Fréttablaðið - 31.03.2020, Page 33

Fréttablaðið - 31.03.2020, Page 33
Circulum og Landvættir er yfirskrift mynd-listarsýningar í Gall-eríi Fold en þar sýnir myndlistarmaðurinn Odee, Oddur Eysteinn Friðriksson, á annan tug verka. Hann sameinar þarna tvær seríur; Circulum og Landvætti. Verkin eru öll hringlaga, gerð úr sam- settum klippimyndum frá menn- ingu sem hefur haft mótandi áhrif á listamanninn. Verkin eru brædd í álplötur og síðan er húðað yfir með gloss filmu. Um hið hringlaga form segir Odee: „Það að búa til list í hring- laga formi kallar á öðruvísi mynd- uppbyggingu en í því ferhyrnda og gefur manni f leiri tækifæri til að prófa nýja hluti og búa til eitthvað einstakt.“ Raunverulegar verur Spurður af hverju hann hafi valið landvætti sem myndefni segir hann: „Landvættir eru ekki bara þessir fjórir sem eru í skjaldarmerkinu heldur hafa þeir verið á ýmsum stöðum í gegnum aldirnar. Þetta eru yfirnáttúrulegar verur sem geta annaðhvort verndað einstaklinga eða hegnt þeim ef þeir gera eitthvað af sér inni á þeirra landsvæði. Þegar ég var að vinna verkin og horfði á skuggamyndirnar af fólk- inu sem ég bý til, þá fannst mér eins og ég sæi persónuleikana brjótast út. Mér fannst þetta vera raunveru- legar verur. Það gaf mér orku. Það má segja að verkin setji sig saman sjálf. Ég byrja en þau taka við og leiða mig áfram.“ Lokað á opnunardag Engin formleg opnun var á sýn- ingunni vegna samkomubanns. Opnunardaginn var Odee með beint streymi á Facebook, sem um 1.500 manns fylgdust með, þar sem hann fjallaði um sýninguna. Hann spjallaði við áhorfendur um verk sín í nærri klukkustund og svaraði spurningum þeirra sem settar voru fram í athugasemdum. „Þrátt fyrir að hafa verið í tómum sal þá var þetta fjölsóttasta sýningaropn- unin mín til þessa þótt galleríið hafi verið lokað. Hverjum hefði dottið það í hug,“ segir Odee. Nokkur verk eru þegar seld. Það eru um sex ár síðan Odee Verk sem setja sig saman sjálf Myndlistarmaðurinn Odee sýnir á annan tug verka í Galleríi Fold. Þar koma land- vættir nokkuð við sögu. Opnunardaginn var hann með beint streymi á Facebook. Það er afar róandi að hlusta á klass- íska tónlist á tímum þar sem of margir eru kvíðnir. Heimurinn hefur átt stórkostlega meistara á sviði klassískrar tónlistar og erfitt er að gera upp á milli þeirra. Það má samt reyna og tónlistartímarit BBC fékk seint á síðasta ári 174 tónskáld víða að úr heiminum til að velja mestu tónskáld allra tíma. Anna Þorvaldsdóttir tónskáld var meðal þeirra sem tóku þátt í könnuninni. Hér eru niðurstöðurnar. Frétta- blaðið hefur síðan bætt við listann einu meistaraverki af mörgum eftir viðkomandi tónskáld. 1 Johann Sebastian Bach Brandenburgar-konsertarnir 2 Ígor Stravinskíj Vorblót 3 Ludwig van Beethoven Tunglskinssónatan 4 Wolfgang Amadeus Mozart Klarínettukonsert í A-dúr 5 Claude Debussy Clair de lune 6 György Ligeti Requiem 7 Gustav Mahler Sinfónía nr. 5 8 Richard Wagner Hollendingurinn fljúgandi 9 Maurice Ravel Dafnis og Klói 10 Claudio Monteverdi Krýning Poppeu Klassískir meistarar Litagleðin er við völd í verkum Odee. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÞAÐ MÁ SEGJA AÐ VERKIN SETJI SIG SAMAN SJÁLF. ÉG BYRJA EN ÞAU TAKA VIÐ OG LEIÐA MIG ÁFRAM. Johann Sebastian Bach. Wolfgang Amadeus Mozart. sneri sér að myndlist, en áður stundaði hann nám i viðskipta- fræði, með áherslu á markaðsfræði og stjórnun. „Einn daginn var ég að horfa á vegginn heima hjá mér og fannst eitthvað vanta á hann. Ég fór að hugsa hvort ég gæti ekki gert eitt- hvað sjálfur. Svo vatt þetta upp á sig. Ég bý yfir nokkrum hæfileikum sem sameinast í Odee. Ég hef skilning á markaðssetningu og á auðvelt með spuna og sköpun og svo er líka í mér viss grallaraskapur.“ Sýningin í Galleríi Fold stendur til 18. apríl en hún er einnig aðgengileg á vefsíðu gallerísins; gallerifold.is. REYKJAVÍK SÍÐDEGIS Þorgeir, Kristófer, Þórdís og Bragi fara yfir málefni líðandi stundar. ALLA VIRKA DAGA MILLI 16:00 OG 18:30. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 3 1 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.