Fréttablaðið - 07.04.2020, Qupperneq 19
Vegna COVID-19
ætlum við að bjóða
fólki upp á að við
komum og sækjum
bílana.
KYNNING
Hjá Arctic Trucks er hægt að fá
allan nauðsynlegan búnað og
breytingar sem þarf til að geta
kannað landið. Í ár býðst við-
skiptavinum líka að fá jepp-
ann sóttan og skilað á nýjum
dekkjum fyrir sumarið.
Hjá Arctic Trucks er hægt að fá
frábæra þjónustu fyrir jeppa og
allt sem þarf fyrir eftirminnilegar
jeppaferðir um landið. Fyrirtækið
selur meðal annars lífsstílspakka
sem gera fólki kleift að kanna
landið til fulls.
„Við leggjum mikla áherslu á
að bjóða vandaðar vörur og þess
vegna höfum við selt Dick Cepek
dekkin, sem flest jeppafólk þekkir
vel, árum saman,“ segir Steinar
Sigurðsson, sölustjóri Arctic
Trucks. „Þetta eru mjög endingar-
góð gæðadekk sem eru framleidd í
Bandaríkjunum.
Núna er tíminn til að fara yfir
á sumardekk að koma og vegna
COVID-19 ætlum við að bjóða
fólki upp á að við komum og
sækjum bílana heim til fólks eða í
vinnuna og skilum þeim svo aftur
á nýju dekkjunum,“ segir Steinar.
„Þá skiptir ekki máli hvort það er
bara um umfelgun að ræða eða
hvort fólk kaupir dekk líka. Þessi
þjónusta er í boði fyrir jeppa og
jeppadekk, en ekki fólksbíla. Við
höfum aldrei þjónustað þá.“
Stærðin skiptir máli
„Svo held ég að Íslendingar séu
að fara að ferðast mikið innan-
lands í sumar vegna aðstæðna
og við verðum með fulla búð af
lífsstílspökkum, ferðavörum,
toppgrindum og öllu öðru sem
viðkemur ferðalögum á bílnum,“
segir Steinar. „Við vitum að fólk
er að fara að breyta bílum fyrir
sumarið til að njóta fallega lands-
ins okkar og ég held að þetta verði
Íslandsferðasumarið mikla. Það er
líka löngu kominn tími til að njóta
landsins okkar almennilega.
En til að geta notið þess til hins
ýtrasta þarftu að breyta bílnum og
setja hann á stærri dekk, hvort sem
það eru 33 tommur eða eitthvað
stærra en það,“ segir Steinar. „Það
gefur allt aðra upplifun og aukna
möguleika á að skoða landið. Þá
er hægt að feta slæma fjallavegi
og annað á þægilegan hátt með
því að hleypa úr dekkjunum, sem
fer betur með bílinn og farþegum
líður betur. En þá þarftu líka að
eiga loftdælu til að geta pumpað
aftur í dekkin. Það þarf svona
aðeins að græja sig, en þá verða
allir vegir færir.“
Allt til landkönnunar
„Svo eru topptjöld líka rosalega
vinsæl núna. Það er f ljótlegt og
þægilegt að henda því upp á topp
eða á pallinn á pallbíl og það fylgir
stigi með, þannig að það er auðvelt
að komast inn og út,“ segir Steinar.
„Þetta eru 2-4 manna tjöld og þau
eru bráðsniðug fyrir fólk sem er á
f lakki og vill geta lagt sig, en það
er ekkert alltaf tjaldandi uppi á
hálendi.
Ýmiss konar svona lífsstílbún-
aður er mjög vinsæll hjá okkur og
það sama gildir um litlar breyting-
ar á bílum, þar sem þeir eru hækk-
aðir um nokkrar tommur,“ segir
Steinar. „Hérna hjá okkur uppi
á Kletthálsi er sérfræðiþekking
á þessu öllu, hér fæst allt sem þú
þarft til að undirbúa jeppann fyrir
ferðalög og hér er líka hægt að gera
allar nauðsynlegar breytingar.
Við erum líka að sjálfsögðu með
í „Allir vinna“ verkefninu, sem
þýðir að fólk getur fengið virðis-
aukann af vinnu af öllum verkum
sem kosta yfir 25 þúsund krónur
endurgreiddan frá ríkinu,“ segir
Steinar að lokum.
Kominn tími til að njóta landsins
Hjá Arctic Trucks er hægt að fá allt til að gera jeppann tilbúinn fyrir ferðalög um landið. Þar fást eingöngu gæða-
vörur, eins og Dick Cepek dekkin, sem eru endingargóð amerísk gæðadekk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR Í SÍMA 540 4900
JEPPADEKK.IS
Vönduð amerísk jeppadekk sem henta
frábærlega fyrir íslenskar aðstæður.
Stærðir 29 - 44”.
38” radíaldekk sem
hefur margsannað
sig á hálendi Íslands.
Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík
Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is
VIÐ SÆKJUM BÍLINN
TIL ÞÍN OG SKILUM!
HREINLÆTIS LEIÐBEININGUM
VEGNA COVID-19 ER FYLGT
BÍLAR 7 7 . A P R Í L 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR