Fréttablaðið - 31.03.2020, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
3 1 . M A R S 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er
opnað!
Íslendingar lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050
eða sendu tölvupóst á
orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð
verð í prentun.
93.000
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Karl Olgeirsson og org-eltríó hans gefa í dag út rafræna smáskífu með endu rh ljóð -blöndun á laginu Allt í fína sem Raggi
Bjarna og Ragga Gröndal sungu
fyrir nokkrum misserum.
„Árið 2017 gáfum við út plötuna
„Happy Hour með Ragga Bjarna“ og
árið eftir héldum við stórtónleika í
Háskólabíói og það var eiginlega
fyrir tilviljun að ég rakst á upptöku
af þessum tónleikum okkar þegar
ég var eitthvað að taka til í Drop-
boxinu mínu,“ segir Karl í samtali
við Fréttablaðið.
„Tónleikarnir voru teknir upp
fyrir Sjónvarp Símans og sýndir
fyrir réttum tveimur árum og þar
sungu þau Ragga Gröndal og Raggi
lagið Allt í fína. Og þegar þessi dúett
með Röggu og Ragga kom upp, þá
small bara eitthvað og mér fannst
þetta eiga svo vel við núna,“ segir
Karl.
Hlýlegur boðskapur
„Bæði af því að Raggi er nýfarinn
og síðan er það bara boðskapurinn.
Það er eitthvað svo hlýlegt að heyra
hann segja að það verði allt í lagi,“
segir Karl um söng Ragga sem hann
telur rétt að endurnýja nú þegar
taugar fólks eru víða þandar til hins
ýtrasta.
„Ég heyrði í strákunum í tríó-
inu með hvort það væri ekki bara
sniðugt að mixa þetta almennilega
og senda þetta frá okkur,“ segir Karl
um félaga sína Ásgeir J. Ásgeirsson
gítarleikara og trommarann Ólaf
Hólm sem að vonum voru til í tusk-
ið.
„Ég mixaði það bara upp á nýtt
eins og þetta væri bara nýtt lag
og það er að detta inn á þessar
streymis veitur, Spotify, YouTube og
félaga, og svo fer það bara í útvarpið
og fær vonandi einhverja spilun.“
„Er ekki allt í fína?“
„Ég hef verið píanóleikari Milljóna-
mæringanna síðan árið 2000 og
oftar en ekki söng Raggi með okkur.
Hann kom gjarnan þegar ballið var
hálfnað, tók nokkur lög og lét sig svo
hverfa,“ segir Karl þegar hann rifjar
upp það ævintýri sem var að spila
með sínum góða fallna félaga.
„Hann átti það til að gleyma
ráðningum og við urðum að hringja
í hann samdægurs svo hann myndi
örugglega mæta,“ heldur Karl áfram
og segir að stundum hafi það gerst
að Raggi var ekki mættur þegar
hljómsveitin steig á svið. „Maður
varð stressaður en svo mætti hann
iðulega með bros á vör og sagði: „Er
ekki allt í fína?“ og sá frasi varð mér
innblástur að laginu.“
Æðisleg minning
Karl segir Ragga einnig oft hafa
spurt hvort það væri „ekki allt í
góðu?“ og þessi spurning hafi oftar
en ekki verið það fyrsta sem hann
sagði þegar hann steig á svið. „Þá var
það „er ekki allt í góðu?“ eða „er ekki
allt í fína?“. Þetta er eitthvað svona
sem amma mín hefði sagt og er bara
svo næs,“ segir Karl og rifjar upp að
í fyrradag hafi verið liðin slétt tvö
ár frá því tónleikarnir voru sýndir
í Sjónvarpi Símans.
„Tónleikarnir voru útgáfutón-
leikar plötunnar sem við gerðum
með Ragga og voru haldnir í janúar
2018. Þeir áttu fyrst að vera í byrjun
október 2017 en við urðum að fresta
þeim vegna þess að Raggi veiktist og
fékk slæma lungnabólgu. Þannig að
við vorum voðalega glaðir að geta
haldið þessa tónleika þarna nokkr-
um mánuðum síðar,“ segir Karl.
„Maður fann það alveg, því ég
hafði unnið með Ragga svo lengi,
að það var farið að draga af honum
en þetta var svo gaman. Hann hafði
svo gaman af þessu og setti svo mik-
inn metnað í þetta þannig að þetta
er bara æðisleg minning.“
Náttúruaflið Ragga
Raggi Bjarna var goðsögn í lif-
anda lífi og Karl dregur ekkert úr
því að þegar Ragnheiður Gröndal
hafi slegist með í för hafi undur átt
sér stað á sviðinu. „Ragga er ein af
þessum fáu sem eru bara eins og
náttúruaf l. Hún bara breytir öllu
í kringum sig. Þannig að það var
alveg geggjað að hafa hana með,“
segir Karl og bætir við að hún bæti
einhverju alveg sérstöku við lagið
þegar hún syngur það.
toti@frettabladid.is
Tímabær endurómur
frá Ragga Bjarna
Karl Orgeltríó gefur í dag út nýja og endurhljóðblandaða útgáfu af
laginu Allt í fína enda telur Karl Olgeirsson ekkert veita af að fólk
heyri róandi rödd Ragga heitins segja að þetta verði allt í lagi.
Karl Olgeirsson, Raggi Bjarna, Ásgeir J. Ásgeirsson og Ólafur Hólm áttu margar gleðistundirnar saman eins og auð-
heyrt var á Happy Hour með Ragga Bjarna sem þeir gáfu út 2017 og fylgdu eftir með tónleikum. MYND/SVEINN SPEIGHT
Karl segir Ragnheiði Gröndal vera
náttúruafl þannig að það eru engir
smá kraftar sem Orgeltríóið leysti
úr læðingi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞAÐ ER EITTHVAÐ SVO
HLÝLEGT AÐ HEYRA
HANN SEGJA AÐ ÞAÐ VERÐI
ALLT Í LAGI.