin í Galleríi Fold stendur til
18. apríl en hún er einnig aðgengileg
á vefsíðu gallerísins; gallerifold.is.
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
Þorgeir, Kristófer, Þórdís og Bragi
fara yfir málefni líðandi stundar.
ALLA VIRKA DAGA MILLI 16:00 OG 18:30.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 3 1 . M A R S 2 0 2 0