Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 31.03.2020, Qupperneq 30
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóninna Margrét Pétursdóttir Hveragerði, lést á Landspítalanum mánudaginn 23. mars síðastliðinn. Reynir Már Guðmundsson Pétur Reynisson Áslaug Einarsdóttir Jón Vilberg Reynisson Guðný Ísaksdóttir Þröstur Reynisson barnabörn, barnabarnabörn og Bella. Kær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Arnfinnur Bertelsson byggingarverkfræðingur, Sæbraut 12, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu síðastliðinn fimmtudag. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu fer útförin fram í kyrrþey. Valdís Kjartansdóttir Arndís Vala Arnfinnsdóttir Kjartan Arnfinnsson Sigríður M. Sigurðardóttir Bertel Ingi Arnfinnsson Sigrún Þormar Gunnar Rögnvaldsson Kristín Diljá Karlsdóttir Ísabella Eldey Kjartansdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og fallegar kveðjur vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Hrefnu Einarsdóttur Hjalti Ævarsson Trausti Þór Ævarsson Ástríður Torfadóttir Svanþór Ævarsson Ásgerður Hákonardóttir Auður Ævarsdóttir Sigurður Ingi Viðarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sólborg Júlíusdóttir lést 28. mars á Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki. Útförin fer fram í kyrrþey í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu. Hrönn Gunnarsdóttir Rögnvaldur Valbergsson Kolbrún Birgisdóttir Sigurður Halldór Aðalsteinsson Valdimar Líndal Birgisson Halldóra María Þormóðsdóttir Þórunn Elfa Sveinsdóttir Gunnar Carlsen Rakel Rögnvaldsdóttir Indriði Ragnar Grétarsson Brynjar Páll Rögnvaldsson langömmubörn og langalangömmubörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Unnur Gissurardóttir Erlingson Álalæk 17, Selfossi, áður Karfavogi 56, Reykjavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands aðfaranótt sunnudagsins 29. mars sl. Sigurður Rúnar Jónsson Ásgerður Ólafsdóttir Margrét Rannveig Jónsdóttir Birgir Már Ragnarsson Silja Hrund Júlíusdóttir Hildur Jónsdóttir Hjörtur Ottó Aðalsteinsson Guðrún Ólöf Jónsdóttir Sigrún Hjartardóttir Björn Geir Leifsson Jón Hörður Jónsson Sigríður Anna E. Nikulásdóttir Jóhanna Kristín Jónsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Stefánsson rafvirkjameistari, Ólafsfirði, lést laugardaginn 28. mars sl. Í ljósi aðstæðna mun útför hans fara fram í kyrrþey. Minningarathöfn verður haldin síðar og verður hún auglýst þegar þar að kemur. Þökkum hlýhug og góðar kveðjur. Helga Eðvaldsdóttir Eðvald Erling Magnússon María Magnússon Gunnlaugur Jón Magnússon Ásta Sigurðardóttir Ásdís Jóna Magnúsdóttir Örnólfur Ásmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Fela í sér taug við fortíð Hinn norræni súðbyrðingur er tilnefndur á lista heimsminjaskrár UNESCO. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins – íslenskrar strandmenningar, er ánægð með það. Finnbogi Bernódusson og Sigurbjörg Árnadóttir við dæmigerðan súðbyrðing í Ósvörinni í grennd við Bolungarvík. Smíðin eitt af því sem einkennir víkingaskip Skrokkur súðbyrðings einkennist af láréttum timburborðum sem skarast hvert yfir annað. Af þessari smíði eru dregin orðin skarsúð og súðbyrðingur. Aðferðin var notuð við skipasmíðar frá því fyrir 9. öld og er eitt af því sem einkennir til dæmis víkingaskip. Sama stallalag á hliðum er líka stundum haft á plast- bátum enda gefur það bátum aukinn stöðugleika. Um 200 aðilar á Norðurlöndunum öllum, bátasmiðir, söfn og félög standa saman að tilnefningu nor- rænnar trébátasmíði á skrá UNESCO. Umsóknin var afhent í liðinni viku í París, undirrituð af ráðherrum allra norrænu ríkjanna. Með henni er sú smíði komin á lista yfir þýðingarmikla starfshætti