Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 6
Johnson greindist með
COVID-19 fyrir tíu dögum.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
PÁSKANA
ALLA
OPIÐ
Gleðilega
páska!
Samstaða með fátækum í Angóla
Matvælum er dreift til fátækra í úthverfi Luanda, höfuðborgar Angóla. Unita, stærsti stjórnarandstöðuf lokkur landsins, stóð fyrir matargjöf-
unum en f lokkurinn hefur kallað eftir að landsmenn sýni samstöðu með þurfandi einstaklingum á meðan COVID-19 faraldurinn herjar á landið.
Alls hafa fjórtán smit verið staðfest í landinu hingað til og tvö dauðsföll. Talið er að sjúkdómurinn sé mun útbreiddari. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
NEW YORK Sá möguleiki er til staðar
að tímabundnar fjöldagrafir verði
grafnar í einhverjum af almenn-
ingsgörðum New York-borgar.
Þetta kom fram í röð tísta frá Mark
D. Levine, formanni heilbrigðis-
nefndar borgarinnar í gær, mánu-
dag, sem vöktu mikla athygli.
New York-borg er þessa dagana
orðin miðpunktur kórónaveiru-
faraldursins. Þar hafa tæplega 130
þúsund tilfelli greinst og dauðsföll
eru á fimmta þúsund. Það er um
þriðjungur af öllum staðfestum
smitum í Bandaríkjunum og tæp-
lega helmingurinn af öllum dauðs-
föllum.
Mark D. Levine, formaður heil-
brigðisráðs New York, skrifaði röð
tísta á mánudag sem vöktu mikla
athygli. Lýsir hann því að heilbrigð-
iskerfi borgarinnar sé komið að þol-
mörkum og það sama gildi um kerfi
borgarinnar sem sér um lík. „Við
erum að glíma við aðstæður sem
eru sambærilegar langvarandi 11.
september,“ segir Levine.
Að hans sögn eru f lest líkhús
sjúkrahúsa borgarinnar orðin full.
Brugðist var við því með að senda
80 sérútbúna kælibíla, sem rúma
100 lík hver, á sjúkrahúsin. Þeir séu
við það að fyllast einnig.
Ástæðan er sú, segir Levine, að
dauðsföll vegna COVID-19 sjúk-
dómsins séu vantalin í borginni.
Aðeins andlát þar sem sýni var
tekið úr einstaklingum, fyrir eða
eftir andlátið, eru inni í opinberu
tölunum en fjölmörg dauðsföll
hafi átt sér stað í heimahúsum og í
f lestum tilvikum er ekki tekið sýni
úr þessum einstaklingum, einfald-
Líkur á fjöldagröfum
í almenningsgörðum
Formaður heilbrigðisráðs New York-borgar telur líkur á að tímabundnar
fjöldagrafir verði grafnar í einum af almenningsgörðum borgarinnar. Líkhús
borgarinnar eru yfirfull og kirkjugarðar borgarinnar fá ekki við neitt ráðið.
Sjúkraflutningsmenn í Brooklyn sinna sjúklingi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Mark D. Levine.
lega af því að sýnatökubúnað skorti.
Afleiðingin af þessum gríðarlega
fjölda dauðsfalla er sú að kirkju-
garðar borgarinnar hafa ekki undan
að taka við útfararbeiðnum og það
sama gildir um útfararþjónustur.
Lausnin, að sögn Levine, felst í
tímabundnum fjöldagröfum í ein-
hverjum af almenningsgörðum
borgarinnar.
„Hver gröf mun rúma 10 líkkistur
í röð. Þetta verður gert á smekkleg-
an og virðulegan hátt og er aðeins
til skamms tíma. En íbúar New York
munu eiga erfitt með að sætta sig
við þessa staðreynd.“ – bþ
BRETLAND Boris John son, for sætis-
ráð herra Bret lands, var f luttur
á gjör gæslu á spítala í Lundúnum í
gærkvöldi. Johnson smitaðist fyrir
tíu dögum og var fyrst um sinn með
væg einkenni. Í gær tilkynnti tals-
maður forsætisráðherrans að heilsu
hans hefði hrakað og því hefði verið
gripið til þeirra varúðarráðstafana,
að læknisráði, að flytja hann á gjör-
gæslu. John son hefur beðið utan-
ríkis ráð herra Bret lands, Dominic
Raab, um að ganga í sinn stað þegar
„þörf er á“.
John son, sem er 55 ára, var lagður
inn á gjör gæslu St. Thomas spítal-
ans í London. Í til kynningu frá for-
sætis ráðu neytinu segir að John son
fái frá bæra þjónustu á spítalanum
og hann þakkar jafn framt öllu heil-
brigðis starfs fólki fyrir þann metn-
að og dugnað sem það sýnir daglega
í baráttu sinni við faraldurinn. – bþ
Boris Johnson
á gjörgæslu
Boris Johnson berst við COVID-19.
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð