Fréttablaðið - 31.03.2020, Side 29

Fréttablaðið - 31.03.2020, Side 29
Auglýsing um skipulagsmál Aðalskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 1. Lagning ljósleiðara um Djúpavogshrepp frá sveitar- félagamörkum í norðri að Djúpavogi. Tillaga að breytingu (dags. 6. feb. 2020 m.s.br.) tekur til legu stofnlagnar ljósleiðara frá sveitarfélagamörkum í norðri að Djúpavogi. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu: 2. Teigarhorn – fólkvangur og náttúruvætti. Lagning ljósleiðara. Tillaga að breytingu (dags. 6. mars 2020) tekur til lagningar stofnlagnar og heimtauga ljósleiðara um fólkvanginn og náttúruvættið frá landamerkjum í austri að tengivirki RARIK á Teigum. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi á skrif­ stofu Djúpavogshrepps, Bakka 1, Djúpavogi og eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Djúpavogshrepps: www.djupivogur.is undir liðnum Skipulagsmál. Tillaga 1 liggur jafnframt frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Skipulagstillögurnar eru í auglýsingu frá 31. mars til 12. maí 2020. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa Djúpavogshrepps, Bakka 1, 765 Djúpavogi eða á skipu­ lag@djupivogur.is, eigi síðar en 12. maí 2020. Vinsam­ legast gefið upp nafn, kennitölu og heimilisfang sendanda innsendra ábendinga og athugasemda. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan gefins frests telst vera henni samþykkur. Skipulagsfulltrúi Djúpavogshrepps Vesturbæjarsundlaug - Hofsvallagata 54 Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 26. febrúar 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 12. mars 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar, lóð nr. 54 við Hofsvallagötu. Í breytingunni felst að komið er fyrir hundagerði á lóðinni, núverandi grenndargámastöð er fest í sessi og bílastæðum fækkað lítillega. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ártúnshöfði, austurhluti Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 4. mars 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 12. mars 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi “Ártúnshöfði - Eystri” vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 31. mars 2020 til og með 12. maí 2020. Einnig má sjá tillögurnar á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 12. maí 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 31. mars 2020 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing um tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is          Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is SMÁAUGLÝSINGAR 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 3 1 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.