sem borist hafa frá kyn- slóð til kynslóðar - hefðir sem munu hverfa verði þeim ekki viðhaldið. Varla er hægt að hugsa sér landnám Íslands án súð-byrðingsins, né búsetu hér fyrstu þúsund árin. Fiskveiðar, f lutningar og ferðalög yfir úthafið, allt byggðist á þessum bát,“ segir Sigurbjörg Árnadóttir um norræna súðbyrðinginn. Hann hefur verið tilnefndur á heims- minjaskrá UNESCO sem mikilvæg menningararfleifð, enda megi þekking á sögu hans og smíði ekki glatast. „Súð- byrðingarnir fela í sér taug við fortíð,“ bendir hún á. Sigurbjörg segir súðbyrðinga víða til á söfnum á Íslandi og á Ísafirði hafi verið staðið best að því að varðveita þá á sjó. Hún segir súðbyrðingum enn siglt um flóa og firði á Íslandi og víðar á nor- rænum slóðum en sífellt fækki þeim sem kunni til verka þegar að viðhaldi þeirra komi. „Þetta er ævagamalt handverk en bæði í Noregi og Danmörku sækir fólk á öllum aldri þó námskeið í því, þar eru meðal annars ungar konur að smíða svona báta – og svo því sé til skila haldið hefur Síldarminjasafnið á Siglu- firði haldið námskeið í viðgerð á súð- byrtum bát.“ Enn eigum við Íslendinga sem kunna handtökin við smíði súðbyrðinga, að sögn Sigurbjargar. Hún nefnir Hafliða Aðalsteinsson sem líklega sé einna þekktastur þeirra. „Það leynast báta- smiðir hér og þar, sá eini sem hefur útskrifast í þeirri grein frá Iðnskólanum á síðustu áratugum er Jón Ragnar Daða- son, það reyndist erfitt að fá prófdóm- ara fyrir hann. Á hinum Norðurlönd- unum kenna lýðháskólar og iðnskólar bátasmíði og háskólinn í Tromsö er að reyna að koma sögunni og þekkingunni í kringum fagið á háskólastig.“ Sigurbjörg er formaður Vitafélagsins – íslenskrar strandmenningar og líka norrænu strandmenningarsamtakanna. Hún er fædd og uppalin í Svarfaðardal og er því spurð hvaðan henni komi áhuginn á ströndum, bátum og vitum. „Ég sá aldrei til hafs í uppvextinum, ætli það sé ekki ástæðan?“ svarar hún hlæjandi. „Bjó líka fjórtán ár í frumskógum Finnlands sem jók líklega enn á þörfina fyrir víðáttu. Þá kom ég stundum með ferðahópa til Íslands. Landsmenn voru að uppgötva hálendið á þeim tíma og ef ég ráðfærði mig við þá reyndu allir að stugga mér til fjalla eins og sauðkind á vori. En ferðafólkið mitt vildi frekar fræðast um hvar og hvernig við höfðum búið og það vakti áhuga minn á okkar sögu og lifnaðarháttum. Við vorum ekki öll Fjalla-Eyvindar.“ Heimkomin frá Finnlandi kveðst Sig- urbjörg hafa verið að vinna að Evrópu- verkefni um ferðaþjónustu í dreif býli, meðal annars með formanni norska vitafélagsins. Þá hafi hún verið beðin að benda á einhvern á Íslandi sem hefði áhuga á að sitja fyrstu norrænu strand- menningarráðstefnuna 2003. „Ég fékk litlar undirtektir svo ég ákvað að stofna vitafélag sjálf og bað Norðmenn um góð ráð. Þeir bentu mér á að vera í góðu samstarfi við Fornleifanefnd, Húsafrið- unarnefnd, Siglingastofnun og söfn og þau heilræði komu sér vel. Orðið strand- menning var ekki til í íslenskri orða- bók á þessum tíma og allir tengdu það við suðrænar slóðir. Í dag spyr enginn hvað það þýði. Enda er strandmenning grunnur að okkar norrænu menningu.“ gun@frettabladid.is Merkisatburðir 1905 Gull finnst við jarðborun við Öskjuhlíð í Reykjavík en magnið er of lítið til að vera vinnanlegt. 1917 Bandaríkin kaupa Dönsku Vestur-Indíur af Dönum og borga 25 milljónir dollara fyrir. Síðan hafa eyjarnar heitið Bandarísku Jómfrúaeyjar. 1955 Togarinn Jón Baldvinsson strandar við Reykjanes. Allri áhöfninni er bjargað, 42 mönnum. 1966 Sovétríkin skjóta upp geimfarinu Luna 10 og koma því á sporbaug um tunglið. 1967 Á Raufarhöfn mælist 205 cm snjódýpt sem þykir með fádæmum í þéttbýli á Íslandi. 3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.